Vikan


Vikan - 19.11.1959, Síða 25

Vikan - 19.11.1959, Síða 25
KVIKMYNDIR Sannleikurinn nm Rosemarie 1 þá gömlu, góöu daga, þegar Claudette Colbert var ein frœgasta kvikmyndastjarn- an, haföi hún grein í samningi sínum viö kvikmyndafélag sitt, sem hljóöaöi upp á þaö, aö félagiö skyldi borga henni 100 þúsund dollara, ef þaö léti blööin hafa mynd af henni án ihennar leyfis. 1 dag vilja flest- ar stjörnurnar glaöar borga stórfé til aö koma myndum af sér í blööin. John Saxon ,°8 Vikki Thal John Saxon varð að láta sér vaxa alskegg fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The Big Fisherman. Honum féll svo vel að hafa skeggið, að hann hélt því, eftir að mynda- tökunni var lokið. Og leikkonunni Vikki Thal, sem er mikil vinkona lians þessa dagana, virðist líka falla skeggið prýði- lega í geð. Sjaldan heíur morð þyrlað upp svo miklu moldviðri sem morð hinnar fögru, þýzku gleðikonu, Rosemarie Nitribitt, í Frankíurt. Ekki olli það þó moldviðri þessu, að ókleift reyndist að upplýsa morðið, sem þó var í sjálfu sér næg ástæða, heldur öllu fremur hitt, að meðal „viðskipta- vina“ gleðikonunnar reyndust hafa verið margir háttsettir iðnjöfrar í Þízkalandi. Það kom einnig í ljós, að aðferðir Rosemarie voru i mörgu áþekkar bandaríska símavændinu, og féll það mörgum Þjóðverjum þungt, að innan þýzks iðnaðar skyldi ekki aðeins vera að finna atvinnu- leysi og húsnæðisvandræði, heldur einig skuggahliðar sem þessa. Sennilega verður Rosemarie-málið aldrei skýrt. En það vakti á sínum tíma gífurlega athygli og var mikið rætt í þýzkum blöðum. Fyrst var gerð af því kvikmynd, sem öllu fremur var ádeila á fjármálaspillinguna en vændið. Margir urðu til þess að hefja upp raust sína og reyna að þagga málið niður, en kvikmyndaframleiðendurnir héidu því fram, að þeir hefðu fullan rétt til að ráðast á skuggahliðar þýzks þjóðfélags. Kvikmyndin var gerð, og önnur mynd fylgdi í kjörfarið skömmu síðar. Myndin, sem um ræðir hér, Sannleikurinn um Rosemarie, segir svo nákvæmlega sem unnt virðist að gera, frá Rosemarie sjálfri og ástæð- unum, sem til þess urðu, að hún hafnaði á þessari braut. 1 myndinni er reynt að sneiða hjá öllum sögusögnum, sem sprottið hafa í málinu, og sýna staðreyndir einar og sannleikann. I þessari kvikmynd eru engar „lokaðar dyr“. Einkunnarorð myndarinnar eru: Það borgar sig ekki fyrir ungar stúlkur að leita út á götuna til að draga fram iífið með því að fórna sér á altari ástarguðsins. Belinda Lee leikur aðalhlutverkið. Sextán ára gömul hóf Belinda nám í leiklist við konunglegu ensku akademíuna, og þegar hún átti fri frá námi, kom hún fram í smáleikhúsum fyrir utan London. Þar fundu kvikmyndaframleiðendur hana, og fyrsta kvikmyndin lét ekki á sér standa. Þegar frami Belindu á kvikmyndatjaldinu virtist ætla að verða mikill, íór hún að fá tilboð frá útlöndum. Til þessa hefur hún leikið í tveimur frönskum myndum, fjórum ítölsk- um — og svo kvikmyndinni um Rosemarie i Þýzkalandi. Belinda segir: — Heima í Englandi fæ ég alltaf hlut- verk hjúkrunarkonu, barnfóstru eða hefðarkonu . . . Þeim finnst ég bezt fallin til slíks. I Frakklandi létu þeir rnig leika heimskonu, og í ítalíu lék ég m. a. Lúcretíu og Afróditu. Þjóðverjar virðast hallast að svipaðri skoðun um mig og Frakkar . . . Efsta mynd: Rosemarie reyndi einnig aö kúga fé út úr þekktum iönjöfrum. ÞaÖ varö henni örlagaríkt. 1 miöju: Undir lokin var þaö á slíkum stööum, sem Rosemarie náöi sér í viöskiptavini. Neöst t. v.: Frá byrjun lagöi Rosemarie álierzlu á aö næla sér í menn, sem áttu bíl. Neöst t. h.: Ungir og gamlir féllu fyrir 'hinni fögru Rosemarie Nitribitt. Shlrley Booth Shirley Booth er talin vera framarlega í flokki þeirra bandarískra leikkvenna, sem leika á leiksviði. Hún hefur einnig leikið í þremur kvikmyndum, og var hin fyrsta þeirra Komdu aftur, Sheba litla, en fyrir leik sinn þar hlaut Shirley Óscars-verð- launin eftirsóttu. Shirley hefur barizt ötul- lega til þess að ná frama við leikhúsin á Broadway. Fram að þessu hefur hún komið fram á leiksviði í 3500 skipti í 22 leikritum og hefur unnið öll hugsanleg verðlaun fyrir leik sinn. Hún hefur nýlega lokið við að leika í kvikmynd, sem ber nafnið Hot Spell, en þar er hún í gervi móður, sem reynir að hafa hemil á óstýrilátum barna- hópi. Meðfylgjandi mynd er úr þeirri