Vikan


Vikan - 20.10.1960, Blaðsíða 3

Vikan - 20.10.1960, Blaðsíða 3
“Kvikmyndagagnrýnin er svo léleg, að maður kaupir köttinn í sekknum“ segir Bína í bréfi maður alltaf að kaupa köttinn í sekknum, nema ef maður fréttir eitthvað um myndirnar hjá kunningjum sínum. Ég er viss um að það mundi horga sig íyrir blöðin að flytja meira efni um kvikmyndir, og gera fólkinu auðveldara að velja og hafna. Ég segi fyrir mig, að oft hef ég beðið þess með óþreyju að viss kvikmynd kæmi hing- að, eftir að ég hef lesið skemmtiegan útdrátt úr henni i einhverju útlendu hlaði. Vinsamlegast, Bína. Dagblöðin hafa takmarkað rúm fyrir annað efni en pólitíkina. Oft er þó sagt þar frá leikurum, jafnvel nýjustu kvikmyndum, sem þeir hafa leikið í eða eru að leika í. Kvik- myndagagnrýninni birtist og að staðaldri í flestum dagblöðum, en það er skiljanlegt, þar sem kvikmyndahúsin eru mörg og mynd- skipti tíð, að þau geti ekki birt langar grein- ar um hverja mynd, eða neitt svipaðar að lengd þeim greinum, sem leikhúsgagnrýn- endur skrifa. Oðru máli gegnir þarna um erlend blöð, sem yfirleitt eru mun stærri en þau íslenzku. ÆTTI AÐ STÖÐVA ALLAN BÍLA- INNFLUTNING? Iíæra Vika. Nú er svo komið að bilar eru stórfallnir i verði. Það hefur verið flutt svo mikið inn af þessum farartækjum, að framboðið er orðið er orðið meira en eftirspurnin. Þetta verðfall er vitanlega gífurlegt tjón fyrir bílaeigendur, og alla þá, sem eitthvað hafa með bilaverzlun að gera. Mér finnst sjálfsagt, fyrst svona er komið, að allur bílainnflutningur verði stöðv- aður, að minnsta kosti i eitt ár, það yrði mikill gjaldeyrissparnaður og við höfum ekki þörf fyrir fleiri bila í svipinn. Nú verður ekkert ann- að að gera, þegar þeir fara að ganga úr sér, en aka þeim út í einhvern bílakirkjugarðinn, þar sem enginn hefur eyri upp úr þeim, en áður gátu menn selt þá fyrir talsvert verð. Þetta er bein sóun á verðmætum. Semsagt — stjórnin ætti að stöðva allan bilainnfiutning i eitt ár minnst, þá kæmist þetta kannski í eðli- legt horf aftur. . Fordari. Er svartamarkaðsbraskið kannski eðlilegt horf? Ekki viljum við mæla með óhófsinn- flutningi á bílum, síður en svo. Samt sem áður viljum við ekki heldur viðurkenna að svartamarkaður og okur séu ákjósanlcgir verzlunarhættir, hvort heldur er um að ræða bíla eða aðra vöru. Það er ekki nema gott til þess að vita, að bílar skuli nú ganga kaup- um og sölum á sannvirði —aftur á móti er- um við bréfritara sammála um, að það væri ekki nema æskilegt að stöðva allan bílainn- flutning í ár eða svo, ef það hefði ekki áframhaldandi og jafnvel aukið svartamark- aðsbrask í för með sér. Það vita allir að þrátt fyrir ýmsar takmarkanir hefur ríkt mesta óhóf og gjaldeyrisbruðl í þessum innflutn- ingi að undanförnu. i HEYMJÖLSVERKSMIÐJAN EKKI NÝ HUGMYND. Kæra Vika. Að undanförnu hefur mikiS verið skrifað og rætt um það að koma upp heymjölsverksmiðju liér á landi, og á þann hátt að halda mætti að þarna væri um að ræða nýja hugmynd; sum blöð hafa meira að segja eignað sér hana og hælt sér af. Ég man ekki betur en að Ágúst Jónsson rafvirki, Reykjavík, hafi barist fyrir að koma þessari hugmynd í framkvæmd fyrir mörg- um árum siðan, en mætt litlum skilningi þeirra, sem helzt áttu um það að fjalla. Þetta finnst mér að megi koma fram, og Ágúst eigi að hljóta þann heiður, sem honum ber, þótt honum heppn- aðist ekki að leiða málið fram til sigurs á sínum tíma. Með þökk fyrir birtinguna. J. Gunnarsson. Við geturn ekkert til þessa mála lagt, en höf- urn ekki neina ástæðu til að ætla annað en þetta sé rétt, og ber alltaf að hafa það sem sannara reynist. Það er ekki í fyrsta skipti hér á landi, að hugsjónamenn mæta litlum skilningi, þegar þeir bera fram mól, sem til heilla horfa — en aðrir hafa síðan heiðurinn af að koma í framkvæmd. Og ekki verður hlutur Ágústar rninni fyrir það þótt hug- mynd hans hafi ekki hlotið góðar undirtektir á sínum tíma. UM DRAUMA OG STJÖRNUSPÁR. Kæra Vika. Ég les alltaf draumaráðningar og stjörnu- spána. Og það er svo einkennilegt, að ég hef hvað eftir annað orðið vör við, að eitt og ann- að, sem er i stjörnuspánni kemur fram. En ég lief líka sent drauma til að láta ráða þá, en það hefur ekki komið neitt svar, og ég er orðin óþolinmóð, því að ég held að þessi draumar hafi kannski einhverja merkingu. Heldurðu að það geti komið fyrir að bréfin hafi glatast, eða eitthvað farið milli mála? Svo þakka ég þér fyrir allt annað gott efni, sem þú flytur. Vinsamlegast. Dóra. Það er ekki að niarka þótt nokkur bið verði á því að ráðningar birtast, því að mikið berst að. Að minnsta kosti er ekki nein ástæða til að gera ráð fyrir neinum óhöppum strax. Hafið svolitla biðlund, Dóra, og vonandi reyn- ist svo ráðningin sönn á sínum tíma. Við viljum taka það fram, að fallið hefur verið frá því að taka greiðslu fyrir draumráðning- ar, sökum þess að meira hefur borizt af bréfum en blaðið gat birt. Tvöföld nautn - drekkið aðeins úr BÆHEIMSKRISTALSGLÖSUM Þér getið valið um hin fjölbreyttustu form og liti, sem nú eru á boðstólum á þessum markaði. Bæheimskristall býður vandað úrval! Gleymið samt ekki þeirri staðreynd Bæheimskristall kemur eingöngu frá Tékkó slóvakíu. I G LASSEXPORT Praha — Libereg Tékkóslóvakía vikAn 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.