Vikan


Vikan - 19.11.1959, Blaðsíða 18

Vikan - 19.11.1959, Blaðsíða 18
H **9l & vikuna, sinnast HrútsmerkiO (21. marz—20. apr.): Skelfilegt eiríJarleysi er þetta í þér þessa dagana. Það er eins og Þú getir ekki einbeint þér að vinnu þinni. Þetta staf- ar vafalaust af einhverju smáatviki, sem valdið hefur þér áhyggjum undanfarið, en þú gerir ^annarlega úlfalda úr mýflugu. Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí): Vikan verður tíðindalítil en ánægjuleg, þú munt lifa rólegu lífi, líklega mikið heima við. Verið getur að ástvinur þinn sýni þér talsverða ónærgætni þegar líður á en reyndu að útkljá það mál án þess að við hann — Það er ykkur báðum fyrir beztu. Þú átt von á sendingu Tvíburamerkiö (22. mai-21. júní): Það er leiðinlegt að þurfa að segja það, en allt bendir til þess að þú tapir miklu peningalega þessa viku. Líklega munt þú fá bréf eða skilaboð, sem verður þess valdandi að peningapyngjan léttist til muna. Þú rretur samt sætt Þig við það. Krabbamerkiö (22. júni-23. júlí): Þú virðist fara í að minnsta kosti eitt eða tvö samkvæmi þessa viku, sem verða þér til mikillar ánægju og upplyftingar, vegna þess að þú hefur verið í einhverj- um öldudal undanfarið. f einu samkvæminu býðst þér einstakt tækifæri, sem þú færir þér ekki í nyt. LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ág): Þú læt- ur tilfinningar þínar hlaupa með þig í gönur, einkum ertu veikur fyrir þessa viku, og skaltu forðast að taka nokkrar mikilvægar ákvarðanir. Einhver hátt- settur maður leitar til þín i vandræðum sínum, og mun þér takast að hjálpa honum talsvert. Þú virðist vera of opinskár og átt einkar erfitt með að þegja yfir leyndarmálum. Meyjarmerkiö (24 ág.—23. sept.): Ein- hver kunningi þinn er öfundsjúkur í garð þinn sakir breytinga þeirra sem orðið hafa á lifnaðarháttum þínum. Sýndu honum fram á, að þú átt þessa breytingu fyllilega skilið, annars getur þetta orðið til þess, að þessi góðkunningi þinn fjarlægist þig smátt og smátt. VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Bréfaskipti geta skipt afar miklu þessa viku, þess vegna skaltu lesa gaumgæfi- lega öll þau bréf, sem þú færð og vanda mjög bréfaskriftir. Þú kynnist rosknum manni eða konu í vikunni, sem verður ’.'ér vafalaust að talsverðu liði. DrelcamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Tæknigáfa þin fær að njóta sín þessa "iM viku. Þú munt líklega kynnast nýrri tómstundaiðju í þessarri viku, sem get- ur orðið þér til mikillar ánægju er fram líða stundir. Konur virðast gera of miklar kröfur ti! :>_-^r>gans. Bogumaöurinn (23. nóv.—21. des.): Til þín mun koma gestur, sem þú verður að stjana í kringum, þótt Þér sé það ef til vill þvert um geð. Það mun koma sér vel siðar meir. Bak við tjöldin er eitthvað að gerast þér í hag. Eitthvert kvöldið gerist það, sem þú hefur verið að bíða eftir í r. Arga mánuði. Heillatala níu. GeitamerkiÖ (22. des.—20. jan.): Þessa viku munt Þú eiga mjög erfitt um val. Einkum munu kvenmenn eiga erfitt með að veija milli tveggja vina sinna. Og ef þú hugsar ekki málið af alhug áður en þú tekur ákvörðun, getur það orðið þér til hugarangurs alla ævi. Vatnsberinn (21. jan.