Vikan - 08.10.1959, Blaðsíða 5
Þessi mynd er úr safni Adamskis og hann spyr hróðugur
___________ gæti þetta verið annað en fljúgandi diskur.
Hvað
Franski bóndinn Simons: — Þeir
settust á akurinn hjá mér, það
get ég svarið fyrir. —
Lauritzsen flug-
kafteinn er einn
þeirra sem hafa tekið
undir með Adamski |
opinberlega.
komst liann að því, að þúsundir manna í
Bandaríkjunum liöl'ðu einnig tekið eftir þessu,
og nú tók hann að kynna sér málið nánar.
Hvað eftir annað sá hann þessi furðuverk.
og mcnn hvaðanæva úr Bandaríkjunum sögðu
honum frá því, ef eitthvað óvenjulegt sást uppi
í háioftunum.
Hinn 20. nóvember náði. Adamski, að eigin
sögn, sambandi við veru frá öðrum linetti.
Hann liehlur Jivi fram að viðlögðum dreng-
skap sínum, að þetta sé heilagur sannleikur.
Einnig votta sex manns, að frásögn Adamskis
sé algcrlega sannleikanum samkvæm. Adamslci
hafði farið í bilferð með þcssum sex út i
eyðimörk í Kaliforníu. Hann hafði farið í
þessa för af einhverri innri nauðsyn, og sjálf-
ur heldur hann því fram, að hann hafi verið
kailaður þangað.
Adamski og samferðafóLk Iians sáu nú fljúg-
andi disk. Adamski fer nú frá hinum, sem
sjá diskinn lenda i svo sem eins kílómetra
fjarlægð, og stuttu síðar kemur vera út úr
geimfarinu og talar við Adamski um hríð.
Adamski segir sjálfur, að maðurinn hafi tal-
að mál, sem hljómaði mjúkt og fallega eins
og kinverska. Málið var þeim ekki til trafala,
því að geimbúinn svaraði. hugskeytum þeim,
sem Adamski sendi honum. Maðurinn sagðist
vera frá plánetunni Venus og kvaðst vera
þangað kominn lil þess að sannfæra hann um,
að skoðun hans væri á röku-m reist.
U]i]i frá þessu náði Adamski hvað eftir ann-
að sambandi við geimbúa. Hann liefur flogið
i geimförum þeirra og heimsótt liin risastóru
móðurskip — handan við gufuhvolf jarðar.
Um þetta hefur Adamski skrifað bókina
Inside the Spaceships. Einn kaflann í þessari
bok kallar Adamski Mót við meistarann. Hann
segir þar frá samræðum sínum og gamals vitr-
ings frá Venus. Adamski skrifar orð geim-
búans:
— Sú veröld, sem þú kemur frá, er ekki
langt komin á þróunarbrautinni, en þó lengra
en ýmsar aðrar. En hún er skemmst á veg
komin i sólkerfi okkar. En í öðrum sólkerfum
finnast menn, sem eru ekki nærri eins þrosk-
aðir og þið. í sólkerfi okkar geta mennirnir
á öllum plánctum - - nema ykkar — ferðazt
nm geiminn. Skilningur ykkar á lífinu og al-
heiminum er ákaflega takmarkaður. Hug-
myndir ykkar um aðra heima eru liégómi
einn, og þið þekkið lítið til ykkar sjálfra. En
satl er það, að þið eruð óðum að þroskast.
Við, sem höfum þegar lifað lifi ykkar á þró-
unarbrautinni, viljum fúslega koma og hjálpa
öllum þeim, sem þarfnast hjálpar okkar.
Geimbúinn hcldur áfram og segir Adamski,
að enn séu jarðbúar ekki svo þroskaðir, að
þeir megi ferðast um geiminn. Ef mennirnir
gætu gert sér geimför, mundu þeir nota þau
í hernaðarskyni, og líklegt væri, að jarðarbú-
ar mundu bcita vopnum sinum gegn íbúum
annarra hnatta.
Geimbúar eru einfaldlega hræddir við okk-
ur. Við erum of óhefluð og frumstæð til þess
að beita valdi okkar út á við.
F.f bók Adamskis cr ekki annað en uppspuni
frá rótum, ætlar höfundur sér samt annað
og meira en vekja á sér athygli. Vissulega er
hókin ævintýraleg. En í bókinni er cinnig skir-
skotað tj! mannkynsins og mcnn heðnir að
lifa saman í bróðerni og hætta allri kúgun og
yfirgangi.
Alls kyns menn koma að máli við Adamski.
Sjálfur hefur hann þegið heimboð Hollands-
drottningar. Einn nánasti samstarfsmaður hans,
læknirinn Georges Williamsson, hefur oftsinnis
vcrið gestur Englandsdrottningar. Um allan
lieim aðhyllast menn Adamski og kenningar
hans. Jalnvel í Rússlandi er mikið talað um lík-
urnar á lifi á öðrum hnöttum. Fyrir skemmstu
skrifaði rússneskur vísindamaður grein i Iz-
vestia um loftsteininn mikla, sem féll fyrir 50
árum til jarðar í Síberíu. Visindamaðurinn seg-
ir, að þar hafi getað verið á ferðinni geimfar
frá Venus. Ilann rökstyður kenningu sína með
þvi að minna á ský það, sem steig upp frá loft-
steininum. Það var eins og gorkúla í laginu.
Næstu mánuði veiktusl margir í nágrenni þess
staðar, er steinninn féll til jarðar. og sjúkdóms-
einkennin voru hin sömu og i Japan eftir
kjarnasprengingarnar.
Hvaðanæva úr heiminum berast nýjar fregnir
af geimskipum, og það eru ekki einungis svik-
arar og ævintýramenn, sem þykjast sjá skipin,
heldur oft heiðvirðir borgarar.
Og enn sjást diskarnir næstum daglega. Og
oftast er naumast hægt annað en leggja trúnað
á frásagnir manna um þessi furðuverk.
Við skuhun hugsa okkur, að eitthvað sé á ferli
uppi í háloftunum. Við vitum, að þetta eru eklci
loftsteinar, og naumast eru þetta farartæki
héðan frá jörðinni.
En hvað eru þá þessir fljúgandi diskar?
Adamski heldur því fram í fyllstu alvöru, að
hann viti það. Er liahn að scgja sannleikann?
Flugnökkvinn brezki getur aðeins svifið lágt yfir höf og lönd. Sam-
borið við fljúgandi diska geimbúa er hann barnaleikfang, segir
Adamski.
Þessi mynd er eitt helzta sönnunargagn þeirra, sem trúa á fljúgandi diska.
Hún er tekin um nótt og vísindin hafa ekki getað útskýrt ljósdeplana.