kvikmynd. Carrles og Nozoe ítalski leikarinn Folco Lulli Carries var ásamt mörgum frægum stéttarbræðrum sínum viðstaddur kvikmyndahátíðina í Cannes í ár. Þar var einnig hin undur- fagra japanska leikkona Hitomi Nozoe, og mun ekki hafa skipt neinum verulegum togum, að þau skötuhjúin urðu ástfangin, svo sem gcrist um bezta fólk. Sérlcga mun Carries hafa hrifizt af leikkonunni, og á hann að hafa lýst yfir því, að hann mundi „bera hana á höndum sér“ alla ævi. Á meðfylgjandi mvnd er hann þegar bú- inn að taka hana upp! — Ég er spenntur aö vita, hvernig áhorf- endur taka mér í gervi vísindamanns, segir Fred Astaire, sem hefur nýlokiö viö fyrsta verulega. alvarlega hlutverkiö sitt l kvik- myndinni >yA ströndinni." r 1 Hvad ko§tar að framleiða stormynd? Þeirri spurningu má svara á marg- an hátt og mismunandi, því að auð- vitað fer það mikið til eftir því, hvers konar kvikmynd um er að ræða. Til dæmis kostar „svart-hvít“- mynd, — en svo nefnast þær, sem eru ekki teknar í litum, — af venju- legri stærð ekki tíunda hluta þess, sem greitt er fyrir litmynd í Cinema- scope eða Vista-Vision og hvað það nú heitir. Og svo skiptir líka miklu máli, hverjir leika aðalhlutverkin. Sumir frægustu kvikmyndaleikar- arnir fá allt að því 750 þúsund doll- ara eða jafnvel enn meira fyrir eina einustu kvikmynd, sem þeir sýna sig i. Að þessu viðbættu heimta sumir þeirra líka prósentur af ágóða. Upptalning á þurrum tölum er yfirleitt til leiðinda í blaðagreinum, en samt ætlum við að birta hér nokkurn veginn hlutfall peninga- skiptanna við gerð „miðlungs“-stór- myndar, sem við getum sagt, að kosti 2 milljónir dollara. Af þeirri upphæð fara 250 þúsund dalir í kvik- myndahandritið, til framleiðanda og stjórnanda renna 200 þúsundir, aðal- leikarar fá í sinn hlut 250 þúsund dali og aðrir aðstoðarmenn og leik- arar 125 þúsundir. Alls kyns skreyt- ing og uppsetning kostar 125 þúsund dollara, en myndataka, hljóðupp- taka, vinna á rannsóknarstofum, búningar, tryggingar, ferðalög og klipping myndarinnar munu kosta samtals um 550 þúsund dali. Útgjöld við sjálft kvikmyndaverið munu vera um 500 þúsund dollarar. Ef þér hafið haft í hyggju að ger- ast kvikmyndaframleiðandi, væri réttara fyrir yður að kynna yður þessar tölur vandlega fyrst. vekja hvarvetna athygli: Á sýningu Norðurlandanna „Formes Scandinaves“ í París og nú síðast á „Svenska Mássan í Gautaborg hlutu þau góða dóma. SINDRA-húsgögnifl í Eldús Borðkróka Borðstofur Setustofur Biðstofur Skrifstofur Fundarsali Veitingastofur Félagsheimili Gistihús Borðin eru fáanleg með Teak eða Plast-plötu. Stólar, borðfætur og grindur eru úr gljábrenndu stáli. SINDRASMIÐJAN H.F. HVERFISGÖTU 42. Sölustaðir: Reykjavík: Stykkishólmi: Akureyri: Sindrasmiðjan h.f., Sigurður Ágústsson. Bólstruð Húsgögn. Hverfisgötu 42. Húsgagnaverzl. Austurbæjar ísafirði: Egilsstöðum: Skólavörðustig 16. Valbjörk. Sigurbjörn Brynjólfsson. Helgi Magnússon & Co. h.f., Hafnarstræti 19. Sauðárkróki: Vestmannaeyjum. Steingrímur Arason. Marinó Guðmundsson. Akranesi: Benedikt Hermannsson. Siglufirði: Keflavík: Haukur Jónasson. Gunnar Sigurfinnsson. krCnurakstur Og harðsoðin egg Mitzi Gaynor er ung leikkona, sem lék m. a. í stórmyndinni South Pacific, er margir hafa heyrt nefnda. Hún mun vera mjög fjölhæf lista- kona og getur leikið gamanhlutverk, dansað og sungið jöfnum höndum, — en fyrst og fremst kvað hún vera góð eiginkona. í sex ár hefur hún verið gift framleiðandanum Jim Bean, og er hjónaband þeirra sagt gott, en slíkt telst til tíðinda í Holly- wood vestur. Nýlega bauð Dino de Laurentiis henni mjög gott hlutverk 1 myndinni Jóvanka, og enda þótt tilboðið væri freistandi, hafnaði liún því á þeim forsendum, að það krafð- ist þess, að hún léti krúnuraka sig. — Ég gat ekki boðið manninum min- um upp á það að hafa á hverjum morgni fyrir augunum nokkurs kon- ar kvenútgáfu af Yul Brynner, sagði hún til skýringar. — Þar að auki gat ég átt á hætu, að Jim tæki mig i misgripum fyrir harðsoðna eggið, sem hann fær á hverjum morgni. Það er sagt, að syfjulegi svipur- inn sjáist varla á Victor Mature í hlutverki Hanníbals, sem hann er að leika um þessar mundir í Róm. Við hlökkum til að sjá með eigin augum þá framför og einnig að horfa á Hanníbal Mature ríða á fíl yfir Alpana.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.