Vikan - 08.10.1959, Side 4
CEORCES 9D3MSKT
umboðsmaður geimbún n jörðinni
eðn forbertur sviknri
Á íslandi eru allmargir menn, sem telja sig hafa
séð fljúgandi diska, en aðrir gera lítið úr þessu
og telja, að um ofsójnir og ímyndun sé að ræða.
Georges Adamski.
0*
Geimbúar viija ekki Ieyfa okkur acS halda
til anarra hnatta, fyrr en við höfum lært að
lifa í sátt og samlyndi hér á jörðinni, segir
hinn 68 ára gamli Bandaríkjamaður Georges
Adamski, sem kveðst liafa náð sambandi við
geimbúa . . .
Siðustu árin hefur furðulegur maður vakið
síaukna athygli um allan heim. Hinn 68 ára
gamli Georges Adamski frá Palomar Gardens
i Kaliforníu hefur verið kallaður spámaður
vorra tíma, og Jnisundir, ef til vill milljónir
manna um allan heim trúa Jivi að Jiessi mað-
ur eigi eftir að bjarga mannkyninu frá glötun.
Georges Adamski heldur Jdví fram að allar
pláneturnar í sólkerfi okkar séu byggðar mönn-
um, sem eru okluir fremri bæði að andlegum
og tæknilegum þroska. Og Jietta eru ekki nein-
ar getgátur. Hann trúir þessu slatt og stöðugt.
Hann segist hafa þrásinnis náð sambandi við
menn frá öðrum hnöttum, sem hingað komu
í geimförum.
Það eru skiptar skoðanir um Adamski.
MÖrgum finnst hann hinn eini og sanni spá-
maður nútímans, sendimaður geimbúa á jörð-
inni. Aðrir telja hann svikara. Sumir halda
því fram, að hann sé beinlinis vitskertur.
Georges Adamski er rúmlega 68 ára gamall.
Hann er fæddur í Póllandi, en á öðru ári fhitt-
ust foreldrar hans til Bandaríkjanna, og hann
ólst upp i Dunkirk í New York fylki. Æska
hans var tíðindalaus, og hann ólst npp við
sömu kjör og aðrir nýbyggjar.
Adamski erfði frá föður sínum djúpa og
innilega lotningu fyrir náttúrunni. Fjölskyld-
an var sannkristin og hafði djúp áhrif á allar
gerðir hans. Hann sá, að veröldin var fögur
og unaðsleg, að mennirnir gætu lifað saman
í sátt og samlyndi. En honum gramdist að
sjá, að sú var alls ekki raunin á. Hann hugsaði
mikið um þetta og komst að því, að þetta
stafáði ekki einungis af Jiví, að mennirnir
lifðu ekki guði samkvæmt, heldur einnig vegna
þess, að þeir létu blekkjast af valdafikn, pen-
ingagræðgi og alls kyns jarðneskum lysti-
semdum.
Á unga atdri fannst Adamski það köllun
sín að vinna í liágu mannkynsins, og hann
varð síðar kennari. í mörg ár ferðaðist hann
um Bandarikin og vann að ýmsu. Hann vann
samúð allra, og margir þyrptust um hinn ein-
kennilega unga mann, sem lofaði náttúruna
svo fagurlega, gæsku drottins og likurnar á
þvi, að mennirnir gætu lifið saman í bróð-
erni.
Upp úr 1930 settist Adamski að í Lagoona
Beacb i Kaliforníu. Hann giftist Marian
Shimberski og stofnaði látlaust heimili.
Adamski lifði á kennslustörfum. Einkum
kenndi hann náttúrufræði og þá einna lielzt
stjörnufræði.. Hann átti marga nemendur, og
margsinnis hélt hann fyrirlestra í útvarp í
Kaliforníu.
Með heimagerðum stjörnuljósmyndavélum
tók hann ásamt nemendum sínum myndir af
himinhvelfingunni og rannsakaði með Jieim
stjörnurnar. Dag einn tók Adamski eftir ]>ví,
að ekki var allt með felldu. Hann tók eftir
einhverju á einni af myndum sínum, en hon-
um var hulin ráðgáta, hvað þetta gæti verið.
Nokkrum dögum síðar sá hann og kona hans
risastórt bákn, eins og vindil i laginu, sem
lá grafkyrrt uppi i loftinu. Honum datt i hug,
að þetta gæti verið geimfar frá öðrum hnött-
um. Adamski liafði Iengi verið sannfærður
um, að menninrir væru ekki einu verurnar
í alheiminum, en hann hafði haldið, að ó-
gerningur væri að fcrðast á milli hnatta.
Nótt eina árið 1947 sá Adamski og nokkrir
vinir hans fjölda fljúgandi diska, sem fóru
hljóðlaust um háloftin. Þeir sáu Jiessa furðu-
sjón i rúma ldukkustund, og Adamski var nú
sannfærður um, að farartæki frá öðrum hnött-
um svifu umhverfis jörð okkar. Daginn eftir
Adamski fannst hann vera kallaður út í Eyðimörkina og
þar hófust kynni hans af íbúum annara hnatta.
íbúar annarra hnatta munu ekki leyfa
okkur að ferðast út frá jörðinni, fyrr
en við höfurn þroska til að lifa saman
í friði og einingu hér, segir Georges
Adamski. Hann eignast stöðugt stærri
hóp skoðanabræðra um allan heim og
hér á íslandi eru margir, sem telja sig
hafa séð fljúgandi diska. Er eitthvað
hæft í þessu, eða eru diskarnir ímvnd-
un og uppspuni?
— Geimbúar eru hræddir við okkur. —