Vikan


Vikan - 19.05.1960, Page 28

Vikan - 19.05.1960, Page 28
— Nei, hann er knattspyrnuþjálfari — hann er vanur að koma á útsöl- una til þess að læra ýmis brögð. — Hann gleypti segulstál, herra læknir. ekkert aðhafzt. — Hann var slunginn, og við höfðum engar sannanir ... — Nú, sagði Penny. — Vissi Cathy, að þið ... — iHana grunaði það. En Cathy var hrædd við okkur. Á stofugólfinu hjá henni fundum við samanvöðlað bréf, þar sem Roger hótar henni öllu illu. Þess vegna drap hún hann. Penny starði á hann alveg orðlaus. — Þið haldið þó ekki, að Cathy hafi ... — Við erum fullvissir um það. Hún gaf hon- uin innspýtingu af benzíni. Við fundum plast- hylki með örlitlu af benzíni á tröppunum hjá honum. — Cathy átti það ekki, sagði Penny rólega. — Það var ... — Við vitum, að Cathy gerði það, tók Mac- Farlane fram í fyrir henni. — Við fundum för eftir skóna hennar á gólfinu í herberginu hans, og það var leðja úr innkeyrslunni á skónum hennar. Þetta mál var ckki erfitt að leysa, og það verða engin réttarhöld, engin liegning. I.ögin segja líf fyrjr lif, og Cathy tók aðeins ómakið af böðlinum. Reikningsskilin standa jöfn. MacFarlane leil loksins á Penny og horfði lengi fast í augu henni. — Reikningsskilin standa jöfn, endurtók hann. Enginn gdur gert Cathy neitt illt framar. Penny sat sem stirðnuð og starði á hann. Hugsanirnar flugu gegnum höfuð hennar. Hún opnaði munninn og ætlaði að segja eitthvað, en þá tók hann enn fram í fyrir henni. — Annars kom ég hingað með hanzkana yð- ar, sagði hann. Þér gleymduð þeim í bílnum hjá mér um kvöldið, sem Cathy dó. Hann dró hanzkana upp úr vasa sínum, — hanzkana, sem kona hans hafði saumað og gefið Penny sem þakklætisvott fyrir að bjarga lifi Jeanne litlu. — Þeir höfðu skitnað svolitið út, sagði Mac- Farlane, svo að ég hreinsaði þá — upp úr benzíni. — Þakka yður fyrir, sagði Penny. Þakka yð- ur kærlega fyrir MacFarlane. Tækni gegn glæpum Framhald af bls. 5 aði til konu sinnar, og hinir farþegarnir, 39 tals- ins, voru í óða önn að kaupa ferðatryggingar á flugstöðinni. Ungur maður fylgdi móður sinni að flugvélinni ásamt konu sinni og barni. Hann bar farangur hennar að flugvélinni og kyssti hana síð- an í kveðjuskyni. Flugvélin hófst á loft, og litlu síðar sveimaði hún eðlilega í 1900 metra hæð. En þegar ellefu mínútur voru liðnar frá flugtaki, sprakk flugvélin i loftinu! Síðar um kvöldið bað læknir flugfélagsins FBI um aðstoð við að greina sundur likin. 1 bæki- stöðvunum í Washington er sérstök deild, sem veitir aðstoð í slíku tilfelli, og voru menn þegar sendir á vettvang með fingraför þeirra, sem vitað var, að tekið höfðu sér far með flugvélinni. Þegar likin höfðu verið könnuð og þau þekkt, settust aðrir sérfræðingar FBI á rökstóla með starfs- mönnum flugumferðarstjórnarinnar, flugfélags- ins og verksmiðjanna, sem smiðuðu flugvélina. Þeirra verkefni er að finna orsök slyssins, ef Það er unnt. Var hún mistök flugmannsins, smíðagalli eða skemmdarverk? Hið síðastnefnda virtist fyrst i stað ákaflega ólíklegt. Akrinum, þar sem flugvélarbrotin höfðu fallið, var skipt niður í svæði, sem öll voru rannsökuð nákvæmlega. Flugmenn úr flugherstöð skammt frá fóru yfir akurinn og tíndu upp alla flugvélar- hluta og farangurs, hversu smátt sem það var. Ætlunin var að setja saman brotin, sem i leit- irnar kæmu, í vöruskemmu