Fréttablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 20
20 1. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR FRÉTTAVIÐTAL: Stofnandi WikiLeaks sækir landið heim Tyrkneska stjórnin lýsti því nýlega yfir að hún ætlaði að veita Kúrdum réttar- bætur sem þeir hafa lengi barist fyrir. ■ Hvar búa Kúrdar? Forsaga Kúrda er lítt þekkt, en talið er að þeir hafi búið á sömu slóðum í tugi þúsunda ára. Þeir hafa aldrei átt eigið ríki og dreifast nú á milli nokkurra landa. Flestir þeirra búa í Tyrklandi, líklega 12 til 14 milljónir. Í Íran búa fimm til sjö milljónir, í Írak eru þeir fjórar til sex milljónir og í Sýrlandi um ein og hálf milljón. Nokkrar milljónir búa í Vestur-Evrópu og Ameríku, flestir í Þýskalandi. Heildarfjöldi Kúrda er líklega á bilinu 20 til 30 milljónir. ■ Fyrir hverju hafa þeir barist? Í Tyrklandi eru Kúrdar um 20 prósent íbúanna. Áratugum saman hafa þeir ekki notið almennra mannréttinda. Meðal annars hefur tungumál þeirra verið bannað og þeir hafa hvorki mátt starfrækja stjórnmálaflokka né fjölmiðla. Þeir hafa barist hart fyrir afnámi þessa ranglætis. Vopnuð uppreisn hófst fyrir um þremur áratugum undir forystu Verkamannaflokks Kúrda. Sú barátta hefur kostað tugi þúsunda lífið. Leiðtogi flokksins, Abdullah Öcalan, var handtekinn árið 1999 og hefur setið í fangelsi síðan. ■ Hverjar verða rétt- arbæturnar? Kúrdar í Tyrklandi hafa fengið ýmsar réttarbætur á undanförnum árum, ekki síst vegna þrýstings frá Evrópusambandinu, sem tyrk- nesk stjórnvöld vilja ólm fá aðild að. Á síðasta ári leyfði stjórnin Kúrdum að nota tungumál sitt og sjónvarpsstöð hóf útsendingar á kúrdísku. Nú hefur stjórnin heitið því að tungumál þeirra verði opinbert mál í Tyrklandi og nöfn á bæjum og þorpum í Kúrdahéruðunum verði færð aftur til fyrra horfs. Þá verður sett á stofn óháð nefnd sem á að hafa eftirlit með réttindamálum Kúrda og getur tekið við umkvörtunum þeirra á hendur stjórnvöldum. FBL-GREINING: KÚRDAR Þjóð án eigin ríkis Upplýsingar á WikiLeaks stuðluðu að stjórnarskipt- um í Keníu og komu í veg fyrir ritskoðunartilburði í ástralskri netlöggjöf. Á vefinn hafa ratað marg- vísleg leyndarmál, meðal annars frá Íslandi. Á næstu dögum birtast á WikiLeaks smáskilaboð milli stjórn- armanna einhverra stóru íslensku bankanna á tím- um hrunsins. Lokakönnun á áreiðanleika gagnanna stendur yfir. „Ég held það myndi jafngilda pólit- ísku sjálfsvígi að fara að handtaka okkur hér,“ segir Julian Assange, ástralskur maður á fertugsaldri, fyrrum tölvuhakkari og stofnandi vefsíðunnar WikiLeaks. Hugmyndin er þó ekki alveg fjarri lagi, því í júlílok á þessu ári hótaði skilanefnd Kaupþings Wik- iLeaks málsókn fyrir að rjúfa hér bankaleynd og fór fram á lögbann á fréttaflutning upp úr gögnum bank- ans sem birst höfðu á vefnum. Juli- an Assange er hér með félaga frá WikiLeaks, Daniel Schmitt, en þeir koma fram á ráðstefnu Félags um stafrænt frelsi á Íslandi. „En auðvitað er synd að vera ekki handtekinn, því það myndi vekja athygli á málstaðnum,“ segir Julian íbygginn. Hann á þó lík- ast til ekki í vandræðum með það því stöðugt birtast nýjar og for- vitnilegar upplýsingar á vef hans. Núna segir hann ein tvö mál héðan í skoðun, en á næstu dögum muni líkast til birtast á vefnum smáskila- boðasamskipti milli stjórnarmanna einhverra af þremur stærstu við- skiptabönkunum sem hér störf- uðu fyrir hrun. „Það eru svona 80 prósent líkur á að þetta séu gögn sem hægt er að birta,“ segir hann, en varar um leið við of mikilli eft- irvæntingu. „Þau vekja líkast til fleiri spurningar en þau svara.“ Ritskoðun í skjóli klámbaráttu Málstaðurinn snýst um frelsi upp- lýsinga og miðlunar á internetinu, en þar segir Julian þrengt að úr öllum áttum. Ritskoðunartilburð- ir fari þá gjarnan fram undir þeim formerkjum að sía eigi út efni sem sýni kynferðisbrot gegn börnum. Reyndin sé hins vegar sú að þar sé ekki nema lítið brot af því sem ætlunin er að halda frá notendum Netsins. Hann segir ástæðu til að hafa áhyggjur af aukinni samleitni laga í Evrópu sem komi til með að þrengja að málfrelsi á Netinu, en í Þýskalandi vanti bara uppáskrift forseta til að koma á slíkum lögum. Þar gerði lögregla húsleit í kjölfar þess að WikiLeaks birti gögn um sambærilega löggjöf sem var í smíðum í Ástralíu. „Við birtum lista yfir þá hluti sem ritskoða átti og í ljós kom að einungis um 32 prósentum tilvika sneru þeir að klámfengnu mynd- efni af fólki undir átján ára aldri.“ Svarti listinn hafi að hluta verið af pólitískum toga og fullur af villum. „Þetta varð til þess að hætt var við löggjöfina í Ástralíu,“ segir hann, en það hafi stjórnvöld í Þýskalandi túlkað sem ógn við öryggi þar. „Öll fjölmiðlum er með einhverj- um hætti komin á Netið og mál- frelsi þar snýr því ekki bara að Net- inu, heldur að samfélaginu öllu,“ segir Julian og áréttar að vald til ritskoðunar á Netinu feli í sér vald til að ritskoða fjölmiðlun í heild. „Tilfellið er að heimurinn er allur tengdur og vestræn ríki hagnast á misrétti sem viðgengst annars stað- ar í heiminu. Tilhneigingin er því frekar í þá átt að hamla upplýsinga- gjöf sem stuðlað gæti að breyting- um,“ segir Julian og telur eitt vís- asta merkið um að upplýsingar eigi erindi við almenning að einhver vilji leggja á sig að reyna a ð ley n a þeim. „Nær öll hneyksl- ismál sem getið hafa af sér umbætur hafa snúist um áhrifa- hópa sem reynt hafa að halda upplýsingum leyndum.“ Julian Assange segir upplýs- ingarnar sem lekið var úr lána- Frjáls miðlun á Netinu varðar heiminn allan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.