Vikan


Vikan - 19.05.1960, Page 13

Vikan - 19.05.1960, Page 13
hve illilega Cathy var korain i klærnar á Roger Smith. En svo kom í ljós, að morfín vantaði i lyfja- skápinn á deildinni hjá Cathy. Þar hafði yfir- hjúkrunarkonan einnig í grandaleysi lánað Cathy lykilinn, þegar þurfti að ná i lyf handa sjúklingunum. En gagnstætt Penny hafði lijúkr- unarkonan upplýst, að Catliy hefði haft aðagng að skápnum. Og að undangenginni rannsókn kom i ljós, að unga stúlkan var orðin eitur- lyfjaneytandi, — að vísu aðeins á byrjunar- stigi, en nóg til þess, að henni var vísað úr starfi tafarlaust. En Penny kom því til leiðar, að málið var ekki kært til yfirvaldanna. Hún lofaði að hafa auga með ungu stúlkunni, en það hafði reynzt erfiðara en hún ætlaði. Hún liafði talið, að Roger mundi slita öllu samhandi sínu við Cathy, jjegar hún hefði ekki lengur aðgang að eitur- lyfjum, og þar með væri Cathy bjargað. En svo auðvelt var málið ekki viðfangs. Með því að gera Cathy að eiturlyfjaneytanda hafði Roger veitt hana tryggilega í net sitt. Þetta var hinn venjulegi gangur málanna, en Penny undr- aðist, hversu oft þetta virtist heppnast. Strax og menn byrjuðu að neyta eiturlyfja, sljóvgað- ist skynsemi þeirra og velsæmistilfinning. Og jafnvel stúlka eins og Gathy hafði látið ánetj- ast. Og Cathy var nú þegar sokkin svo djúpt, að hún 'gekk á milli læknanna og gerði sér upp alla mögulega verki, aðeins til þess að komast yfir lyfseðla fyrir eiturlyfjum. Þegar Penny komst að þessu, beindi hún öllu viljaþreki sínu að því að reyna að bjarga vinstúlku sinni úr klóm þessarar óvættar, og nú var hún farin að trúa því, að sér mundi heppnast það. Cathy hafði ekki snert morfín í heilan mánuð, og sem hjúkrunarkonu var Penny vel ljóst, hve mikillar sjálfsfórnar og hugrekkis slíkt krafðist. Eitur- lyfjaneyzla var ekki einungis sem brött brekka, heldur einnig sem svellhál brekka, sem mjög auðvelt var að renna niður, — en næstum ó- gerlegt að klifa. Það var ekki svo lítils um vert, að Cathy hafði stillt sig í heilan mánuð, og Penny var farin að trúa þvi, að nú væri þessi martröð liðin hjá. En nú fannst henni liún ekki vera eins ör- ugg. Cathy liafði alltaf hringt i hana daglega og látið vita um sig. En nú liafði Penny ekki heyrt frá lienni í heila viku. Penny steig úr sporvagninum við Angelfield og hélt fótgangandi af stað áleiðis til sumar- hússins, sem Cathy hafði tekið á leigu um óákveðinn tima. Hún hafði nú reyndar haldið, að Roger mundi útvega Cathy einhvern betri samastað — eftir allt, sem þau liöfðu átt saman að sælda. En nú loks var Cathy orði^ ljóst, hversu viðbjóðsleg manngerð Roger hafði verið. Gaslyktin gaus á móti Penny, þegar hún lauk upp útidyrunum. Lykilinn hafði Cathy fengið henni, síðast þegar þær höfðu hitzt. — Mér finnst ég vera öruggari þarna út frá, ef ég veit, að þú liefur lykil að útidyrunum, — hafði hún sagt og litið á Penny augum, sem lýstu ótta eða skelfingu við eittlivað voveiflegt. En hún liafði ekki viljað skýra það nánar. ■ í ofboðsflýti opnaði Penny allar dyr og glugga upp á gátt. Síðan hljóp hún inn i stof- una, þar sem Cathy lá hreyfingarlaus á legu- bekknum. Allt lif var slokknað fyrir mörgum klukkustundum. — Cathy hafði skrúfað frá gasvélinni án þess að kveikja á henni. Við hliðina á legubekknum lá samanvöðlað pappírsblað. Penni tók það upp af gólfinu, slétti úr því og stautaði sig fram úr næstum ólæsi- legri skriftinni. Mér er vel Tcunnugt um, aö þú fékkst lof- orö um aö mega hefja störf þín aö nýju á spítalanum, þegar þú hefur náö þér fylli- lega aftur. Mér finnst þaö einnig vel til fundiö. Þú gerir áreiöanlega meira gagn þar. Þú skalt ekki halda, aö þú losnir viö mig núna, einmitt þegar ég get fariö aö hafa not fyrir þig aftur. Ég hef alveg nóg af lyfseölum meö þinu nafni og sönnunum, hvernig þú útvegaöir þér þá, til þess aö koma þér í fangelsi. Og þú skalt ekki halda, aö jafnvel þessi yndislega yfirlijúkrunar- kona þín vilji nokkuö meö stúlku hafa, sem setiö hefur inni fyrir slíka hluti. Nei, þú skalt heldur gera eins og ég segi þér, vina mín, og þá getum viö haldiö áfram aö vera góöir vinir. Þú skalt heimsœkja vinkonu þína á sjúkrahúsínu og reyna þannig aö ná í svolítiö meira af góögœti. ÞaÖ kemst ekki upp, ef þú gœtir þess aö taka ekki of mikiö í einu. Þetta er mín eina von eins og stendur, svo aö þaö er eins gott fyrir þig aö fara aö hefjast handa, nema þig langi ef til vill í smágöngutúr meö MacFarlane. Ég býst viö þér í kvöld ... Það stóð eitthvað meira á miðanum, en það var alveg ólæsilegt. Og Penny hafði séð alveg nóg. Nú skildi hún allt. Cathy hafði fremur kosið dauðann en láta undan einu sinni enn þá. Og liún hafði ekki komið auga á neina aðra Framhald á bls. 28. VIK A N 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.