Vikan - 19.05.1960, Síða 23
Fyrir hverju er draumurinn?
Nú hafið þið tækifæri til þess að fá rétta ráðningu á draumum. Um það sér drauma-
ráðningamaður, sem VIKAN kemur ykkur í samband við. Utanáskrift: VIKAN, póst-
hólf 149.
Mig dreymdi.
Að ég og systir mín vorum að ganga upp götu,
sem var nokkuð löng og upp i móti að fara og
beygði til vinstri fyrir húsliornið. Á vinstri hönd
við fortóið var stór bygging sem var meðfram
allri. götunni og var hún grá að lit eins og gata
þegar við höfðum gengið mjög stuttan spöl,
fannst mér við nema staðar fyrir miðjum tröpp-
um, sem lágu niður í kjallara hússins (4 tröppur
niður), en i tröppunum stendur maður, sem ég
aðeins liefi séð nokkrum sinnurn (hann er sjó-
maður). Hann var hár, og með dökkt hár í
svörtum frakka og svörtum skóm. Stóð hann
með öðrum fœti í 3. tröppu hinum i þeirri neðstu.
Starði hann svo í augun á mér bæði nístandi
og kuldalega. Stóð mér svo mikill stuggur af
Athugið
Ráðning' á draum kostar 20 krón-
ur, nema menn vilji fá skriflegt svar
beint frá draumráðningarmanninum.
Þá kostar ráðningin 50 krónur.
honum að ég titraði af hræðslu er ég vaknaði
og var hálf hrædd við manninn næst er ég sá
hann.
Ég tek fram að við gengum eins utarlega á
fortóinu og við gátum. Systir min nær götunni
ég nær tröppunum. Við leiddumst og vorum eins
klæddar i ljósum hálfjökkum.
Það er mér forvitni að fá þennan draum ráð-
inn.
Ein draumlind.
Svar til einnar draumlindrar.
Draumurinn er athyglisverður og ekki
þætti mér ósennilegt að þú berir hlýjan hug
til piltsins. Rómantíkin og ástin á sér marga
dvalarstaði og fáir munu þeir staðir meir
notaðir af elskendum en stigar til að heilsast
og kveðjast. Sennilega þætti mér eftir
draumnum að til nánari kynna gæti dregið
hjá ykkur ef þú heldur rétt á spilunuin. Vafa-
laust er þetta ágætur náungi, sem þú undir
niðri óttast að yrði skeytingarlaus um þig.
Ég vildi því ráðleggja þér að kappkosta alúð
og vingjarnleik við hann og reyndar hvern
sem er, því það hjálpar manni ósegjanlega
til að ná settu marki. Þú muní brátt komast
að raun um að þetta er rétta leiðin.
Þér er sem sagt alveg óhætt að leggja óttan
niður, sem stafar frá draumnum, því hann
byggist aðeins á þeirri ímynd þinni að þú
missir af piltinum. Þetta fyrirbrigði mun vera
nokkuð algengt hjá stúlkum og er ekkert nema
eðlilegt ef svo mætti að orði kveða. Þegar
stúlkur komast á þennan aldur þá eignast
þær venjulega sína draumaprinsa og hugsa
oft talsvert um þá. Draumaheimurinn er ó-
fallvaltasti heimurinn, sem við þekkjum óg
þær skýjaborgir, sem við reysum eru ekki
háðar neinum efnislegum takmörkunum og
er því oft okkar sætasti heimur. Þennan
rómantíska heim eiga piltarnir líka og hver
veit nema pilturinn hugsi einnig harla hlý-
lega til þín.
Kæri Draumráðningamaður.
Mig dreymdi að ég væri í kirkju við altaris-
göngu, en altarið f þessari krikju var ekki eins
og venjuleg altör í krikjum. Það voru stólar með
háum bökum i kringum það. Svo fannst mér allt
fólkið vera farið upp að altarinu, nema ég. Þá
gekk ég upp þrepin, sem lágu upp að altarinu,
en þá sá ég mann i grárri skykkju með hettu,
mér fannst hendin á honum vera kringlótt
fremst, þar sem fingurnir og handarbakið er á
öðrum mönnum og var vafið svörtu efni utan
um handlegginn nema þetta kringlulaga. Mér
Framhald á bls. 31.
— Hvaða maður er nú svona í framan? — segja eldri menn grátklökkir, þegar
þeir sjá hin alkunnu portrett Picassos. Það var svo sem munur, hvernig Þórarinn
B. Þorláksson og Ásgrímur Jónsson máluðu. Það er vafamál, hvort sjálfur Picasso
taki málið svona alvarlega. Hann er ef til vill að gera grín að hneykslunargjörnum
smáborgurum. Kvenmaðurinn hjá myndinni hefur líklega verið fyrirsæta eftir
andlitinu á henni að dæma.
Á myndinni til hægri er annað listaverk eftir annan málara. Þessi mynd er
máluð á vegg í bæjarstjórnarsalnum í Reykjavfk og er eftir Jón Engilberts. Það er
næstum því eins og hann hafi haft fyrir framan sig skipulagskort af bænum.
Vegir kúnstarinnar
eru...