við flugvöllinn og reyna þannig að finna orsök slyssins. Flugvélar- brotunum var raðað niður af mikilli nákvæmni og kunnáttu og Þau fest saman og skrúfuð, og brátt var þarna kominn risastór flugvélarskrokk- ur. En hvernig sem leitað var, fannst enginn hluti til að fylla í skörðótt op fyrir aftan inngöngu- dyrnar í fiutningsklefa flugvélarinnar nr. 4. — Þannig varð ljóst, að sprengingin hafði ekki getað komið frá benzíngeymunum, því að augljóst var, að hreyfiarnir fremst í flugvélinni voru í gangi, þegar sprengingin varð. En loks fundust litlar málmagnir úr opinu, og í Því voru rákir af undar- legu, gráu dufti. Tekin voru af því sýnishorn og flogið með þau til FBI-rannsóknarsafnsins í Washington, þar sem þau voru rannsökuð. Niður- staða rannsóknarinnar var þessi: „Sýnishornið ber greiniiega vitni um dýnamítsprengingu." — Þetta bei\ti til þess, að um skemmdarstarfsemi hefði verið að ræða, og ekki voru margar klukku- stundir liðnar, þegar rúmlega 100 FBI-menn voru komnir á vettvang. Nokkrir þeirra voru sendir til Denver, og þar hófu þeir mestu mannaveiðar, sem um getur í sögu bandarískra flugmála. Hver var tilgangurinn með sprengingunni? Hver hafði getað framkvæmt og skipulagt slíkan glæp, sem var allt að því fullkominn? Nákvæm rannsókn var gerð meðal skyldíólks og vina hinna látnu, og leitað var i skjölum FBI að upplýsingum um fyrri afbrot, ef einhver væru. Smám saman þrengdist rannsóknarhringurinn, og þeim, sem grunaðir voru, fækkaði, og hvert nafnið af öðru á listanum yfir þá, sem grunaðir voru, var þurrkað út, þar til eftir var Jack Graham. Það var ungi maðurinn, sem fylgt hafði móður sinni aö flugvélinni og kysst hana, áður en hún steig upp í vélina. Grunur beindist fyrst að hon- um, þegar ferðataska frú Daisie King, móður hans, fannst hvergi — eða ekki annað en smábrot úr henni hér og þar. Handtaska hennar fannst aftur á móti, og í henni var blaðaúrklippa frá 1951. þar sem lögreglan lýsti eftir Jack Graham vegna fölsunar. Þeir, sem þekktu Graham, voru yfirheyrðir, og þannig fékkst athyglisverð vitn- eskja. Það kom í ljós, að hann hafði oft átt í harðri orðasennu við móður sína, en hún var eigandi veitingahúss, sem hann veittj forstöðu, Skýrslur sýndu, að hann hafði lært skemmdar- verkastarfsemi, þegar hann gegndl herþjónustu I flotanum. Kona hans sagði, að skömmu áður en þau lögðu af stað til flugvallarins, hefði maður hennar farið með gjafaböggul niður í kjallara heima hjá þeim, þar sem frú King var að setja niður farangurinn. Siðla dags nokkrum dögum síðar gekk FBI- maður á fund Grahams. Hann ávarpaði Graham þessum orðum: „Ég vil, að Þér vitið, að þér hafið ákveðin réttindi. Dyrnar þarna eru opnar. Þér megið ganga út, hvenær sem Þér viljið. Og þarna er sími. Þér getið hringt á konu yðar, lögfræðing eða hvern þann annan, sem þér viljið. Þér þurfið ekki að segja okkur neitt, — og ef Þér segið okkur eitthvað, verður það notað gegn yður í réttinum. Það verða engar hótanir hafðar I frammi né loforð gefin, meðan við tölum við yður. Sprengduð þér upp flugvélina til þess að drepa móður yðar?“ „Nei, ég gerði það ekki,“ svaraði Graham. „Hafið þér þá nokkuð á móti því, að við leitum í húsi yðar?“ spurði fulltrúinn. „Þér skuluð leita, ef þér viljið, ég hef engu að leyna.“ Leitin var nákvæmari en Graham hafði grunað. 