Vikan


Vikan - 03.09.1959, Qupperneq 10

Vikan - 03.09.1959, Qupperneq 10
 V S'- , Mí' filÍP /A&fc L . Hrútsmerkió (21. marz—20. apr.): Vikan verður fremur tíðindalaus. Þeir, sem fœddir eru nálægt 10. april, verða ef til vill fyrir vonbrigðum í ástum. Þú skalt ekki taka neina mikilvæga ákvörð- un i þessari viku, þótt það kunni í fljótu bragði að virðast þér hagstætt. Konum hættir við að verða úr hófi eigingjarnar. Heillalitur blátt. NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Þessi vika verður einkar skemmtileg, hvort heldur sem þú ert heima hjá þér eða í sumarleyfi. Ef til vill kvartar þú heldur mikið undan lágum tekjum þínum, en þar átt þú einnig nokkra sök að máli, þvi að þú leggur þig ekki ailan i frammi. Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): — Ungar konur. sem fæddar eru undir þessu merki, gera sér of háar hugmyndir í ástamálum, og alls ekki er víst að óska- draumur þeirra rætist •— strax. Karl- menn ættu að vera sem mest heima við og skemmta sér i hófi. KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): — Eitthvað ósamlyndi verður á vinnustað, og ef þú hegðar þér ekki skynsamlega, mun hagur þinn breytast til hins verra. Hætt er við að ástvínur þinn fjarlægist þig smátt og smátt, en reyndu ekki að streitast á móti. LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ágúst): Það gerist fremur lítið. Þér kann að virðast þú hafa það á tilfinningunni, að Þú sért staddur á eyðieyju. En bak við tjöldin er líf í tuskunum, og eftir nokkrar vikur verður þér vafalaust komið þægilega á óvart. Um helgina mun gamall vinur þinn koma í heimsókn. MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Það kostar ef til vlll ailmikið erfiði að ná settu marki, en ef þú leggur hart að þér, muntu ná takmarkinu. Reyndu að hrista af þér þetta slen, ellegar muntu engum framförum taka. Á mánudag eða þriðjudag kann að koma eitthvað fyrir, sem gjörbreytir lifi þínu um hrið. VogarmerkiÖ (24. sept—23. okt.): Kona, sem þú þekkir litilsháttar bruggar þér launráð. Vertu á varðbergi, og gefðu henni þá ráðningu, sem henni ber. Um helgina muntu fara í einkar skemmti- legt ferðalag, þar sem þú kynnist manni (eða konu). sem þú hefur lengi þráð að kynnast. — DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú hefur lifað hamingjusömu lífi, en þú mátt ekki ætlast til, að Það geti ekki breytzt. Þér verður ef til vill á smá- skyssa, sem þú tekur allt of nærri þér. Hugsaðu um það, hversu smávægilegur þessi at- burður verður eftir svosem mánuð. BogamaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Ein- hver ský verða á hamingjuhimni þinum, en þú getur ef til vill sjálfum þér um kennt. Þú ert að verða óvinsæll vegna eigingirni þinnar og önuglyndis. Reyndu nú að breyta til batnaðar, og sannaðu til — lifið mun jafnskyndilega leika við þér. Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þér áskotnast óvænt peningaaukning, en hætt er við að þú sóir þeim peningum fljótt — of fljótt. 1 sambandi við þessa peninga munt þú ef til vill lenda í deilu við kunningja þinn, sem gerir einhverjar kröfur til þessara peninga. Vatnsberinn (21. jan.