—19. febr.): Sam- starfsmaður þinn leikur laglega á þig þessa viku og áttu fyllilega fyrir því. Þú hefir sleglð slöku við vinnuna und- anfarið, verið utan við Þig og afundinn. Ef þetta stafar af smávægilegum heimiliserjum, skaltu alls ekki láta það á þig fá. Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Allt ætlar að leika í lyndi fyrir þér þessa viku, en þú mátt forðast að ofreyna þig ekki. Þú skuldar vini þínum bréf, sem hann bíður eftir með óþreyju ákveðinna hluta vegna. Einkum verða kvöldin í þessarri viku skemmtileg og viðburðarík. w WÁliki Elsa Maxwell, slúður- blaðakona i Hollywood, er fræg fyrir veizlur sínar. Þangað býður hún heims- frægu fólki, og allir vilja hafa Elsu góða, því að ann- ars hefnir hún sín grimmi- lega. Og sún gamla er sniðug: Hún kemst jafnan hjá því að borga brúsann, og kosta þær þó ærinn pen- ing veizlurnar hennar. Ekki alls fyrir löngu stefndi Elsa saman leik- konum og öðru stórmenni í kvikmyndaborginni. Þar kom leikkona, sem hugðist vekja athygli á þann hátt, að hún brá rándýrsgrímu á höfuð sér. María Callas óperusöngkona var einnig i veizlunni, og voru gest- irnir sammála um, að hún væri miklu líkari rándýri grimulaus. Sinfoníur rokk Þegar Krúeéff fór til BandaríkjannA á dögunum, hafði hann konuna sina með sér, hana Nínu. Það er sagt, að hún hafi kennt honum að lesa um fertugt. Nína var nefnilega kennslu- kona. Hvort það er rétt, er svo annað mál, — það hefur svo sem öðru eins verið logið upp á aumingja Krússa. En eitt er víst: Hann er nú fluglæs og harðskeyttur pólitfkus. — Nína varð mjög vinsæl í Bandaríkjaförinni. Hún kunni hrafl í cnsku og var ævinlega brosandi. Hér er hún að laga hindið á bónda sínum. Aumingia Soraya Ó-já, veslingurinn hún Soraya. Hér stendur hún umkringd börnum á barnaheimili í Teheran. Það var nú meðan hún var og hét og var keisara- drottning í Persíu. Hún horfir brosandi á börn- in og lætur eins og ekkert sé, en stuttu seinna varð hún að hrekjast frá eiginmanni sinum, sök- um þess að hún gat ekki alið honum barn, eins og frægt er orðið. Síðan hafa þau hvorugt borið sitt barr, keisarinn og Soraya. Hann er áfram í riki sínu, dapur í bragði, en Soraya dvelst lengst af í Róm eða Sviss. Hana skortir ekki fé, en lífs- hamingja verður ekki keypt fyrir peninga. Hún hefur verið orðuð við ýmsa íræga menn, síðan hún varð á lausum kili, t. d. Orsini greifa en ekki hefur orðið af hjónabandl, og Soraya er enn kona einsömul. kaupa aftur d móti lítiö. En þaö er alltaf gaman aö spila skemmtilegar plötur, — og þó, — víst er betra aö selja, auövitaö er þaö takmarkiö. Viö sjá- um sinfóníur eftir' Beet- hoven og fleiri í hilluhum, og Hjördís segir, aö þaö seljist alltaf talsvert af þeim, — en rokkiö œé '.þó alltaf númer eitt. Þið hafið vafalaust heyrt söguna um Lady Godiva í Coventry í Englandi. Hún var einhvern veginn á þá lund, að þessi fagra lady var gift grima'.um greifa, Leofric að nafni. Hann lagði þunga skatt.a á samborgara sína, og voru kvein og kvartanir yfir þeim byrðum. Kona hans sá, að ekki mátti við svo búið standa, og hótaði J*onum, að hún mundi fá sér reiðskjóta og ríða allsnakin um götur borgarinnar. Greifinn taldi, að frúin mundi ekki gera alvöru úr þessu, og hélt áfram skattheimtunni. Málið endaði á þann hátt, að Lady Godiva stóð við orð sín. Aðeins sítt hár hennar huldi nekt hennar, þegar hún reið um götur borgarinnar, og íbúarnir héldu