Vikan - 19.11.1959, Blaðsíða 3
og leirbull, sem misþyrmir ekki aðeins heil-
brigðri skynsemi, heldur og allri mál- og brag-
skynjun, eins og sumir þessir textar, skuli vera
látið fiœða yfir unga og gamla kvöld eftir kvöld.
Sama máli gegnir og um sum lögin, þau hafa
ekki til að bera snefil af tónlist, og eru þá hin
mun skárri, sem eru þó að minnsta kosti stæl-
ing á tónlist.
Ekkert, hvorki dægurlög, dægurlagatextar né
annar iðnaðarvarningur, verður betri fyrir það,
að um islenzka famleiðslu er að ræða. Og þá er
útlendur texti', jafnvel þótt bull sé, skárri að
því leyti til, að hann spillir þó ekki íslenzkum
brag- og málsmekk. Það kann að vera hagfræði-
legur ávinningur, að íslenzkur iðnvarningur sé
látinn hafa sérstöðu, þannig að ncytendur verði
að láta sér lynda, þótt sumt af honum standist
ekki samanburð við erlendan, en sú regla getur
ekki gilt þarna. Ef auka á flutning þessa um-
talaða útvarpsefnis, verður um leið að gera til
þess mun strangari kröfur en hingað til, svo
að það leiði ekki til smekkleysis og ómenningar.
Hlustandi.
Ég er lilustanda algerlega saminála. Mættu
fleiri gjarna láta til sin heyra um þetta mál.
List um landið — á segulbandi.
Kæra Vika.
Að undanförnu hefur Ríkisútvarpið og
Menntainálaráð sent list víðs vegar um landið,
og þarf ekki að ræða það nánar, í liverju sú
þarfa starfsemi hefur verið fólgiri.
En ekki geta allir notið slikra sendinga og
‘aldrei nema skamma stund. Mér hefur því komið
i hug að biðja þig að koma beirri tillögu á
framfæri við fyrrnefndar stofnanir, að þær
tækju upp bá starfscmi að senda list um landið
á segulbandi, þannig að völdum dagskráratrið-
um, tónlist, söng, upplestri og öðru-slíku efni,
yrði dreift kerfisbundið til afnota í samkomu-
húsum og skólum, því að þar eru mjög víða
til ágæt segulbandstæki. Þetta ælti ekki að þurfa
að verða mjög dýrt í framkvæmd, en mundi
koma að miklum notum og i mjög góðar þarfir
bæði i bæjum og sveitum.
Með kærri kveðju.
Vestfirðingur.
Mér finnst þetta athyglisverð tillaga. Er henni
hér með komið á framfæri við hlutaðeigandi
stofnanir.
Ekki nokkur sjans .. .
Kæra Vika.
Geturðu sagt okkur, hvort leikararnir Baldvin
Halldórsson og Helgi Skúlason eru enn lausir
og liðugir, eins og það er kallað.
Tveir kvenaðdáendur.
Nei, ég lield nú siður, harðkvæntir báðir
tveir. Samt sem áður mun enn eitthvert slang-
ur af ókvæntum leikurum, — en ykkur stend-
ur ekki á sama, hver er, sem ekki er heldur von.
Veðmál um Grasa-Guddu ...
Kæra Vika.
Getur þú skorið úr veðmáli? Er Grasa-Gudda
ekki til í íslenzkum þjóðsögum, eða er hún bara
til f leilcritinu Fjalla-Eyvindi?
Með fyrir fram þökk fyrir svarið.
Ey & Au.
Æ, æ, og nú hleypur hún upp í mjöðmina og
mjóhrygginn ... Grasa-Gudda er hvorki til í
þjóðsögunum okkar né liinu ágæta leikriti,
Fjalla-Eyvindi. Hins vegar lifir hún góðu lifi
þrátt fyrir bannsetta giktina i öðru ágætu leikriti
islenzku, sem Skugga-Sveinn nefnist og er sam-
ið af Matthíasi Jochumssyni. Annað mál er svo
]iað, að.Grasa-Gudda hefur hlotið veglegan sess
i meðvitund þjóðarinnar og stendur mörgum,
einkum af eldri kynslóðinni, eins Ijóslifandi
fyrir hugskotssjónum og frægustu þjóðsagna-
persónur okkar, svo að sennilega á hún sér þar
engan liættulegan keppinaut, nema ef vera
skyldi Gróa gamla á Leiti, sú merka kona í Pilti
og stúlku Jóns Thoroddsens.
vo’00 0*1'*
,VVo-.
Hljóðfsrav. Sigríðar Kelgadóttir
Vesturver - Ueykjavík - Sími: 11318
Höfum ávallt til fjölbreytt
úrval af
GÍTURUM
Viðurkennt vörumerki
Útvegum einnig og seljum
allar tegundir hljóðfæra
EINKAUMBOÐSMENN:
Við gerum örlítið frá-
vik frá hinu venju-
lega forsíðuefni að
þessu sinni og von-
um, að lesendum falli
það f geð. Við vilj-
um leggja áherzlu á
að kynna þáttinn um
hús og húsbúnað,
sem birtist í hverju
blaði Vikunnar og
forsíðumyndin er
beinlínis tilheyrandi
þættinum, sem að
þessu sinni er á bls.
15.
¥ I KiN
Útgefandi: VIKAN H.F.
Ritstjóri:
Gísli Sigarðsson (ábm.)
Auglýsingast j óri:
Ásbjörn Magnússson
Framkvæmdastjóri:
Hilmar A. Kristjánsson
Verð í lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr.
216.00 fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram.
Ritstjórn og auglýsingar:
Skipholti 33.
Símar: 35320, 35321, 35322.
Pósthólf 149.
Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Miklubraut 15, sími 15017
Prentun: Prentsmiðjan Hilmir li.f.
Myndamót: Myndamót h.f.
---------------------------------------1
3