Vikan


Vikan - 19.05.1960, Page 33

Vikan - 19.05.1960, Page 33
mér, aö þú ættir aö hugsa um skilnaö, þvi aö þaö er ótrúlega erfitt aö rífa sig upp frá heimil isinu, jafnvel þótt manni hafi ekki alltaf fundizt þaö hamingjusamt. Og þó aö nöldriö sé slæmt, er ein- manaleikinn samt verri. Ég mundi ráöleggja þér aö reyna aö öölast meira sjálfstæöi og sjálfræöi innan þinnar fjölskyldu og þins heimilis. Geröu állt, sem þú getur, til aö eign- ast nýja kunningja og ný hugöarefni, þannig aö heimiliserjur og daglegt amstur (hverfi í skuggann, vegna þess aö þú liefur bókstaflega ekki tíma til aö ganga upp í slíku. Kær kveöja, Aldís. — Fóðrið er ekki síðra — það getur herrann sjálfur séð. — „ítalir eyða öllu í föt“ Framhald af bls. J8. staklingsfrelsið lítið sem ekki neitt, atvinnuleysi rikjandi í stórum stil, og fólk getur yfirleitt ekki veitt sér neitt umfram það allra nauðsyn- legasta. — Hvernig eru íbúðir manna þarna í Róm? — Eftir að ég hætti að vinna hjá þessum hjónum, bjó ég á pensionati í dálítinn tíma. Þar kynntist ég enskri stúlku, sem var við söngnám og urðum við góðar vinkonur. Til þess að komast betur af fjárhagslega, langaði okkur til að fá leigt herbeigi saman, og í þessari herbergisleit okkar kynntist ég svolitið í hvernig húsnæði ltalir búa yfirleitt. Þar kenndi nú margra grasa. — — Er ekki alltaf hægara fyrir kvenfólk að ná sér í ibúð en karlmenn? — Nú, að hvaða leyti? — Þær geta alltaf fengið inni hjá einhverjum náungum. — Já, svoleiðis. Farúk bjó nú þarna í næsta nágrenni — ég hefði kannski getað fengið inni hjá honum! — Er italskt kvenfólk eins ábcrandi fallegt og manni virðist það vera á myndum? — Ja — þar sem ég var nær eingöngu í Róm gct ég lítið dæmt um það í heild, en þar fannst mér stúlkur vera yfirleitt mjög fallegar og vel klæddar. — Hvernig hafa þær efni á því? — Jú, eins og ég sagði virðast allir vera vel stæðir þarna, en seinna komst ég að þvi, að fólk almennt eyðir mjög litlu í mat og í heimilið eða heimilisprýði og annað slíkt. Mesta kappsmál ítalanna er að vera vel klæddir. Og þeir eru mjög smekklegir í klæðaburði, eins og svo mörgu öðru. — Stundaðir þú ekki skennntanalifið? — Nei. þó fór ég nokkuð oft i kvikmyndahús. — ítalir gera margar góðar myndir. Svo fór ég á þrjá næturklúbba. — Og hvað gerðist svo á þessum nætur- klúbbum? — Þið vitið nú hvernig næturklúbbar eru — þeir eru alls staðar eins. Kannski er músíkin bara mismunandi. — Og kunnirðu vel við itölsku músíkina? — Já, alveg Ijómandi. í þessari suðrænu músík er oft meira líf og ritmi, heldur en ann- arri. Og svo syngja ítalir mjög mikið — jafnvel þótt þeir hafi enga rödd. Og allir reyna að stæla þennan Mondugno. Hann er nú mikið til radd- laus náungi. — Er hann aðalstjarnan þeirra? — Já, það virðist vera — ásamt öðrum auð- vitað. Hann hvarf nú ekki aldeilis, þó að Volare gengi út. — En heyrðir þú þá ekki syngja óperuaríur og reyna að stæla Gigli eða Di Stefano? — Minna var um það. Annars er nú eins með ítali og aðrir þjóðir — sumir eru mjög hrifnir af óperum en aðrir ekki. — Jæja, af hverju varstu nú hrifnust í fari ítalanna? — Þeir eru mjög glaðlegir og hjálpfúsir. — Við vorum að lesa það i blaði, sem heitir Men Only, að þeir væru þeir ómögulegustu elsk- hugar, sem til væru í heiminum. Hvað heldur þú um það? — Jaaaá — ég veit ekkert um það, skal ég segja ykkur. Kannaði það aldrei. — Nú, þegar fólk ferðast til fjarlægra landa til að kynnast landi og þjóð, verður það að skyggnast eitthvað inn í þessi mál. Þetta er nú alls staðar stór hluti i lífi fólks? — Jú, víst er það, en það er hægl að kanna svo margt annað. Þetta atriði fór alveg fram hjá mér! PRENTSMIÐJAN — SÍMAR: 35320, 35321, 35322, 35323 ma zitiii 1 ♦♦ ♦♦ V I K A N 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.