Vikan - 14.07.1960, Qupperneq 17
?
FYRIR KVENFÓLKIÐ
Hvernig
á ég að nota?
að cr ekki lengur neinn dauðadómur
yfir ungri stúlku, að vera sagt að
ganga með gleraugu. Þvert á móti, því
að i mörgum tilfellum eru þau einmitt
lil prýði. (ileraugnaumgerðir lilheyra nú
tízkuvarningi, og hess vegna framleidd-
ar á allt öðrum forsendum en áður fyrr.
Það er ekki langt siðan að allir voru
myö sömu, ljótu gleráugun, kringlótt, i
mjóum málmumgerðum. Þar næsl komu
„gáfnaljósagleraugun“, þessi með stóru
hornspöngunum, ágæt fyrir karlmenn,
en fóru fáum konum vel. Núna er það
. gula h'ættan“, sem geisar í gleraugna-
tizkunni. Það ætli að vera trygging fyr-
ir því að fá kvenleg gleraugu, þar sem
miðað er við austurlenzku konuna.
Bandarikjamenn urðu fyrstir lil að
ui)])gölva að gleraugu gátu verið lil
prýði og að lögun og litur umgerðanna
var aðalatriðið. Bandariskar konur eru
komnar afar langt í gleraugnamennt-
inni, og heldri manna frúr þarlendar
fara alla leið til Þýzkalands til að fá sér
„skreðarasaumuð“ gleraugu. Þær vita
nefnilega af miklum snillingi í Stuttgart,
en hann kann aftur á móti að nota sér
hégómagirni þeirra og selur þeim um-
gerðir sem laða fram hinn rétta „per-
sonality“ -- you know. En persónu-
leikinn þarna i umgerðinni kostar bara
þrjú þúsund mörk. Svona lúxus er að-
eins fyrir milljónarafrúr, og venjulegt
kvenfólk verður að láta sér nægja eitt-
hvað minna.
Aðalati-iðið er að velja gleraugu með
réttri lögun og réttum lit. Þá er fyrst að
gera sér grein fvrir andlitsfallinu og
hvort nefið er langt eða stutt. Eftir ])essu
fer lögun umgerðar. í sambandi við lit
umgerðar ræður háralitur mestu og svo
einnig húðblærinn á andlitinn. Sam-
kvæmt gamalli reglu álli efri kantur um-
gerðar að fvlgja augabrún, en hún er nú
þverhrotin með Þessum mjóu umgerð-
um i austurlenzkum stíl.
Umgerðir eru nú til í öllum regnbog-
ans litum, og er þar með eitthvað fyrir
alla, aðeins að liitta á rétta litinn. Rautt,
i Ijósari lilunum, er fallegt fyrir fölleit-
ar konur og gefur húðinni ldýjan blæ.
En það úlheimtir sama lit á varirnar.
Ivonur með skollitt hár og löla húð ættu
að forðast dökkrauða litinn. Blátt er
fallegt við ljósl hár og svart, en gerir
húðina mjög föla. Ef yður langar til að
sýnast eldri en þér eruð, og alvarleg í
tilhót, þá skuluð þér velja hrúnar um-
gerðir. Grátt fer flestum vel, og er aðal-
tizkuliturinn nú um þessar mundir.
Grænt fer vel við rautt liár og kastaníu-
brúnt. Svart gerir andlitið fölt, en er
annars mjög fallegt, sérlega í breiðar
umgerðir. Gult gerir andlitið sjúklega
bleikt. Hvitt er ekki hægt að nota nema
að sumrinu, meðan sólhruninn varir.
Nýstárlegai' að-
gerðir, alveg
tilvaldar fyrir
konur, sem
vilja vera svo-
lítið sérstakar.
Ilér er gengið i berhögg við þá
góðu réglu, að efri brún umgerðar
skuli fylgja^Sugabj'úiÍi
thvtta. Ilvítar umgerðir eru
varasamar. En þær eru fallegar á
sólbrúdu "hndliti með skörpum
dráttum.
Mjóar umgerðir, sem aðeins eru lit-
aðar að ofan, henta \el smágerðu
andliti.
Finlegar, gylltur umgerðir, sem
fara vel við kvöldkjólinn.