Vikan


Vikan - 08.10.1959, Blaðsíða 27

Vikan - 08.10.1959, Blaðsíða 27
Hjéna-hjdlp í viAlögum í apríl sl. var stofnaöur liér í Reykjavík, skátaflokkur stúlkna, sem lilanl nafniS Rakettur. Hug- myndin að stofnun hans fæddist dag nokkurn, þegar 8 stúlkur voru staddar uppi á Hellisheiði. Markmið þessa nýja flokks var mjög göfugt, þær ætluðu að heimsækja sjúkt og aldrað fólk á elliheimilum, lesa fyr- ir það eða syngja. Nú eru 12 i flokknum, og þær vilja auka viðfangsefni flokksins. Raketturnar hafa margt kvöldið set- ið og velt vöngum og reynt að kom- ast til botns i vandamálinu. Hvað eigum við að gera? Jú, auk þess að heimsækja gamla fólkið, heimsækj- um við unga fólkið, tökum að okkur að gæta barna. Þegar þessi bráðsnjalla hugmynd var fengin, fór flokksvélin i gang, hugmyndir streymdu fram og voru enn að skjóta upp kollinum, þegar hlaðamaður Vikunnar hitti nolckr- ar stúlknanna að máli. Auk ]æss að vera áhugasamir skát- ar, eru þær snotrar ungar stúlkur, kátar mjög, með gamanyrði á vör- um. — Hver er foringinn, spyr ég, rétt til að segja eitthvað. — Enginn, hér eru allar foringj- ar. Við ráðum allar, en hún talar aRtaf. Þær benda á Dollý. Hún heitir annars Solveig, ekki með ó, og er l(i ára. — Ég hefi alltaf liaft áhuga á skátahreyfingunni, og hún er mitt áhugamál. Svo er ég í Gagnfræða- skóla Austurbæjar, og ég tala alls ekki alltaf. Þessu er liarðlega mótmælt. Steinunn Jónsdóttir, l(i ára, cr í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Henni þykir mjög gaman að vera skáti, því — mér þykir gaman að vera þar sem félagsstarf er gott. — Hvað gerir þú, þegar þú ert ekki i skólanum eða með Rakettun- um? — Sit heima og prjóna. Guðríður Árnadóttir er 17 ára og er ekki i skóla, vinnur á Ilótcl Borg. — ó skrifstofunni. Auðvitað er gaman að vinna með stelpunum. — Og hvað gerir ])ú, þegar þú ert ekki á fundi, og ekki að vinna? — Það cr ekkert kv'öld aflögu. Ósk og Guðný Halldórsdætur eru tviburar. — Vertu ekki að minnast á það, það er svo óttalega leiðinlegt að vera tvíhuri. Það Iialda allir að hún sé ég, segir Ósk. — Skóli? — Gagnfræðaskóli Verknáms. Sveinborg Jónsdóttir er l(i ára. - Ég fer á öll skátaböllin, hara stundum i Tunglið. Stunda nám i Gagnfræðaskóla Verknáms, og vinn í sumar i búð. Það er ágætt að vinna með Rakettunum, og liafa einhver áhugamál önnur en að skemmta sér. — Ég heiti Jóhanna Maria Jó- hannsdóttir, og láttu nafnið koma rétt, Jóhanns — ekki Jóhannesdótt- ir. Ég er 16 ára og fer i Menntaskól- ann í vetur. — Þetta er gáfnaljósið okkar, segir einliver. —- Áhugamák? — Settu mannkynssögu, segir ein i hópnum. — Svo les hún öll býsn. Frá sorp- ritum (il Islendingasagna og allt þar í milli, segir önnur. — Er verið að tala við ykkur eða mig, segir Jóhanna María Jóhanns- dóttir, ekki Jóhannesdóttir. — Og hvað svo með þessa hug- mynd ykkar. — Já, segir sú, sem alltaf talar á fundum. Við tökum að okkur að gæta barna i vetur. Þrjá daga vik- þess gegn hæfilegu gjaldi. Tekjurnar munu svo renna í sjóð okkar, en við styrkjum eina af okkur árlega til ut- anfarar á skátamót. Við ætlum að sitja hjá börnum á mánudögum, miðvikudögum og laugardögum, og við ætlum að setja þau skilyrði, að við þurfum ekki að sitja lengur en lil klukkan tvö eftir miðnætti. Gjald fyrir gæzlu verður 25 krónur til miðnættis, en 50 krónur til klukkan tvö, og auk þess verður að sjá okkur fyrir fari heim, ef svo lengi er setið. Tekið verður á móti pöntunum í síma 3 34 51 eða 3 41 33, milli klukkan 15 og 16 alla daga nema sunnudaga. Við munurn byrja þetta starf okk- ar í október, og við tökum ekki að okkur að sitja fast hjá sama fólkinu. Við viljum að sem flestir njóti þess- arar þjónustu, og hörmum aðeins, að við erum ekki fleiri. En kanski verða ekki svo margir til að not- færa sér þetta, veit það ekki. Hvað haldið ])ið lesendur góðir? J. unnar er hægt að panta okkur til Steinullarplötur og laus steinull í hvers- konar byggingar. émaagf’ið tfetur/ Þér fáið einangrunarkostnaðinn end- urgreiddan á fáum árum í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður sjálfan og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt er, og þar að auki er blýtt hús (vel einangr- að) mun notalegri vistarvera en bálf- kalt (illa einangrað). I töflunni er útreiknaður árlegur sparnaður í liita- kostnaði, ef einaugruð er 100 m2 steinplata yfir íbúð- arhæð og þak yfir plötu er óeinangrað. Sé platan ó- einangruð kostar hita- tapið árlega Sé hún ein- angruð með steinull af þykkt: verður hita- kostn. kr. og sparnað- urinn kr. Og einangr- unarefnið kostar: kr. kr. 2.500,00 6 cm steinull 9 cm — 12 cm — 400,00 270,00 225,00 2.100,00 2.230,00 2.275,00 4.400,00 6.000,00 8.000,00 Útreikningarnir eru framkvæmdir í samræmi við það sem venja er til um slíka útreikninga, og er olíuverðið reiknað kr. 1,00 pr. líter. Lækjargötu . Hafnarfirði . Simi 50975

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.