Vikan - 24.03.1960, Blaðsíða 26
i
Fara þeir til Róm?
Framh. af bls. 12.
sinn. Við fréttum, að langhlaupar-
arnir h’ypu oft í viku inn á Vatns-
enda, þetta 15 km í einum spretti.
Þeir ættu að geta náð langt í sumar
og metin standa varla lengi. Helzt
var að heyra, að einhver deyfð væri
meðal spretthlaupara og þeir mundu
varla margir, sem færu undir 11
sek. i sumar með sama framhaldi.
„Hilmar varla farinn að sjást á æf-
ingum,“ sögðu þeir. Annars æfir
Hilmar með Ármanni, og hann get-
ur verið kominn í stinningsþjálfun,
þótt KR-ingar viti það ekki. Hins
vegar höfðu þeir þær véfréttir úr
ÍR, að Vilhjálmur æfði mjög vel og
margir fleiri úr því liði. Kastararn-
ir eru þolnastir. Þeir voru þarna
tveir, sem lengi hafa verið á topp-
inum: Huseby og Friðrik, og Löve
er ekki setztur í helgan stein held-
ur. Þórður var búinn að raka af
sér skeggið, en ekki er víst, að það
hafi áhrif á sleggjuna.
Eftir að við höfðum horft á þessa
ströngu æfingu hjá KR-ingum vakn-
aði áleitin spurning: Er þetta æski-
iegt? Ég á ekki við iþróttaæfingar
yfirleitt — innan skynsamlegra
takmarka. Þá cr það sport og
skemmtileg tilbreyting. Svona æf-
ingar eru ekki sporl. Þær eru ein-
ungis þrælavinna. Þegar farið er að
stunda iþróttir eins og vinnu og
æfa á hverjum degi, hvernig sem
viðrar, þá hafa menn varla þá sömu
ánægju af íþróttinni og þeir, sem
einungis iðka íþróttir sér til gam-
ans án nokkurra takmarka eða fyr-
irheita um ný met. Við þessu er þó
ckkert að segja, meðan til eru menn,
sem vilja láta meðhðndla sig eins
og tilraunadýr eða öllu heldur vél-
ar til þess að ná ákveðnum árangri.
Þeir gera það varia nema hafa af
því cinhverja ánægju. Fordómar
eru ævinlega varasamir, og ef til
vill finna hinir stæltu iþróttamenn
af því meiri fróun að taka tuttugu
og fimm hnébeygjur með mann á
herðunum en venjulegir menn af
þvi að fá sér góðan vindil e“ða lögg
( glas. g.
■&: tsar'A"-'
,ÍV
A
TAPAO
A
TAPAÐ AÐ EILÍFU er það fé sem ekki kemur inn í fyrirtæki yðar í dag. TAPAÐUR ágóði
kemur ALDREI aftur. Komið í veg fyrir ágóðatap, liggið ekki lengur með vöruna en
frekast er unnt, vextir eru háir og dýrir fyrirtækinu, umsetjið hraðar. Náið til kaupendanna
á eínfaldasta og ódýrasta hátt, auglýsið í VIK U N N I.
VIK A N kemur VIK U eftir VIK U inn á flest heimili landsins og er lesin af flestum
þeim sem kaupa vörur og þjónustu í landinu.
26
VIKAN