Vikan


Vikan - 03.09.1959, Qupperneq 19

Vikan - 03.09.1959, Qupperneq 19
Bréf úr sveitínni Kæra Vika. Ég má til með að senda tér mynd aí mér, Þar sem ég hitti jólasvein- inn. Það var núna i sumar þegar ég var nýkominn í sveitina. Ég haíði aldrei farið í sveit áður og hafði labb- að svo langt frá bænum, að ég sá ekki heim. Sg varð alveg dauðhrædd- ur, því að ég vissi, að nú var ég að villast, en það var einmitt það, sem ég lofaði mömmu, áður en ég fór, að fara ekki svo langt í burtu frá bæn- um, að ég rataði ekki aftur heim. Ég settist niður og fór að gráta. Það var dálítill skógur á bak við mig, sem ungmennafélagið í sveitinni hafði ræktað. Það hafði sett niður plöntur fyrir löngu, svo að þarna var orðinn bara töluvert hár skógur og ósköp fallegt. En maður sér það bara ekki, þegar maður er einn og villtur. Ég óskaði þess af öllu hjarta, að ég hefði ekki farið svona iangt. Ég reyndi að hóa og kalla, en enginn heyrði til mín. Ég lagðist niður í móann og grét hátt. Allt í einu kom einhver við bak- ið á mér ósköp varlega og ég leit upp. Ég hélt það gæti ef til vill verið hund- urinn hann Koli, sem væri kominn til mín, en ég varð bæði hræddur og bissa, þegar ég sá ósköp lítinn jóla- svein standa þarna við hliðina á mér. Vertu ekki hræddur, sagði hann. Ég er kominn til að hjálpa þér. Hver ert þú? spurði ég. Það er nú saga að segja frá því, sagði hann. Þannig var, að i vetur, þegar við jólasveinarnir héldum til byggða rétt fyrir jólin gáði ég ekkert að veginum sem vlð fórum þið bara hvað, Þetta var þá Óli, kaupamaðurinn á bænum og hann flýtti sér að taka upp myndavélina sína og smella af okkur þessari mynd, sem þið sjáið hérna. Síðan flýtti jóla- sveinninn sér í burtu. Hann vildi ómögulega koma með okkur heim á bæinn. Það er bezt að hver hugsi um sig og sé út af fyrir sig, sagði hann. Ég er jólasveinn og á heima hjá jóla- sveinum. Þið eruð mannabörn og eig- ið heima hjá mönnunum. En við sjá- umst kannske á jólunum, bætti hann við. Síðan veifaði hann til okkar hendi og hvarf inn á milli trjánna. Óli var svo hissa á þessu öllu sam- an, að hann gat varla knmið upp nokkru orði. Hann sagði bara: Það er bezt við komum okkur heim, áðui’ en ég missi alveg glóruna. Jóla*yeiim upp í fjalli um hásumar. Aldrei hefi ég nú heyrt annað eins og hefi ég þó heyrt margar sögur um jólasveina. Nei, ég trúi þessu bara ekki, sagði Óli, nema ég sjái það á myndinni, að það hafi í raun og veru verið þarna jólasveinn. Og hér er myndin. Ef við Óli hefö- um ekki myndina, hefðum við líklega báðir haldið að okkur hafi bara verið að dreyma. En gaman var að hitta jólasveininn, það segi ég ykkur alveg satt. Skraddarasonur i sveitinni. Þegar við héldum svo heim til okkar eftir jólin, var ég alltaf eitthvað að forvitnast og slæpast, því að mér þótti svo gaman að sjá, hvernig mennirnir lifa sínu lífi, en einu sinni varð ég svo alveg viðskila við félaga mína, hina jólasveinana og þegar ég reyndi að finna veginn heim, fann ég, að ég var alveg villtur. Það var því ekki BARHAGAMAH annað að gera fyrir mig en bíða þangað til um næstu jól, þegar þeir koma aftur hingað til ykkar krakk- anna og verða þeim þá samferða heim. Ég verð nú að segja það, að ég hefi margt séð og heyrt allan þenn- an tíma, sem ég er búinn að vera hér og einhvern veginn er það nú svo, að ég verð ósköp feginn, þegar ég kemst heim tii min aftur. Ég er búinn að sannfærast um það, að það er bezt, að hver sé í sínu landi og með sínu fólki og leiti lifshamingjunnar i sinu eigin heimalandi, Því að þar er hana að finna. Jæja, nú skal ég fylgja þér, svo að þú sjáir heim til þín, þá ratarðu, En hver kemur þarna, það er bezt ég flýti mér í burtu og feli mig. En vitið VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.