sig innan dyra af virðingu fyrir mótmælum frúar- innar. Einn skúrkur féll þó fyrir þeirri freistingu að kíkja út um rifu á gluggatjaldi, — skyldu ekki flestir hafa gert Það nú til dags? Og viti menn: Hann varð blindur upp frá því. En þetta var nú á elleftu öld. Þeir höfðu einhvern pata af þessum atburði í bænum Ballerup skammt utan við Kaupmannahöfn nú á dögunum. Þar áttu að fara fram hátíðahöld, og undirbúningsnefndinni datt í hug að fram- kvæma álíka skrautreið gegnum götur borgarinnar og segir í sögunni. Þeir fengu sextán ára stúlkubarn, sem var fús að afla sér frægðar á þennan hátt, og ekki skorti það, að hún hafði hár mikið og fagurt. Þá var það, að lögregla bæjarins komst á snoðir um þessa ætlun, og bannaði stranglega, að skrautreiðin ætti sér stað. Vesalings stúlkan var í þann veginn að leggja af stað, en neyddist til þess að snúa við með klárinn sinn. Þegar Ingemar Johanson, heimsmeistari í hnefaleik, var hœddur og spottaöur eftir ófarirnar á Olýmpíuleikunum í Helsinki 1952, voru þaö aöeins örfáir menn, sem sáu, hvaö i honum bjó og þoröu aö taka málstaö lians. Meöal þeirra var ritstjóri blaösins Göteborgs Handels och Sjöfartstidning. Hann hefur alltaf veitt Ingemar mikinn stuöning og átt þátt í því aö gera boxarann aö þeim dýrlingi sœnskrar æsku, sem hann er. En nú hefur -ritstjórinn snúiö viö blaöinu. ÁstæÖan er sú, aö Ingemar Ihefur haft viö orö aö flytjast úr landi og setjast aö i Sviss. Hann er reiöur skattyfirvöldunum 'og finnst þau klípa helzt um of af milljónunum sinum. Ritstjórinn segir: Ingemar er oröinn api af aurum. Hann blindaöist af milljón- unum fyrir keppnina í New York. Nú liyggst hann flýja rétt- mætar álögur skattyfirvalda. Sœnsk œska getur ekki lengur tekið sér þennan mann til fyrirmyndar. — Heyrzt hefur, aö fleiri hafi tekiö í þennan sama streng. En Ingemar er farinn aö leika í kvikmyndum, og sumir telja liann eiga framtíö á þeim vettvangi. Og ekki nóg meö þaö: Ingemar er farinn aö syngja dœgurlög. Sennilega skiptir þaö ekki máli, hvort hann getur sungið eöa ekki, því aö frægöina hefur hann fyrir. Hjördís SigurÖardóttir segist vera búin' aö vera viö afgreiöslu í Fálkanum í fjögur ár eöa meira, — ýmist í liljómplötudeilainni eöa aö afgreiöa barna- vagna og kenna á sauma- vélar. Viö héldum satt aö segja, aö hún vœri 17 ára, — þess vegna tókum viö mynd af foenni meö „teen-age rock“. Svo varð sá ótta- legi leyndardómur uppvís, aö hún er 22 ára og meira aö segja trúlofuö. Viö heföum nú reyndar átt aö sjá þaö strax, — ekki var hringurinn svo Utill. Nú — jœja, — þaö er auövitaö allt í lagi aö vera 22 ára, þegar maöur er trúlofaöur, og við getum sagt ykkur þaö í trúnaöi, — ef mynd- in gefur ekki hugmynd um þaö, — aö Hjördis er bráöfalleg. Viö fengum líka aö vita, að kærastinn hennar heitir Ásgeir Hjör- leifsson og er skrifstofu- maöur. Þau ætla bráöum aö gifta sig, segir hún. Viö spyrjum Hjördísi, hvort hún fáist nokkuö viö dægurlagasöng. Hún neitar því, — segist láta sér nægja aö spila plötur. Jú, jú, hún kaus, lilca í vor, en kveöst mjög ópóli- tísk, hefur meiri áhuga á tungumálum og er nú í svipinn aö læra þýzku. Unglingarnir koma mest i búöina til þess aö láta spila fyrir sig rokkiö, — já, nærri má nú geta, —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.