Vikan


Vikan - 09.04.1959, Side 5

Vikan - 09.04.1959, Side 5
Enginn er spámaður í sínu föðurlandi J □ N LEIFS EINHVER kynleg-asti kvistur í þjóðfélagi voru er forgöngu- maðurinn að stofnun „Sam- bands tónskálda og eigenda flutnings- réttar“, sem frægara er hér innan- lands undir nafninu STEP, og er þar margt kyndugt í kýrhausnum. Jón Þorleifsson Leifs fæddist á há- tíðisdegi verkalýðsins 1. mai 1899 í Sólheimum á Ásum. Foreldrar hans voru hjónin Ragnheiður Bjarnadóttir og Þorleifur Jónsson, siðar póst- meistari í Reykjavík. Jón þótti furðu- legur í uppvexti, sérkennilegur og sérvitur. Hann gekk í Hinn almenna Mentaskóla í Reykjavík, en nam staðar i 4. bekk, þar sem hugur hans stóð mun frekar til tónnáms en pæl- ings við uppþornaðar skólabækur og viðureign við forheimskað kenn- aralið. Jón þreytti gagnfræðapróf við Mentaskólann ásamt merkismönnun- um Einari Ól. Sveinssyni, prófessor og Brynjólfi Bjarnasyni, síðar mennta- málaráðherra og nokkrum fleiri. Tuttugu og einn nemandi stóðst próf- ið og tyllti Jón sér í 8. sætið og hlaut einkunnina 4,4. Einna lakastur var hann í skriflegri stærðfræði, inns vegar hlaut hann 6 í teikningu og þótti það gott. Jón var einn þeirra fáu nemenda, sem gáfu skól- anum bækur og í skýrslum má sjá nafn stud. real. og stud. art. Jóns Þorleifssonar, sem gaf Iþöku bæk- urnar ,,Björneæt“ eftir Carit EtJar •og „Mirakler" eftir Edw. Cristmas. JÓN LEIPS hvarf til tónlistarnáms i Leipzig þegar árið 1916 og þar var harin í sjö ár sam- fleytt við tónsmíðanám og hljóm- sveitarstjórn. Að loknu námi sendl hann frá sér tyrfna bók um tónlist- arhætti, sem varla er i umdæmi ann- arra en tónmenntaðra manna. Enn- fremur hafa verið gefin út í Þýzka- landi mörg tónverk hans; bæði hefur hann samið „Ástavísur úr Eddu“, „Faðir vor“, „Forleik að Galdra- Lofti“, hresst upp á helling af is- lenzkum rímnadanslögum, hrærzt mikið í Islenzkum þjóðlögum, fjall- að um söngdansa og tónlistareðli, kirkjulög, samið nokkuð af sönglög- um og mætti þannig lengi telja. Jón Leifs átti lengi heima í Þýzka- landi, þar bjó hann í Potsdam- Rehbriicke, Am Wiesengrund. Á þessum árum var hann með annan fótinn í Reykjavík og hinn i Þýzka- landi. Stofnandi og formaður Banda- lags íslenzkra listamanna var hann 1928—30 og aftur frá 1936 og lengst af síðan. Þá hefur hann setið í smá- skrítnum félagsskap á borð við „Is- lenzkt menningarráð alþjóðavið- skipta“, sém hann átti mesta hlut að stofnun. Þá hefur hann verið mikill frammámaður í PEN-klúbbn- um, sem hafa starfað ár og síð og vakið athygli fyrir skemmtileg upp- átæki. Á hverju miðvikudagskvöldi situr hann svo á hanabjálka í Naust- inu og unir sér vel innan um alls kyns samtíning listamanna, sem myndað hafa með sér þarfan Lista- mannaklúbb, og þangað er gaman að koma og eru allir aufúsugestir. • • OLLUM er að nokkru kunnugt um viðleitni STEFs hér á landi. Margir yppta öxium, þegar það merkis fyrirtæki ber á góma. Sennilega gera menn sér almennt ekki grein fyrir, hvílíkur þjóðgrip- ur það er í raun og veru. En tón- skáld og eigendur hugverka eru ann- arrar