Vikan - 08.10.1959, Blaðsíða 15
— — — og það nægir þjóninum — hann & sennilega
lánnkort lfka.
um IwciuUf?
steypa, American Express, slær ekki von bráðara
það met, en Það fyrirtæki gerðist aðili að lána-
kortakerfinu hinn 1. október i fyrra.
Fámennari klúbbarnir eiga vitanlega oft í
örðugri samkeppni við stærri klúbbana, og það
kemur á stundum fyrir, að þeir neyðast til að hætta
starfseminni, sökum þess að félagsmenn þeirra láta
undir höfuð leggjast að greiða reikninga sína.
Vitanlega er það einmitt þetta, sem er mesta
áhættan fyrir lánakortaklúbbana, og Það er um leið
þetta, sem veldur þvi, að þeir klúbbar geta rekið
víðtækasta starfsemi, sem mest fjármagnið hafa
á bak við sig og geta því innt af hendi greiðslur
fyrir þá félaga, sem ekki sjá sér fært að gera
svo vel frá framtalinu sinu, að þeir fái litið i
skatt, þó þeir hafi kanski mikið upp úr sér,
þeir eiga það sko ábyggilega skilið.
Eg þekki mann, sem hafði rófugarð i fyrra
og fékk upp úr honum næstum tvöhundruð
tonn, og hann þurfti ekki að borga fólkinu,
sem vann hjá honum, nema sjö krónur á tím-
ann, afþví liann fékk þetta fólk af fábjánahæli
og þetta voru hálfgerðir kjánar, sem ekki vissu
einusinni, að neinn taxti væri til. Og þegar
ég spurði liann, hvernig hann færi með allan
. þennan mikla gróða í skattinum, þá sagðist
1 liann telja gróðann fram sem tap. Og hann
lenti ekki í neinum skatti.
J En svo komust náttúrlega aðrir í þetta og
buðu í fábjánana uppúr öllu valdi, svoað það
borgaði sig ekki einusinni fyrir hann að setja
niður i vor, og hann sáði bara grasfræi i flagið.
En ég segi bara frá þessu, tilþessað menn sjái,
að menn geta ráðið því sjálfir, hvað þeir fá
mikið i skatt, ef þeir eru bara ekki cinhverjir
asnar og nenna að hugsa málið og telja gróð-
ann rétt fram.
Slys í kirkju.
KUNNINGI MINN þekkir mann, sem fór i
kirkju í vetur og festi jakkann sinn á nagla i
kirkjubekknum og reif úr honum stærðar flipa.
Nú var það náttúrlega klárt mál, að naglinn
átti ekki að vera þarna. Og afþviað þessi mað-
ur, sem kunningi minn þekkti, lenti i þvi i
fyrra, að konan hans reif kápuna sina á nagla,
sem stóð útúr grindverki hjá bænum, og fékk
kápuna borgaða eins og skot, þá fór hann til
prestsins og sýndi lionum gátið og að þetta
voru splunkuný föt, og heimtaði að fá fötin
borguð. Presturinn sagði náttúrlega, að sér
þætti leiðinlegt, að þetta skyldi liafa komið
fyrir i kirkjunni hjá sér. Það hefði aldrei
komið neitt svona fyrir hjá sér áður. Einu
sinni liefði dottið gamall maður, þegar hann
var að fara frá messu frá honum, og lærbrotn-
að, en hann hefði, sem betur fór, verið kominn
útúr kirkjunni, þegar þetta skeði.
