Vikan


Vikan - 28.04.1960, Blaðsíða 24

Vikan - 28.04.1960, Blaðsíða 24
veitir yður fullkomio permanent og greiðslu að eigln vali—og það er Even-Flo hárliðunarvökvinn, sem leysirallan vandann Hið dásamlega nýja Toni gerir yður ennþá auðveldara en yður gat áður grunað, að setja permanent i hárið heima og leggja :það sið- an að eigin vild, — en það er Even-Flo harliðunarvökvinn, sem leysir allan vanda: — þvi hann hæfir öllu hári og gerir það lett og lifandi, sem I raun og veru er aðal- atriði fagurrar hargreiðslu, varanlegs og endingargoðs permanents. hvao er auðveloara? Fylgið aðeins hinum einföldu leiðbeining- um, sem eru i islenzku, og permanent yðar mun vekja aðdaun, vegna þess hve vel hef- ur tekizt að gera bylgjurnar léttar og lifandi. gentle fyru auðliðaö hár super fyrir erfitt hár REQULAR fyrir venjulegt hár VELJIÐ TONI VIÐ YÐAR HÆFI. Einn af vinsælustu bandarísku rokksöngv- urunum nú er hinn 16 ára Fabian — eða „The Tiger", eins og hann er oft nefndur, Því að fyrsta lagið, sem gerði hann frægan, var einmitt rokklagið Tiger. Hann býr I Fíladelf-íu, í sömu götu og annar þekktur rokksöngvari, Frankie Avalon, og það varð einmitt til þess, að Fahian var uppgötvaður. Það var einn dag, að „stjörnuleitararnir" Marucci og de Angelis komu gangandi eftir strætinu, sem þeir félagar, Frankie og Fabian húa við. Þá komu þeir auga á Fahian, sem stóð við dyrnar heima hjá sér og reykti sígarettu. „Uppgötvararnir" sáu strax, að hann var ágæt „týpa“, gengu til hans og spurðu, hvort hann gæti sungið. Það vissi Fabian ekkert um, en hann lofaði að koma tli upptökusalarins og láta reyna sig. Og hann kom, — var reyndur — og fékk samn- ,ing á stundinni. Hann söng strax inn á nokkrar hljómplötur, sem brátt náðu geysi- legum vinsældum og seldust í milljónaupp- lagi. Og nú ógnar Fabian jafnvel sérstöðu Elvis Presleys á bandarískum hljómplötu- markaði, — en það er víst ekki á allra færi. ± Dansskóli Jóns Valgeirs í 12. tbl. Vikunnar birtist greinarkorn um þau Jón Valgeir og Eddu Scheving og þar minnzt á, að birtar yrðu seinna myndir úr dansskóianum. Hér reynum við að standa við þetta loforð, þótt þessar svipmyndir á síðunni hér á móti gefi ekki nema örlitla mynd af þeirri yfirgrips- miklu og fjölbreyttu danskennslu, sem þau Jón og Edda hafa annazt undanfarið. Myndirnar voru teknar í Breiðfirðinga- bóð, en þar hefur dansskólinn verið að miklu leyti til húsa í vetur. 24 V I K A N FABIAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.