Vikan


Vikan - 13.10.1960, Blaðsíða 7

Vikan - 13.10.1960, Blaðsíða 7
imi var ljóst, að nú yrði hann brátt að hefjast handa, grípa hvert tækifæri, sem honum byðist, þótt vonlítið virtist. Það kom reyndar stöku sinnum fyrir, að menn komust yfir peninga af stakri heppni. Hvers vegna ætti hamingjan ekki að verða honum hliðholl? Hann sat á gang- stéttinni síðla dags, og hitinn var kæfandi. Það var nýárskvöld. Hann hafði setið rúma klukkustund i lam- andi hitanum. Skordýr, sem komst suðandi upp í nösina á honum, kom honum til að hnerra. Hann fékk tár í augun. Honum fannst umferðin á götunni dansa fyrir augum sér. Svo minntist hann þess enn, hversu óvænlega horfði fyrir honum. Hon- um fannst hann grátt leikinn þenn- an dag. Hann hafði farið í þrjá staði, þar sem allt hafði bent til, að vinnu væri að fá. 1 fyrsta fyrirtækinu hafði honum verið tjáð: „Við erum búnir að fá strák, John." Á næsta stað hafði lítil, hvít vélritunarstúlka sagt: „Þú ert of gamall, Jim. Forstjórinn vill yngri mann, — átján ára eða þar um bil." — Og loks hafði lítill, kubbsleg- ur, hvítur maður reynt að prútta við hann: „Tvö pund og tíu á viku." Timi hafði krafizt þriggja punda. „Kemur ekki til mála," höfðu lokaorð hvíta mannsins verið, — „tvö pund og tíu og ekki penný meir." Timi gat ekki varizt hlátri, er hann hugsaði um andlit mannsins, — feit- ar, hvítar kinnar hans og litil, log- andi augun. Timi kom auga á geitung, sem var að ráðast á maðk. Geitungurinn flaug nokkra hringi yfir bráðinni og stevpti sér loks niður á varnarlausan maðk- inn. Líklega hefur geitungurinn ráð- izt á haus maðksins. Maðkurinn tók nokkra krampakippi, stirðnaði að lokum og lá kyrr. Timi vorkenndi vesailngs skriðkvikindinu. Þetta hafði verið ójafn leikur, maðkurinn hafði verið dauðadæmdur. Varð þetta alltaf að vera þannig? spurði hann sjálfan sig. Hlaut alltaf hinn vel vopnaði og skjóti að ganga af hinum varnar- lausa dauðum? Geitungurinn tók nú að toga í maðkinn — heim á leið. Timi kom snauður heim. En hugs- unin um þolinmóða og skilningsríka eiginkonu fyllti hann kjarki. „Já,“ hafði hún eitt sinn sagt, „á morgun rís sólin. Hún rís jafnt yfir alla. Ef til vill færir hún okkur hamingju." Og hún hafði einnig sagt: „Ég ætla að kveikja upp lítinn eld, Timi. Vitr- ingarnir okkar segja, að þótt ekkert sé I pottinum, eigi að kveikja upp eld." Hún átti von á barni. Það yrði þriðja barnið. Og hann, sem ekkert hafði borið í búið síðustu tvo mán- uðina, og forðabúrið stóð autt. Hann varð að finna leið úr þessum ógöng- um. Það var til einskis að sitja heima, er konan og börnin sultu. Hvítur maður gekk fram hjá, ó- stöðugur á fótunum, greinilega vel drukkinn. Eftir fáein skref nam hann staðar og sneri sér að Timi. Síðan gekk hann nær og rétti honum koníaksflösku. — Hérna, John, fáðu þér einn. Og gleðilegt nýár. Timi hristi höfuðið. — Láttu ekki svona. Vertu nú vænn, og fáðu þér slurk. Það sér eng- inn til þín. Timi hristi enn höfuðið og bandaði frá sér hendinni. — Andskotinn sjálfur! Þessi lúsa- blesi setur á sig snúð, þegar maður ætlar að óska honum gleðilegs nýárs. Farðu þá til andskotans. Hvíti maðurinn sneri upp á sig, vagaði burt og veifaði flöskunni. Hefðu það verið peningar, hugsaði Timi. Hann vissi, að nú var kominn tími til þess að halda heim, svo að hann steig upp í strætisvagninn til Sophia- town. I strætisvagninum var mikil kátína. Nýár, hugsaði Timi, áhyggju- laus timi. — Gleðilegt nýár! var hróp- að við .og við. Timi tók eftir manni með gítar við hliðina á sér handan við gangveg- inn. Stúlka dansaði eftir tónlistinni og sveigði seiðandi likama sinn til og frá. Gítarleikarinn sló hljóðfærið og virtist sokkinn í tónlist sina. Hann sló nýja tóna, strauk hljóðfærið og sló. Hann horfði æstur á stúlkuna, sem dansaði. Hann laut fram yfir gít- arinn eins og til Þess að galdra fram tónana í kæti sinni. Tvær ungar konur settust hjá Timi. Önnur var föl og virtist sjúk. Hin lagði frá sér tösku við hliðina á Timi. Hann hætti að skeyta tónlistinni og fór að virða fyrir sér konurnar. Hann þóttist sjá, að þær væru að ræða eitt- hvert leyndarmál. Þær stigu úr vagninum við næstu biðstöð. Timi hafði ekki augun af veskinu, þegar konurnar tvær gengu út. Þegar strætisvagninn var hð leggja af stað, hrópaði maður bak við hann: — Þér gleymduð töskunni! — Nei, ég á hana, sagði Timi snöggt. — Ég sá mætavel, að þær voru með