Vikan - 24.03.1960, Qupperneq 3
andi fyrir stúlku að vera llkt við seglskip
— ég veil ekki. Ég veit það eitt, að það
var altitt i gamla daga að skíra seglskip
kvenmannsnöfnum, og þótti kvenmönnum
það fremur sómi en hitt. Annars getur
það farið nokkuð eftir aðstæðum — og
ekki hvað sizt hreimnum í röddinni —
hvort sú samlíking, eins og raunar allar
samlikingar, eru gerðar i niðrandi merk-
ingu eða ekki.
Geta fölsuð frimerki orðið öðrum verðmæti?
Kæra Vika.
Gctur þú sagt okkur, hvort það sé satt, að
fríraerki, sem fölsuð hafa verið með gallað-
ri áprentun, geti jafnvel orðið verðmætari
en ófölsuð frímerki, ef upp kemst? Við
spyrjum um þetta að gefnu tilefni, vegna
þess að við höfum heyrt að þess séu dæmi.
Hvað segir þú um það?
Virðingarfyllst.
Frímerkjasafnari.
Þess munu vera dœmi, að frímerki, sem
þannig hafa verið fölsuð, hafi komist í
allhátt verð meðal safnara, eftir að upp
komst, en slík fölsun mun ekki einsdæmi.
Hins vegar vill Vikan ekki skipla sér neilt
af fölsunum. sízt frímerkjafölsunum. eins
og mi er málum háttað.
Enn er spurt um kvikmyndastjörnur . ..
Kæra Vika.
Geturðu sagt mér hver var Mary Pickíord
og í livaða myndum hún lék? Og geturðu
lika sagt mér hvort hún er enn á lifi. Og
loks það, sem er eiginlega veðmál, hvort
hún hafi verið gift Doglas Fairbanks cða
verið móðir hans?
Með íyrirfram þökk.
Lína og Stína.
Mary Pickford var kvikmyndastjarna
á sinni tið, gift Doglas Fairbanks eldri og
móðir D. Fairbanks yngri. 1 hvaða kvik-
myndum hún lék — jú, þær voru vist
margar og munu allar fallnar í gleymsku
fyrir löngu, eins og kvikmyndastjarnan
sjálf. llvort hún er enn á Ilfi vitum vifí
ekki.
Eru þéringar að leggjast niður?
Kæra Vika.
Ég er dálitið hissa á þvi, hve litla athygli
það virðist yfirleitt vekja, að við erum að
leggja þéringarnar á rilluna. Unga fólkið ræð-
ur, þvi að þess er fraintíðin: það vill ekki
þéra og þá þýðir ekkert um það að fást. Okkur
eldar fólkinu finnst það dálítið eiukennilegt,
þegar afgreiðslufólk i verzlunum og jafnvel
starfsfólk í opinberum stofnunuin þúar mann,
ef það ávarpar inann að fyrra bragði, en tekur
undir þéringuna, og þá oftast með ólundar-
svip, ef maður verður fyrri til — eða þúar
eins og ekkert sé um að vcra og lætur sem
það heyri ckki þéringuna. En við þessu er,
sem sagt, ekki neitt að segja, svona verður það.
Hitt er annað mál af hverju þetta stafar.
Er það vaxandi lýðræðisandi — eða beinlínis
svona sterk áhrif l'rá enskunni og enskri og
bandarískri menningu. Ég lield það síðar-
nefnda, því að yfirleitt held ég að ungl fólk
nú sé sízt lýðræðissinnaðra en við vorum á
jiess aldri.
Virðingarfyllst.
Nátttröll.
Nei, það er satt, við þessari þróun er
vist ekkert að yera, enda held ég að fáum
sé raunverulega eftirsjá í þéringunum, þótl
eldra fólk kunni því miður, þegar ungt
fólk þúar það. Eins ag það, að fólk getur
sýnt fyllstu kurteisi á allan hátt, þótt það
þúi. Áhrif frá ensku og menningu ensku-
mælandi þjóða ■—■ eflaust það fyrst og
fremst: þessi þróun var að minnsta kosti
ekki jafn áberandi mcðal ungs fólks á
meðan við stóðum i nánustum tengslum
við Norðurlöndin og norræn menningar-
áhrif þóttu eftirsóknarverð.
VIItA\
Ótgefandi: VIKAN H.F.
RITSTJÓRI:
Gfsli Sigurðsson (ábm.)
AUGLÝSIN GASTJÓRI:
Ásbjörn Magnússon
FRAMKVÆMD ASTJÓRI:
Hilmar A. Kristjánsson
Vcrð í lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr
216.00 fyrir liálft árið, grciðist fyrirfram.
Ritstjórn og auglýsingar:
Skipholt 33.
Simar: 35320, 35321, 35322.
Pósthólf 149.
Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Miklubraut 15, simi 15017
Prentun: Hilmir h.f.
Myndamót: Myndamól h.t'.
Eitthvert ,,alvarlegl lag“ á milli...
Kæri póstur.
Ég er einn af þeim mörgu, sem kánu ilta
við þegar danslög eru ieikin strax á eftir
passíusálmunum, jafnvel þótt einhver smá-
þögn sé á miUi. Hvernig væri að leikið yrði
eitthvert alvarlegt lag á eftir sálmalestrinum,
en síðan gætu svo danslögin hafizt. Hvernig
lízt þér á það?
Virðingarfyllst.
Hlustandi.
Okkur lízt vel á þetta, og komum þvi
hérmeð á framfæri.
SöluuniboS:
BEZTA
EINANGRUNIN
GEGN
HITAOG KULDA
J. ÞORLÁKSSON OG NORDMANN H.F.
Bankastræti 11. — Skúlagötu 30.
— l»að hefur víst stiflaat í hcnttt
vatnsleiðslan.
— Alkóhólið drepnr þig á löngnm tfma_____
— Eftir langait tfma rerð ág damðnr
hvort eS «r. —
VIKAN
I