Vikan - 22.09.1960, Qupperneq 2
Allar vörur sem keyptar eru frá Tékkóslóvakíu
eru greiddar með íslenzkum afurðum.
Frá firmanu
Pragoexport
í Tékkóslóvakíu
flytjum við inn allar tegundir af
Nemendur við framleiðslu-
störf
Leikritaflutningur af
segulböndum
Of mikil vítamín
Draumráðningar
Geimferðalög
„ÞVf ERTU AÐ HOUFA SVONA
ALLTAF Á MIG ..
Kæra Vika.
Viltu spyrja hæstvirt útvarpsráð — rainna
dugir víst ekki við slíka hákarla ■— hvað út-
varpsefni þurfi að vera hringlandi handvitlaust
að hugsun, máli og allri framsetningu, til þess
að það teijist óliæft til flutnings, — ef það sé
sönglað við lög, sem dansa má eftir. Þau tak-
mörk virðast ekki fyrirfinnast. Útvarpsráð
mundi áreiðanlega ekki hleypa neinum þeim
höguhósa oftar en einu sinni að hljóðneman-
um, sein léti þar út úr sér aðra eins endileysu
og á slíku og þvíliku hrognamáli. „Því ertu að
liorfa svona alltaf á mig“, er ekki lakari dægur-
lagatexti en þeir gerast nú yfi'rleitt — þar er
öllu misþyrmt, sem unnt er að misþyrma, hugs-
un, máli, rimi, áherzlum, framburði, — en þó
fyrst og fremst brageyra og málsmekk þjóðar-
innar. Það er ekki neinn vafi á því, að það
væri mun þjóðlegra að syngja erlendu textana
við lögin en þennan samsetning. Þeir eru
kannski ekki upp á margá fiska heldur, en þeir
eru þó ekki misþyrming á íslenzku máli.
Virðingarfyllst.
Jóhann Gíslason.
Svo mörg eru þau orð. Og satt að segja
virðist lítið samræmi í því að gera strangar
— og sjálfsagðar — kröfur til hins mælta
máls í útvarpinu, en alls engar kröfur til
þess, sem sungið er, eða sönglað eins og
bréfritari vill kalla það, einkum þar sem
vitað er að hið „sönglaða“ orð hefur mun
meiri og víðtækari áhrif, sér í lagi mðeal
yngra fólks sem lærir textana og sönglar
þá, gagnrýnislaust, og tileinkar sér smám-
saman allan ruglinginn.
SKÓLAR OG VINNA.
Kæri póstur.
Nú eru skólarnir að byrja. Vetrarlangt verða
unglingarnir bundnir við bókina, hvort sem
þeim er það ljúft eða leitt. Og allmörgum er
það leitt, það eru ekki allir hneigðir til bók-
náms og enginn lakari eða minna mannsefni
fyrir það. Og jafnvel þeim, sem annars eru
bóknáinshneigðir, getur orðrð það leitt að sitja
yfir bókunum lon og don, vetur eftir vetur.
1 fyrravetur var þess getið í fréttum, að gagn-
fræðaskólabörnum i Vestmannaeyjum hefði
verið gefið frí frá námi nokkurn tíma til að
sinna aðkallandi framleiðslustörfum. Sumir
hneyksluðust á þessu, þótt kynlegt megi virðast.
Ég gæti bezt trúað að þetta væri rétta leiðin.
Að láta gagnfræðaskólanemendur skiptast á að
vinna að framleiðslustörfum tíma og tíma á
hverjum vetri. Það mundi verða þeim upplyft-
ing og draga úr námsleiðanum. Og námsafköst-
in mundu áreiðanlega ekki verða minni fyrir
það, því að unglingarnir yrðu hressari og betur
upplagðir á eftir.
Með beztu kveðjum.
Lesandi.