Og liann harðneitaði þvi að borga grænan
eyri fyrir skemmdirnar á fötonum, þó hann
sæi, að þau væru splunkuný, og sér þætti þetta
mjög leitt. Maðuriun, sem kunningi minn þekk-
ir, varð þá dálítið reiður og sagði, að honum
mætti þykja það mikið leitt, ef jakkinn ætti
að verða heill af bví, — og hann hefði komið
í kirkju tilþessað hlusta á messu, en ekki til-
þessað láta rifa utanaf sér fötin á nöglum, sem
stæðu alstaðar út í ioftið, eins og hann vissi
ekki hvað, og hann mundi þá fara með þetta í
lögfræðinga. En það liefði liann ekki átt að
segja, því presturinn varð ákaflega reiður og
kallaði, svoað heilmargir af kirkjugestonum,
sem biðu fyrir utan, heyrðu, að hann mætti
fara með þetta mál í sjálfan djöfulinn sín
vegna. Hann skyldi aldrei fá grænan eyri
fyrir rifrildið á jakkanum.
Þetta var ákaflega leiðinlegt fyrir mannlnn,
sem kunningi minn þekkir, því hann ætlaðist
allsekki til þess, að allir heyrðu til, þegar liann
tálaðf um þetta mál við prestinn. Og hann er
oddfellói og búinn að vera ákaflega kirkjuræk-
inn i hálft annað ár og kominn í talsvert mik-
ið álit fyrir guðstrú og svoleiðis og hefur lagt
ínikið á sig til þess og konan hans lika.
Eg hef sjálfur séð það, livað þessi maður
og konan hans eru óheppin i kirkju, og get
borið vitni um það, ef menn vilja, að þau
byrjuðu þá engin illindi. — Eg fór i kirkju á
jóladagsmorgun, vegnaþessað þó ég sé svosem
ekki neitt sérstaklega trúaður, þá held ég samt,
að það geti minnstakosti ekki verið neitt vont
fyrir mann að fara þangað, ef maður getur ekki
sofið, hvort sem er, og langt þar til farið verð-
ur að borða.
Og þessi hjón komu inni kirkjuna, þegar
allt var orðið fullt, og þegar menn stóðu upp
tilað hlusta á guðspjallið, þá ýtti hann burtu
þremur strákum, sem sátu á fremstabekk fyrir
framan mig, tilþessað hann og konan hans
gætu setzt. Og þá rak einn af strákonum upp
þetta litla org og sagði, að konan hefði stigið
ohá sig. Og annar af hinum strákonum sagði,
s.Vo allir heyrðu, að frelsarinn hefði sagt, að
börnin ættu að koma til sín, en ekki minnzt
einu orði á feitar kerlingar.
Eg er ekki að segja frá þessu, vegnaþessað
mér finnist strákarnir hafa hagað sér neitt
þnð sJAlfir & tilsettum tlma. Framðmenn „Hádegis-
verðarklúbbsins" láta svo um mælt, að þaO séu
aöeins 3% félaga, sem standi ekkl við skuldbind-
ingar sínar.
Ekki er þaO neitt auOveldara fyrir auOuga menn
aö gerast félagar í þeim klúbb. „ViÖ kjósum mikiu
fremur venjulegan mann rneð 500 dollara innstæðu
í bankanum, sé hann traustur og áreiöanlegur, en
mann, sem á 150, 000 dollara, en á þaö til að veöja
5000 dollurum á káppreiðahest," er haft eftir ein-
um af forystumönnum. Þó er það ekki nema um
6% af þeim, sem sækjá um inntöku í klúbbinn,
sem er neitaö.
Fyrst I stað var kerfið upp tekið til aö létta und-
ir meö verzlunarmönnum, sem áttu annríkt öðrum
fremur. En það leið ekki á löngu, áöur en konurn-
ar sáu, hversu hentugt þetta fyrirkomulag var,
og það varð til þess, að lánakortaklúbbarnir tóku
þegar upp þann hátt, að giftar konur þyrftu ekki
að greiða nema hálft félagsgjald, ef eiginmaðurinn
var líka félagi í klúbbnum.