1 vasanum á einni af skyrtunum hans fannst vír- lengja, — sams konar og notuð er til að sprengja dýnamít. Við nánari leit fannst jafnvel enn mikil- vægara sönnunargagn. Það var 37,500 dollara líf- tryggingarvottorð, undirritað af móður hans, og átti að greiða Graham upphæðina við dauða henn- ar. Og enn var leitinni haldið áfram. Afgreiðslu- maður i verzlun skammt frá, sem selur dýnmít, þekkti andlit Grahams af Ijósmynd. Þá fundust hlutir, sem búast hefði mátt við, að móðir hans hefði tekið með sér í ferðina, og hefðu þeir hæg- lega getað rúmazt í „gjafapakka" Grahams. Eftir því, sem hringur óyggjandi sannana þrengdist utan um Graham, brást mótstöðuafl hans, og loks kom að því, að hann gafst upp. „Allt í lagi. — Hvar viljið þið, að ég byrji?“ spurði hann. „Hvar sem Þér viljið," var svarað. Og nú leysti hann frá skjóðunni, og hraðritari tók niður játningu hans. Þegar því var lokið, skrifaði hann undir framburð sinn. Kallað var á lækni til að rannsaka hann og fá læknisvottorð um, að engu ofbeldi hefði verið beitt til að fá hann til að játa. Því næst var hann fenginn í hendur yfirvöldum Colorado-fylkis, svo að unnt væri að leiða hann fyrir dómstóíana, ákærðan fyrir morð. Hvergi var smugu að finna i sönnunargögnum og játningu ákærða, svo að kviðdómurinn þurfti ekki nema 72 mínútur til að kveða upp úrskurð sinn. Hann var: Sekur um morð af fyrstu gráðu! Þannig lauk þessari tilraun til að fremja hinn fullkomna glæp. Skarpar ályktanir, dregnar af staðreyndum, áttu nokkurn þátt í lausn leyndar- dómsins, en annars má aðallega þakka hana starfi FBI-manna í náinni samvinnu við lögregluyfir- völd fylkja og héraða úti á landi og upplýsing- um, er aflað var í hinu fullkomna rannsóknar- safni FBI í aðalbækistöðvunum í Washington. VERND HINNA SAKLAUSU. Saklausir menn fiækjast oft inn í sögu afbrota- mála, eingöngu vegna þess, að aðstæðurnar eða rás viðburðanna valda því, að grunur fellur á þá. Stundum er það líka svo, að margir eru grunaðir, þar til böndin berast loks að hinum raunverulega afbrotamanni, þegar áþreifanleg sönnunargögn koma fram. Að dómi FBI og þjóðarinnar í heild er ekki síður mikilvægt að sanna sakleysi þeirra, sem ranglega eru sakfelldir, en sanna sekt hinna seku. I báðum tilfellum fer fram nákvæm leit að staðreyndum með sömu starfsaðferðum og sömu hjálpartækjum. Það gerðist í Nome í Alaska árið 1936, að mað- ur klæddur skinnfeldi læddist að kofaglugganum hjá John Nilima, fyrrum gullgrafara og kaup- manin, miðaði á hann byssu og skaut hann til bana. Stórhríð var á, og snjórinn fyllti brátt spor moröingjans. Grunur beindist aðeins að tveimur mönnum. Annar var ungur Eskimói, sem hafði eytt meiri peningum en góðu hófi gegndi í þorps- búðinni. Hinn hafði áður setið í fangelsi og var yfirlýstur andstæðingur kaupmannsins og hafði meira að segja í annarra vðiurvist hótað að drepa hann vegna deilu um verzlunarréttindi. Eskimó- inn náðist, er hann var á leið burt úr þorpinu, og þótti allt háttarlag hans grunsamlegt, líkt og hann væri á flótta. Hann Þverneitaði að segja frá, hvar hann hefði fengið peninga til hinna miklu vörukaupa í verzluninni. Fógetinn tók eftir, að blóðblettir voru á sokkum hins mannsins, sem setið hafði í fangelsi, og spurði hann, hvernig h þeim stæði. „Ég skaut hreindýr," sagði hann, yiSAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.