Fréttablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 34
30 1. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1878 Fyrsti viti á Íslandi tekinn
í notkun, Reykjanesviti á
Valahnúk.
1918 Sambandslagasamning-
ur Íslands og Danmerkur
gengur í gildi og verður Ís-
land þá frjálst og fullvalda
ríki. Íslenski fáninn dreg-
inn að húni í fyrsta sinn
sem fullgildur þjóðfáni.
1931 Minnisvarði um Hannes
Hafstein afhjúpaður við
Stjórnarráðshúsið.
1932 Sjálfvirkar símstöðvar
teknar í notkun í Reykja-
vík og Hafnarfirði.
1974 Hús Jóns Sigurðssonar
vígt í Kaupmannahöfn.
1975 Silfurbergsnáman hjá
Helgustöðum í Reyðar-
firði friðlýst sem náttúru-
vætti.
1994 Þjóðarbókhlaðan opnuð.
Rosa Louise McCauley Parks (1913–2005) var
bandarísk blökkukona sem barðist fyrir afnámi
milli svartra og hvítra. Barátta Parks varð til þess
að hún var handtekin á þessum degi árið 1955
fyrir að standa ekki upp fyrir hvítum manni í
strætisvagni í bænum Montgomery í Alabama.
Á þeim tíma voru fremstu bekkirnir í strætis-
vögnum ætlaðir hvítum farþegum, en þeir svörtu
urðu að færa sig aftar ef vagnarnir fylltust. Parks
neitaði hins vegar að verða við þeim tilmælum á
þessum örlagaríka degi sem varð til þess að hún
var fangelsuð, ákærð og dæmd til að greiða sekt.
Málið hratt brátt af stað hrinu mótmæla í
Montgomery, þar sem blökkumenn sniðgengu
meðal annars strætisvagna. Einn þeirra sem
skipulögðu mótmælin var Martin Luther King,
sem síðar varð einn helsti talsmaður fyrir mann-
réttindum blökkumanna í Bandaríkjunum.
Þess má geta að heilum 44 árum síðar var
Parks sæmd heiðursorðu Bandaríkjaþings fyrir
framlag sitt til mannréttindamála.
ÞETTA GERÐIST: 1. DESEMBER 1955
Rosa Parks handtekin fyrir óhlýðni
WOODY ALLEN FÆDDIST Á ÞESS-
UM DEGI ÁRIÐ 1935.
„Ég vil ekki verða ódauð-
legur í gegnum kvikmyndir
mínar. Ég vil öðlast ódauð-
leika með því að deyja
ekki.“
Woody Allen (fæddur Allen
Stewart Königsberg) er
bandarískur leikari og leik-
stjóri, sem leitar gjarnan inn-
blásturs í sálfræði, bókmennt-
um, gyðingdómi, heimspeki,
evrópskri kvikmyndagerð og
New York-borg, þar sem hann
er fæddur og uppalinn.
AFMÆLI
BETTE
MIDLER
leik- og
söngkona
er 64 ára.
GILBERT
O‘SULLIVAN
söngvari er
63 ára.
Baggalútur verður með sérstakt jóla-
dagatal á Rás 2 á aðventunni. Það
verður á dagskrá í Popplandinu alla
virka daga milli klukkan 9.30 og 13.30
og svo hjá Bergssyni & Blöndal á laug-
ardagsmorgnum. Það verður auk
þess aðgengilegt á Hlaðvarpi Ríkis-
útvarpsins en hugheilar kynningar-
stiklur um jólaskrautið, jólamatinn,
jólakortin, jólagræðgina og fleira er
hægt að finna á myndbandavefnum
youtube með því að skrá inn Jóladaga-
tal Baggalúts.
Jólin eru þeim Baggalútsmönnum
hugleikin og að þessu sinni verða jóla-
og aðventulög þeirra svo mikið sem
fjögur. Vinnuheiti þeirra eru Spádóm-
slagið, Betlehemslagið, Hirðingjalagið
og Englalagið en þau verða frumflutt
í þætti Guðna Más á Rás 2 á hverjum
sunnudegi aðventunnar.
Jólin eru Baggalúti ofarlega í huga
„Ég hef samið lagabálk við
ýmis kvæði Jónasar, þau eru
orðin 24 eða 25. Ætli þetta
verði ekki lokahnykkurinn
í því verkefni? segir Atli
Heimir Sveinsson tónskáld
um nýtt lag við Gunnars-
hólma Jónasar Hallgríms-
sonar. Fífilbrekkuhópurinn
frumflytur það í dag í Saln-
um í Kópavogi á fullveldis-
hátíð Heimssýnar, hreyfing-
ar sjálfstæðissinna í Evr-
ópumálum, sem stendur frá
klukkan 17 til 19.
Atli Heimir veit ekki til að
aðrir hafi glímt við að semja
tónlist við þetta mikla kvæði
en vill ekki segja neitt um
hvort það hafi verið stremb-
ið. „Ég tek nú ekki allt kvæð-
ið,“ segir hann. „Gunnars-
hólmi skiptist í þrennt. Í
fyrsta lagi söguna sem er
tekin úr Njálu, þegar þeir
bræður Gunnar og Kolsk-
eggur ríða til skips og Gunn-
ar snýr aftur sem frægt er
orðið. Í öðru lagi magnaðar
náttúrumyndir – lýsingu á
Suðurlandi, gullfallega og í
lokin er smá hugleiðing um
stöðuna, þar sem minnst
er á hnípna þjóð í vanda.