Ekki voru þó allir eiginmenn sérlega ánægðir
með það fyrirkomulag. Einn sá sig til dæmis til-
neyddan að hringja til klúbbsstjórnarinnar og fara
þess á leit, að kona hans yröi strikuð út af félaga-
skrá, þar sem hún hafði tekið upp á því að bjóða
öllum kunningjakonum sínum út til að snæða sið-
degisverð og koma það bersýnilega ekki til hugar,
að hún þyrfti nokkurn tima að greiða eyri fyrir.
Fari svo, að þú glatir kortinu eða þvi veröi
stolið af þér, er leynilögreglumanni fenginn sá
starfi að hafa upp á því. Það er nefnilega alls ekki
óhugsandi, að sá, sem komizt hefur yfir það, hag-
nýti sér tækifærið. Það mundi ekki heldur reynast
honum örðugt, eins og' allir afgreiðslumenn eru
fúsir að láta handhöfum slíkra korta allt I té: Og
hver mundi líka þora að neita handhafa slíks
korts um það, sem hann fer fram á? Það er aldrei
að vita, nema viðskiptamaðurinn sé af sömu mann-
gerð og Bandaríkjamaður sá, sem fór i veiðiför til
Afriku út á lánakortið sitt — og eyddi 1.600.000
krónum í ferðinni.
En eitt er víst: Sá, sem hefur fengið sér lána-
kort, kaupir fleira og eyðir meira en hann mimdi
annars gera.
sérstaklega illa i kirkjunni, því það er ekki
nema eðlilegt, að mönnum sárni, þegar ein-
hver stelur frá manni sæti. En mér fannst þessi
hjón alveg sérstaklega óheppin að lenda i þvi
að ýta burtu þessum stráKum, á meöan guð-
spjallið var lesið, þvi ég er sko handviss um,
aðef þau hefðu ýtt burtu stelpum, þá hefðu
þær ekki sagt orð. Og það er mjög óþægilegt
að láta öskra svona á sig og slengja svona
löguðu framan i sig í miðri messu.
Og það þori ég sko að fullyrða, að það er ekki
miuni vandi en hvað annað að fara i kirkju,
ef maður er virkilega óheppinn og það á illa
við mann einhvernveginn og maður hefur ekki
gott lag á að umgangast fólk. Og ég vildi ráð-
leggja þeim, sem vilja fá á sig orð fyrir kirkju-
göngu, að gera það ekki á stórhátíðum, heldur
venjulegum sunnudögum, þegar alltaf er skít-
nóg pláss i kirkjonum, — þó það taki kannski
dálitið lengri tíma með því móti.
I
Lykt aftur á fimmtabekk.
ÞAÐ ER næstum orðið tízka að vera alltaf
að tala um það, að einhverjir ákveðnir rnenn
séu miklu meiri fyllibyttur en aðrir. Eg veit
til dæmis um það, að margir segja, að leikarar
séu svo miklar fyllibyttur, að það sé alveg aga-
legt, og séu alltaf fullir í vinnunni. — Eg
heyrði til dæmis mann segja frá þvi núna i
haust, að þeir hefðu verið svo fullir á leik-
sviðinu, að liann hefði fundið lyktina aftur á
fimmtabekk. Þetta er nú náttúrlega eins og
hver önnur della. Það hlýtur einhver að hafa
verið iði á næsta bekk fyrir framan hann,
ellegar þá hann liefur bara sagt þetta svona,
afþviað hann er líka einn af þeim, sem þurfa
endilega alltaf að vera að segja frá einhverju
alveg agalegu. En meirasegja þó hanu hefði
nú sagt þetta satt, þá er það ekki nein sönnun
fyrir þvi, að leikararnir liafi verið útúrfullir i
vinnunni, þvi það er ákaflega misinunandi
sterk lykt af áfengi. Til dæmis romm getur
angað mjög sterkt. Og ég er viss um, að það
eru til margir menn á Islandi, sem eru eins
drykkfelldir eins og leikararnir, ef ekki ennþá
drykkfelldari.