skoðunar. Þeir vita sem er, að sennilega væri ástandið í þeim mál- um enn hrörlegra, ef Jón Leifs hefði ekki beitt sér fyrir málum þessum af jafn miklum dugnaði og raun ber vitni. Hann er þess vel minnugur, þótt staðirnir séu margir og gjöldin smá í hverjum, gerir þó alltjend margt smátt eitt stórt. Jón er ekki ,,businessmaður“ á nokkl'U sviði, kunningjar hans segja að hann sé sennilega ekki gæddur svo mikið sem 1% „businessgáfu“, en hins vegar aldeilis tilvalinn til að elja fyrir STEF, þrátt fyrir óplægðan akur og kargaþýfi. Hann er nákunnugur hinum erlendu STEFjum og auðveld- ar það honum starfið að miklum mun. Ekki leikur heldur vafi á því, að barátta Jóns fyrir STEFi og fram- gangi þess hefur stórlega tafið fyrir honum alla hugverkasköpun, og mik- ið meira mundi liggja eftir hann, ef STEF tæki ekki allan tima upp fyrir honum. f) A , Orustau um utvarpið Jón gengur að öllu með oddi og egg. Samt er listin honum allt, hann lif- ir fyrir listina og listin er til fyrir hann. Hann er mikill listamaður að eigin áliti og mikilhæfur að áliti allra tónskálda, sem til hans þekkja auk þess. Á sinum tíma var Jón Leifs starfsmaður tónlistardeildar Rikisút- varpsins. Þá var það eitt sinn, að Jón hvarf og enginn vissi, hvað af honum hafði orðið. Um siðir komst útvarpsstjórinn eftir því, að hann væri staddur úti í Viðey! Þá lét hann senda honum skeyti, þar sem honum var tilkynnt góðmótlega, að hsnn væri nú einu sínni starfsmaðui* Út* varpsins og óskað væri eftir hon- um í land! Jón sendi óðara svar- skeyti sem hljóðaði eithvað á þessa leið: Er að semja, truflið mig ekki. Utvarpsstjóra líkaði svarið svo vel, að hann lét málið niður falla og Jón fékkst við tónsmíðar sínar í friði og spekt um hríð. Nokkuð gott skilríki um skapgerð Jóns er einnig, þegar hann var staddur í Stokkhólmi 1944. Islend- ingar komust þá ekki heim og efndu til sameiginlegs fagnaðar. Þar var sungið og trallað og tók Jón að sér æfingar kórsins. Skrifaði hann nót- ur handa hverjum og einum með eigin hendi. Að fagnaðinum lokn- um ætlaði einn kórfélaginn að skila Jóni aftur handritinu. Þá varð vin- urinn undarlegur á svipinn, var treg- ur til að taka við þvi og sagði sem svo, að litil forsjá væri í því, þar sem barnabörn mannsins gætu hæg- lcga orðið stóreignamenn, ef hand- ritið væri varðveitt í nokkra ára- tugi. Engin hætta er á, að Jón hafi þarna gert að gamni sínu, því mað- urinn hefur ekki allt of mikinn hum- or til að bera og er ekki sérlega laginn að skapa diplomatiska vin- áttu við menn, énda of ákafur bar- áttu- og hugsjónamaður og lætur þá jafnvel stundum hendina nokkuð lausa. JÓN Leifs hefur unnið mikið og gott starf með söfnun þjóðlaga; hann fór með hljóðrita um landið og safnaði lögunum. Auk þess, sem áður var talið hefur hann samið fjölda kórlaga, pianólaga, einsöngs- laga, kirkjulagá og strokkkvartetta. Jón Leifs er einhver mesti tónlistar- maður, sem Island hefur eignazt. Hann er eklci einungis merkur fyrir tónsmíðar sínar, heldur einnig fyrir Framh. á bls. 26 VIKAN 5

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.