Vikan - 14.07.1960, Side 33
ÞÆR AUjSTURLENZKU
ítalir hafa nýlega gert mjög sérstæða
kvikmynd, sem nú er byrjað að sýna þar
í landi. Myndin lieitir „Þær austurlenzku
— og er saman setl úr sex stuttum ástar-
sögum, sem gerast sín i hverju landi
Austurheims. Og aðalpersónurnar i mynd-
inni eru sex austurlenzkar hlómarósir frá
Egyptalandi, Nepal, Síam, Malakkaskaga,
Kína og Japan. Á myndunum liér að neð-
an sjáum við fimm þessara stúlkna, sem
leika aðalhlutverkin í kvikmyndinni.
I
1 Unga stúlkan í kínverska kafla myndarinnar vinnur
i Metropole-næturklúbbnum í Hong Kong. Hennar starf er
að skemmta kar'lmönnum, sem koma í klúbbinn, — vera
félagi þess manns, sem hefur valið sér hana fyrir kvöldið.
Chiang Yiu, sem fer með hlutverkið, er einmitt ein þessara
stúlkna. Hún er aðeins 17 ára gömul, en er þó enginn ný-
liði í sínu ömurlega starfi. Hún missti foreldra sína í borg-
arastyrjöldinni og flúði þá ásamt systur sinni til Hong Kong.
2. Eins og margir vita. er Nepal lítið, sjálfstætt riki,
sem liggur við rætur Himalajafjalla, milli Tíbets og Ind-
lands. Aðaipersónan í kaflanum, sem gerist þar, er sveita-
stúlka, sem er eiginkona sjö bræðra. Enn í dag á slíkt sér
stað í Nepal. Lakshmi, sem fer með hlutverkið, er 22 ára
gömul, er gift og á son á fyrsta ári. E'kki er þess getið,
að hún eigi nema einn eiginmann I veruleikanum.
3. Akiko, hin japanska, hefur það að atvinnu að kafa
eftir perlum. Og einmitt þess vegna var hún valin í eitt
hlutverkið, þar sem japanski hluti myndarinnar fjallar um
unga stúiku, sem er perlukafari.
4. Stúlkan frá Síam, Kanikar, er ein af stúlkunum
þremur, sem við sáum í kvikmyndinni Brúin yfir Kwai-fljót.
Hennar saga segir frá ungri stúlku, sem giftist manni, sem
er ópíumneytandi, en hún bjargar honum frá eiturlyfjunum
með óþreytandi þolinmæði sinni og ást.
5. Sagan, sem gerist á Malakkaskaga, fjallar um stúlku,
sem tinir kókóshnetur. Hún þjálfar apa i að kliíra upp í
pálmana og rifa niður þær hnetur, sem orðnar eru full-
þroskaðar. Marajat, sem er 18 ára, er ólík hinum stúlk-
unum að því leyti, að hún hefur hlotið menntun í Sviss
og talar bæði frönsku og ensku.