Vikan - 24.03.1960, Blaðsíða 25
„Vansinn er minn draumur,
dansinn er mitt Ittf'
Þeir, sem eitthvað hafa í'ylgzt með íslenzkri dansmennt undanfarin
ár, kannast eflaust við Jón Valgeir og Eddu Scheving. Þau hafa verið
einhverjir eftirsóttustu skemmtikraftar, scm komið hafa fram síðast-
liðin ár, og varla er sá áliorfandi til, sem liefur ekki hrifizt af fáguðum
og öruggum dansi þeirra og óvenju-glæsilegri sviðsframkomu.
Jón Valgeir Stefánsson er fæddur árið 1934, — hafnfirzkur að ætt.
Hann hóf dansferil sinn í þjóðdansasýningum á skólaskemmtunum, en
16 ára gamall iióf liann ballettnám lijá Sigríði Ármann.
I il Spanar for Jon liaustið 1956 til náms í spænskum dönsum og
var hjá hinum fræga danskennara Juan Magrina. l>aðan lá svo leiðin
til Kaupmannahafnar á þekktasta dansskóla Norðurlanda, Institut
Carlsen, en þar var hann í eitt ár. Einnig var hann i einkatímum hjá
konunglega ballettmeistaranum Birgi Bartholm. Haustið 1958 tók Jón
Valgeii siðan lokaprof fra skolanum i öllum greinum danslistarinnar
með ágætiseinkunn.
Veturinn 1958—59 starfaði Jón við danskennslu hér í Reykjavik, en
fór siðan aftur utan til Danmerkur um vorið, ráðinn til að skemmta
í Tívolí í Kaupmannahöfn. Gat hann sér þar mjög góðan orðstír, _____
meðal annars bauðst honum danshlutverk i söngleiknum My Fair Lady,
sem hann gat þó ekki þegið. Þess má geta, að Jón hefur lagt gjörva
hönd á fleira en danslistina. Hann cr t. d. iþróttakennari að mennt
og hefur réttindi lil þess ,að kenna handavinnu.
Edda Scheving er Vestmannaeyingur, en kom til Reykjavikur
árið 1948 og nam danslist hjá Sif Þórs og Sigríði Ármann
og síðan í ballettskóla
Þjóðleikliússins. Eftir
nokkurra ára hlé á dans-
inum — vegna veikinda
— gerðist hún svo nem-
andi Jóns Valgeirs og var
honum einnig samtiða á
Institut Carlsen í Kaup-
mannahöfn, en þaðan út-
skrifaðist Edda sem dans-
kennari.
Sl. haust setti svo Jón
Valgeir á stofn dans-
skóla, sem hefur verið
mjög eftirsóttur, enda
liinn eini hérlendis, sem
veitir kennslu í öllum
greinum danslistarinnar.
Skólinn er ávallt fullskip-
aður nemendum, og kom-
ast færri að en vilja.
Jón Valgeir og Edda
munu fara utan til Dan-
merkur á sumri komanda
og sitja þar þing Dans-
kennarasambands Norð-
urlanda til að kynna sér
ýmsar nýjungar, sem
I ram hafa komið í lieimi
danslistarinnar á þessu
ári. *
Vikan mun seinna heimsækja þau
Jón og Eddu í dansskólann og
birta frásögn með
myndum af starfinu þar.