Vikan - 19.05.1960, Side 31
Þú og barnið þitt
Framhald af bls. 15.
til þess fást lika nógir. Leikfélögunum þykir
gaman a8 striða barni með þvi, að amma þess
sé vitlaus eða mamma þess sé kleppsmatur.
Fimm ára drengur, sem ólst upp hjá gamalli
ömmu, fékk á ýmsan hátt að kenna á geðbilun
hennar. Hún lét hann alls ekki klæðast, þegar
hún lá sjálf i vesældarköstum sinum, og dreng-
urinn vandist þvi að kúra i handarkrika ömmu
sinnar dögum saman, þegar önnur börn léku
sér úti. Svo var það dag nokkurn, að hann kom
inn til gömlu konunnar, horfði rannsakandi á
hana svolitla stund og spurði i vantrúartón, eins
og hann vissi hið neitandi svar fyrirfram: „Ertu
nokkuð geggjuð, amma min?“
Þegar börn hafa skilið, hvar hinn geðbilaði
er veikur fyrir, geta þau leiðst til að nota sér
þetta, annaðhvort til þess að koma fram vilja
sinum í ábataskyni, eða beinlinis að æsa hann
upp og spila með hann. Frægt dæmi um þetta
úr bókmenntunum: Pétur Gautur leikur á trú-
girni og geðofsa liálfsturlaðrar móður sinnar.
En nærtæk dæmi úr daglegu lífi skortir ekki
lieldur. Ekki alls fyrir löngu taldi skóladrengur
1 Reykjavík ömmu sinni, stórlega geðbilaðri
konu, trú um, að nokkrir eldri strákar hefðu
hengt hann 1 auðum herskála. Þeir létu hann
hanga í hálftima. Þessi einfaldi og uppeldislega
vanrækti drengur skeinmti sér konuuglega yfir
bæxlagangi gömlu konunnar við að fá mláið
upplýst og liinum seku refsað. ★
Draumaráðningar
Framhald af bls. 23.
fannst ég stanza hjá honum og þá sé ég að þetta
er barnsandlit, mér fannst hann ætla að gera
eitthvað við það, hvort hann ætlaði að henda
því eða hvað, man ég ekki, en þá fannst mér ég
rétta út hendurnar eftir því, en þá fannst mér
hann vefja hið svarta efni utan af handleggnum
og þá kom i ljós, að þetta var litið barn, og rétti
mér það síðan. Svo fannst mér ég fara lieim með
barnið og ég eiga það. Mér fannst einnig, að ég
gengi með barni.
Þakka þér innilega fyrirfram fyrir ráðninguna.
M. B.
Svar til M.B.
Ef marka má drauminn, þá þýðir hann að
þú munt kynnast manni, sem hefur eignast
barn áður, en leynir þig þess þar til þú munt
komast að því. Mun hann þá verða óttasleg-
inn, því hann heldur að þú sért mótfallinn
barninu, en þegar að hann sér að svo er
ekki þá réttir hann þér það. Kynni ykkar
munu sennilega leiða til hjónabands og í sam-
bandi við það muntu eignast margt nýrra
fata á næstunni.
Það mun vera nokkuð títt nú til dags að
fólk hefur eignast óskilgetin börn og má ef
til vill segja að það sé ekki mikið meira meðal
vorrar kynslóðar en þeirra fyrri. Þetta fyrir-
brigði virðist því ætla að verða förunautur
vor enn um hríð ó meðan margur maðurinn
er auðsveipur þræll hinna óvirðulegri hvata.
Slíkur er ávöxtur yfirráða holdsins yfir and-
anum. Ég ber ávallt djúpa lotningu fyrir
konum og körlum, sem taka að sér maka með
slikan ávöxt, því þar kemur fram mikill fyr-
irgefningarmáttur og höfðingslund. Svo mun
því varið í flestum tilfellum. Margur hefur
reynt að skjóta sér undan ábyrgð ó óskil-
getnum börnum, jafnvel þó fyrir lægju allar
lfkur fyrir hinu gagnstæða, hefur slíkt at-
ferli jafnan þótt heldur löðurmannlegt. Ég
spói þér því góðrar framtíðar, gleddust og
njótta óvaxta góðra verka i framtíðinnL
Dragist ekki afturúr
Það getur dregið dilk á eftir
sér að vita ekki full skil á nýj-
ungunum sem daglega koma
fram á sviði tækninnar.
Það er auðvelt
að fylgjast með flestu sem ger-
ist síðan timaritið „TÆKNI
fyrir alla“ lióf göngu sína, því
það birtir fréttir, myndir og
lengri greinar um allt það sem
máli skiptir. Þér þurfið enga
tækniorðabók til þess að skilja
greinarnar í „TÆKNI fyrir
alla“.
DraumráSningurþáttur Vikunnar.
Mig langar mikið til að vita ráðuiugu á eftir-
farandi draum:
Mig dreymir að ég sé stödd í fjörunni hér við
fjörðinn i ofsaroki og er árabátur stutt frá landi
og i honum þrir menn og sé ég að honum hvolfir
og langar mig til að reyna að bjarga mönnunum,
sem í honum voru. Því næst rekur bátinn að
landi og var ekkert i honum nema þrjár rottur.
Svo fannst mér ég biða eftir þvi að mennina
ræki að landi en þess í stað komu þrir fiskar
og bjarga ég þeim upp á þurrt land.
Ekki var þessi draumur lengri en þess má
geta að einn mannanna, sem í bátnum voru
var strákur, sem ég þekki og hann er á sjó.
Fyrirfram þakkir.
Stúlkan við fjörðinn.
Svar til stúlkunnar við fjörðinn.
Draumur þeaai er fyrir erfiðleikum mikl-
um hjá þínum kunningja. Draumur sem
þessi gefa oftast til kynna erfiðleika, veik-
indi og dauða kunningja. En í þessu tilfelli
virðist ekki ástæða til að ætla að ástandið
sé svo slæmt.
Dreymt nóttina 1. april 19G0.
Til Draumamans,
Draumur:
Ég var úti í frumskógi með vinum minum við
vorum 5 og klifruðum upp í 5 næstu tré, svo
litum við niður og sáum þá 5 kóngulæl þær voru
3 X stærri en við þær voru með sinn hvorn
pcninginn og spynndu vef upp til okkar og létu
peningana detta ofaná vini mína svo að þeir
dóu en ég var einneftir svo breyddu þær út
teppi létu mig i það og fóru til baka i helli undir
jörðinni ég var með kisuna mina og páfagauginn
enn þau fengu ekki að koma inn það var bál
á gólfinu i hellinum og ég var strax bundinn
hengdur upp á królk og steiktur.
Jón Alfreðsson, fæddur — 1940.
Svar til Jóns Alfreðssonar.
Ég held, Jón min.n, að drottning draum-
anna hafi bara verið að senda þér fyrsta
aprfl gabb, svo þú ættir ekkert að vera
hræddur. Annars muntu sennilega missa ein-
hverja af kunningjum þinum vegna peninga-
leysis og muntu, þar með þekkja þína raun-
verulegu vina frá hinum. Peningavinir eru
fljótir að taka saman föggur sínar þegar
gullið er þrotið. Og enn fljótari eru þeir að
hypja sig þegar vandræði steðja aS.
VIKAN