Ég held mig bara við sög-
una þannig að ákveðin er-
indi eru sungin og hinum
sleppt, annars hefði þetta
orðið svo langt. En laglín-
an sem liggur til grundvall-
ar er þannig úr garði gerð að
það mætti kveða allt kvæð-
ið. Ég fór svipaða leið þegar
ég gerði tónlist við Ferða-
lok. Þá gerði ég einfalda
melódíu og valdi út þrjú er-
indi. En svo var einn snilld-
arsöngvari sem kvað allt
kvæðið. Eflaust mætti hafa
sama hátt á með Gunnars-
hólma en Fífilbrekkuhópur-
inn mun flytja þessi völdu
erindi í dag. Það er Eyjólf-
ur Eyjólfsson tenórsöngv-
ari sem syngur einsöng. Ég
var á æfingu í fyrradag og
flutningurinn hljómaði vel í
mínum eyrum.“
Spurður hvort nýja lagið
sé tilkomumikið svarar Atli
hæverskur: „Það veit ég
ekki. Ég ætla að láta vera að
hæla mér fyrir fram.“
Í Gunnarshólma standa
rímorðin gjarnan ekki á
sama stað og punktarnir en
Atli Heimir segir þann brag-
arhátt ekki hafa verið til
traf ala við gerð lagsins. „Það
kom laglína sem einhverra
hluta vegna leysti það á eðli-
legan hátt held ég. En það er
rétt að Jónas er kunnáttu-
mikið skáld og hann gerir
þetta kvæði á mjög sér-
stakan hátt. Hann gerir það
reyndar alltaf. Hvert kvæði
hans er sérstakt. Hins vegar
finnst mér fallegt að minn-
ast þess nú þegar ég er að
segja skilið við Jónas, því
ég er aðallega að semja nú-
tímalegar sinfóníur, að gam-
all ljóðaunnandi, Páll Berg-
þórsson veðurfræðingur,
sagði eitt sinn: „Það er ein-
kennilegt með Jónas Hall-
grímsson. Hann er alltaf að
batna.“ Þannig er það með
góðan skáldskap, hann batn-
ar bara með tímanum.
Tildrög þess að lagið við
Gunnarshólma er frum-
flutt í dag rekur Atli Heim-
ir til kaffispjalls heima hjá
honum við Styrmi Gunn-
arsson, fyrrverandi rit-
stjóra. „Styrmir er gamall
vinur minn og skólabróðir
og ég lofaði honum að heyra
lagið. Hann vildi drífa í að
láta flytja það nú á fullveld-
isdaginn. Ég er fylgjandi
því að við ræðum inngöngu
í Evrópubandalagið en þótt
Styrmir sé á móti því þá vil
ég ekki að það komi í veg
fyrir að fólk njóti Jónas-
ar. Hann er yfir dægurþras
okkar hafinn og verður ekki
dreginn í neinn dilk. Jónas
er eitt af því fallega sem
við eigum öll sameiginlegt.“
gun@frettabladid.is
ATLI HEIMIR SVEINSSON TÓNSKÁLD: HEFUR SAMIÐ LAG VIÐ GUNNARSHÓLMA
Jónas eitt af því fallega sem
við eigum öll sameiginlegt
SENDA FRÁ SÉR
JÓLALÖG Jólin
eru þeim Bagga-
lútsmönnum
hugleikin í ár eins
og svo oft áður.
TÓNSKÁLDIÐ „Ég held mig bara við söguna þannig að ákveðin erindi eru sungin og hinum sleppt,“ segir
Atli Heimir Sveinsson um lagið við Gunnarshólma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hið nýja fyrirtæki Bónstöð-
in Mosó í Flugumýri 24-26
efndi til happdrættis fyrsta
starfsmánuðinn. Vinning-
urinn var 20 þúsund króna
gjafabréf í Smáralind.
„Við drógum úr bílnúm-
erum, bíll frá sælgætis-
gerðinni Kólus kom upp
og við afhentum heiðurs-
manni þaðan vinninginn,“
segir Júlíus Fjeldsted, einn
af þremur eigendum stöðv-
arinnar.
Bónstöðin Mosó sækir og
sendir bíla gegn vægu gjaldi
og tilboð í desember á al-
þrifum og bóni hljóðar upp
á 6.500 á fólksbíl og 7.950
á jeppa. Júlíus segir fyrir-
tækinu hafa verið vel tekið
í Mosó. „Þetta hefur gengið
vonum framar,“ segir hann
ánægður. - gun
Byrjað með stæl
VINNINGUR AFHENTUR Kristján Markús Sívarsson, Jón Kjartansson frá
Kólusi og Júlíus. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Attli Örn Jensen
Strikinu 10, Garðabæ,
lést á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði mánudaginn
30. nóv. sl. Útförin verður auglýst síðar.
Árni Valur Atlason Eydís Lúðvíksdóttir
Markús Þór Atlason Katrín Yngvadóttir
Jens Pétur Atlason Kristín Sigurbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Herdísar Steinsdóttur
Akurgerði 44, Reykjavík
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki öldrunardeild-
ar Landspítalans í Fossvogi fyrir nærgætni og góða
umönnun.
Lóa Gerður Baldursdóttir Örn Ingólfsson
Jón Birgir Baldursson Þórunn Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.