Vikan - 22.09.1960, Qupperneq 26
4G&ÍM,
/
#MD fi/Ú ?
Vill Soraya giftast aftur? Og hvern niyndi
hún J»á velja af sínum kunningjum — eða
ættum við heldur að segja hvern getur hún
fengið.
Sein kona er ég Injin aft vera! Ég lield, aft fólk kæri
sig ekki um mig framar!
Það var Soraya, sem sagði þetta, — Soraya, fyrrum
drottning . og auk þess ein af glæsilegustu konum
heims. Stóru jaðc-litu augun voru sorgrnædd. Hún
brosti, en það var stirðnað bros eins og hjá þreyttri
leikkonu. En hendur hennar voru liflegar, þær voru
á sífelldu iði, grijni um handtöskuna, eins og hún
væri fær um að veita henni þann stuðning, sem lnin
þarfnaðist. Var hún hrædd og áhyggjufull vegna fram-
tiðar sinnar? Það er ekki auðvelt að segja til um, þvi
að hin glæsilega fyrrverandi drottning talar sjaldan
eða aldrei um sjálfa sig.
I LEIT AÐ FÓTFESTU?
llvað viljið þið mér? Vitið þið ekki, að ég er dauð?
Örvilnuð reyndi Soraya að verjast hópi af ljósmynd-
urum og forvitnu fólki, sem þrengdi sér að henni,
þegar hún i haust dvaldist í Nordwijk i Hollandi.
Læknir hennar hafði sent liana þangað, til þess að
hún gæti notið hvíldar og afslöppunar.
. — Ég er dauð . . ^ Það var 27 ára gömul kona,
sem þetta sagði. Hún hafði inisst kórónuna, eiginmann
og föðurland sitt, llafði lil'ift ekki upp á fleira að
bjóða?
Fyrir 7- 8 mánuðum bir.tust i heimsblöðunum mynd-
ir af allt annarri Sorayu, — glaðlyndri, hamingju-
samri, brosandi Sorayu. Þá var hún stödd i Róm
ásamt móður sinni. Hvað olli þessari miklu breytingu?
Hvers vegna var hún orðin svona þunglynd? Höfðu
ný vonbrigði varpað skugga sínum á líf hennar? Hafði
hana dreymt um nýja ást, nýtt lijónaband? Hafði hinn
umhyggjusami prins, Raimondo Orsini, vakið hjá henni
vonir um nýja l'ramtið við hlið hans og siðan svikið
hana?
Nei, það er varla unnt að gera ráð fyrir, að Orsini
prins hafi komið óriddaralega fra'm við Sorayu. Það
væri miklu fremur um að kenna óraunverulegu við-
liorfi hennar sjálfrar og allt of fjörugu ímyndunar-
afli móður hennar, sem valdið liafa nýjuni áhyggjum.
Soraya er alin upp á stjórnmálamannsheimili og lifði í
sjö ár sem drottning við austurlenzka hirð með ströng-
um hirðsiðum. Hún þekkir til hlítar siði og venjur
heldra fólks um gervalla Evró])u. En hvernig gat kona,
sem hlotið hafði slíkt uppeldi, misskilið samband sitt
við Orsini, eins og hún hefði verið saklaus sveita-
stúlka? Hvernig gat liún ranglúlkað riddaramennsku
prinsins við tiana og haldið, að kurteisleg eflirtekt
hans táknaði annað og meira en vináttu? Hvernig
gat hún komið fram sem ringluð stúlkukind og reynt
Framhald á bls. 34.
Soraya lét fljótt í tjós áhuga sinn á prins ltaimonda
Orsini — kannski full fljótt
20
V IK A N