töskuna, þegar þær komu inn, sagði maðurinn reiður. Gríptu nú tækifærið, hugsaði Timi. — Ég segi það satt, að ég á þessa tösku. — Segið mér ekki, að ég hafi ekki séð það, sém ég sá! sagði maðurinn. Það má ekki gera veður út af þessu, hugsaði Timi. — Sáuð þér mig ekki, Þegar ég kom inn með töskuna? — Segið sannleikann, það drepur yður ekki, sagði maðurinn i hótunar- tón. — Hvað viljið þér, að ég segi? Það var starað á hann. Guð minn góður, hvað á ég nú að gera? hugs- aði Timi. — Lánið eltir hann í Þetta sinn, kallaði einhver aftur í vagninum. Láttu hann vera. — Það er ekki víst, að lánið elti hann samt núna, sagði einhver annar. Kona heyrðist hlæja. — Þú tekur mitt, og ég tek þitt, sagði h,ún. Og hann tekur frá ein- hverjum öðrum. Þetta jafnast allt t upp! Hún hristist enn af hlátri. Látið hann i friði, heyrðist rödd gamalmennis úr einu horninu. Það var bara einn maður, sem sá stúlk- urnar koma inn með töskuna, og annar maður segir, að hann eigi tösk- una. Einn gegn einum. Látið hann eiga sitt, töskuna. Og látið hinn eiga sitt, sannfæringuna um, að stúlkurnar hafi átt töskuna. Það heyrðist hlegið hjartanlega. Deilurnar hurfu í nýársglaum og söng. Timi létti stórum. Hann hafði sigrað. Við næstu biðstöð steig hann úr vagninum. Hann heyrði ekki einu sinni manninn hrópa á eftir honum: — Taskan kemur sjálf upp um svikin. Guð veri mér vitni! Hvers vegna geta menn ekki hætt að skipta sér af þessu? hugsaði Timi og var sér þess meðvitandi, að allra augu störðu á hann. Þegar hann var kominn spölkorn frá strætisvagninum, greip forvitnin hann, hann var gripinn ótta og eftir- væntingu í senn. Hann varð að flýta sér heim til þess að komast að því hvaða fjársjóði taskan geymdi. Hann hafði gripið tækifærið í ör- væntingu. Honum var Það fylliiega ljóst, þegar hann gekk niður götuna. Timi vissi ekki af sér, fyrr en hann var kominn að fjölda fólks, sem stóð í þyrpingu utan um tvo hvita lög- regluþjóna. Hann rak i rogastanz, þegar hann sá glampa á lögreglu- merkið. Hann skauzt inn í húsasund. Þarna var ég heppinn! hugsaði hann, um leið og hann smeygði sér bak við mikið járnhlið. Hann hlaut að hafa staöið þarna í felum í að minnsta kosti stundar- fjórðung og hlustað á það, sem gerð- ist úti á götunni. Ymurinn, sem var einkennandi fyrir Good Street. breytt- ist og jókst og varð að æðislegum öskrum. Þá greip hann skyndilega óþekkt og undarleg tilfinning. Hon- um fannst hann eiga sök á þessum ólátum, hann hafa skapað reiði múgsins, hann vera bráðin, sem lög- reglan var að leita! Andartak datt hopum í hug að skilja töskuna eftir og hverfa á brott, verða frjáls á ný og laus við nagandi samvizkubitið. Því að töskuna átti hann ekki. Nei, hann átti alls ekki þessa tösku. Alls ekki. Hugsunin minnti hann á, að það var einmitt þess vegna, sem hann stóð þarna. Déilurnar i strætisvagninum höfðu hafizt af því, að hann átti alls ekki töskuna. Hvers vegna ekki Þá skilja töskuna eftir þarna? En vissulega hlaut eitthvert verðmæti að vera í töskunni. Hvers vegna hafði forsjónin annars verið honum svona góð? Jú, það hlutu að hafa verið andar forfeðra hans, sem visuðu honum, fullir meðaumkunar, á þessa tösku. Þeir hlutu að hafa kennt í brjósti um sjúka konu hans og börnin, sem sultu heilu hungri heima. Þá varð hann skyndilega staðráðinn og ákvað í blindni eins og villimaður að gefast ekki upp á því, sem hann hafði byrjað, hvort sem það endaði með skelfingu eða ekki, hvort sem eitthvert verðmæti var í töskunni eða ekki. Nei, hann gat ekki skilið töskuna við sig! Fjöldinn umhverfis lögregluþjón- ana tvístraðist, og Timi sá, að bæði menn og konur voru tekin til fanga. Þegar lögreglubíllinn ók í burt, skauzt Timi úr felustað sínum og gekk niður götuna. Hann þorði ekki að líta við. Hann vissi, að ef hann gerði það, mundi hann missa stjórn á sér. Hann vissi allt of vel, að hann var ekki í heiminn borinn til verkn- aðar sem þessa. Pitso kom á móti honum á gang- stéttinni. Guð minn góður, — hvers vegna einmitt núna! Pitso, kjafta- skúmurinn, sem alilr forðuðust, sem alltaf var óboðinn gestur, þar sem vinir komu saman. — Halló, sagði Pitso. — Þér virð- ist liggja á, Timi. Pitso var alltaf sami galgopinn. — Ertu á heimleið? — Já, svaraði Timi stutt til þess að koma ekki af stað viðræðum. Framhald á bls. 27. Smásaga frá Suður-Afríku effir BRUNO ESEKEI

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.