—19. febr.): Ef þú ætlar þér að gera einhverja breytingu á líferni þinu, skaltu fyrir alla muni gera það núna. Sinntu sem mest áhugamálum þínum. Gift fólk ætti að sýna hvort öðru meiri umhyggju. Þeir, sem fæddir eru nálægt 23. janúar ættu að fara að öllu með gát í ástamálum. FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz): Þú ert of hlédrægur. Reyndu að kynnast fleirum, Því að þeir, sem þú kynnist í þessari viku. munu reynast þér holl- vinir hvað sem á bjátar. Ef þú rífur þig úr þessu híði, muntu jafnvel kynnast lífsförunaut , þínum í þessari viku, ef vel er haldið á spöðunum. w t 0 * 0 0 0 0 0 0 e « 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 Verður maðurinn minn þá látinn laus, spurði Eva skjálfftndi. V Smásoga eftir Simson Stohes Eva stóð og horfði frá glugganum niður á göt- una, og þegar hún kom auga á Burt, hljóp hún niöur og opnaði fyrir honum. Hún hafði verlð vongóð allan daginn, en henní leizt ekki á blik- una, þegar hún sá áhyggjusvipinn á Burt, þegar hann gekk inn um hliðið. En þegar hann tók eftir henni í dyrunum, hló hann og veifaði til hennar. Hún andaði léttara, og tók þegar tilveruna í sátt að nýju. Síðustu sólargeislarnir urðu skyndi- lega heitir og vingjarnlegir, og blómin í baðiriu urðu mun litskrúðugri en fyrr. — Hepánaðist þetta? spurði hún. — Já, til allrar hamingju! svaraði hann og kyssti hana. — Nöldraði ekki húsbóndinn? — Jú. En hann lét sig samt að lokum! Þegar hann gekk inn í borðstofuna, leit Eva á hann með meðaumkunarsvip. Þetta hlaut að hafa verið erfitt, en til allrar hamingju hafði Burt átt i höggi við hinn vingjarnlega Praddick i stað Murden. Hefði hann átt við hann, hefði honum jafnvel aldrei tekizt þetta! Evu skildist & Burt, að Murden væri ákaflega harður í horn að taka. -r- Er Willie heima? spurðl Burt. — Já, hann er uppi í herberginu sinu. Hann hefur setið þar og kvalizt af eftirvæntingu í allan dag eg ekki smakkað vott né þurrt. Farðu upp og segðu honum frá þessu á meðan ég legg á borðið. Dyrnar að herbergi Wiliie voru læstar, en Burt bankaði um leið og hann sagði: — Willie, það er ég. Þetta gekk vel ... ég *r búinn að ná i peninga. Stól heyrðist ýtt til hliðar . . . siðan heyrðist fótatak og dyrnar opnuðust. Willie stóð og rétti fram höndina, en andlit hans var afmyndað af áhyggjum og sektarmeð- vltund. — Svona, Willie, taktu nú á þig rögg! þetta er ijóta málið, en þú hefur það þér til afsökunar,, að það hefur verið leikið á þig! Ég vona, að þú látir þetta þér að kenningu verða . . . og þar sem þetta er í fyrsta sinn sem þér verður svona skyssa á, skulum við bara skella við þessu skollaeyrum. Eftir matinn förum við til Anson og borgum hon- um. Við höfum víst lltla von um að fá aftur fjár- hæðina hjá þessum náunga, sem sveik þig. En það skiptir engu, ef einungis er bætt fyrir hallann. Þegar Eva kallaði til þeirra og sagði að matur- inn væri kominn á borðið, stóð Burt á fætur. — Komdu nú . . . og þú mátt ekki láta móður þina gruna neitt. Hún þarf alls ekki að komast að hinu sanna. Þetta er mál .okkar tveggja og Ansons. Eva masaði meðan á máltíðinni stóð og tók alls ekki eftir hinni þvinguðu framkomu manns sins og sonar. — Hugsaðu þér þá framtíð, sem þú átt í vænd- um, Willie! sagði hún og ijómaði. — En svona vill þetta óft verða. Þegar maður leggur peninga í fyrirtæki, uppsker hann líka ríkulega. Það var fallega gert af Praddick að lána bér peningana, Burt; en hann á ef tll vill sjálíur son og veit hversu mlklu það skiptir að hann fái góða stöðu. Flýtið ykkur nú að borða, svo að þið getið farið og talað við Anson! í Hálftíma síðar stóðu Burt Deans og sonur hans fyrir utan glæsilegt einbýlishús Ansons. — Vertu rólegur, sagði Burt hughreystandi. — Þetta blessast allt! Burt stóð i fyrsta slnn augliti til auglits við

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.