Fréttablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 48
44 1. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabla- Njarðvík-Keflavík 76-63 (34-22) Stigahæstir: Magnús Þór Gunnarsson 21, Kristján Sigurðsson 21, Jóhann Árni Ólafsson 14 - Hörður Axel Vilhjálmsson 21, Sigurður Gunnars Þorsteinsson 17. KR-Stjarnan 73-78 (42-41) Stigahæstir: Brynjar Þór Björnsson 15, Tommy Johnson 15, Finnur Atli Magnússon 13 - Justin Shouse 29, Jovan Zdravevski 14, Magnús Helga son 12, Fannar Freyr Helgason 10. Hamar-Breiðablik 89-78 (44-41) Stigahæstir: Marvin Valdimarsson 35 (10 frák.), Andre Dabney 26 (21 í fyrri) - Jonathan Schmidt 15 (8 stoðs.), Jeremy Caldwell 15 (17 frák.), Hjalti Friðriksson 15. Stig liðanna í deildinni: 1. Njarðvík 16, 2. Stjarn an 14, 3. Keflavík 14, 4. KR 14, 5. Snæfell 12, 6. Grindavík 10, 7. ÍR 8, 8. Hamar 8, 9. Tindastóll 6, 10. Fjölnir 4, 11. Breiðablik 2, 12. FSu 0. KARLAKARFAN > Jólagjöf til allra í Stabæk Veigar Páll Gunnarsson var kynntur í gær sem nýr leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Stabæk eftir mislukkað ár hjá Nancy þar sem hann fékk lítil sem engin tækifæri. „Þetta er besta jólagjöfin til Daniels Nannskog (framherja sem blómstraði við hlið Veigars), Jans Jönsson (þjálfara) og allra þeirra sem tengjast og styðja Stabæk,“ sagði Steen Jensen, stjórnarformaður Stabæk, við Verdens Gang þegar ljóst var að Veigar væri kominn til Stabæ á nýjan leik. Vegna komu Veigars getur Stabæk þó ekki haldið lengur Japan- anum Daigo Kobayashi sem fer frá félaginu í janúar. Fyrirtæki á Höfuðborgar svæðinu og Akureyri. Bjóðum upp á örugga og hraða sendingar þjónustu fyrir jólin. Pakkar, bögglar og nafnamerkt blöð. Nánari upplýsingar veiti r Pósthúsið í síma 585-8300 eða á posthusid.is í Bústaðahverfi, Háaleiti og Fossvogi Opinn íbúafundur um menntamál og íþrótta- og tómstundamál í Bústaðahverfi, Háaleiti og Fossvogi verður haldinn í Víkingsheimilinu við Traðarland miðvikudaginn 2. desember kl. 17:30 Frummælandi: Kjartan Magnússon, formaður menntaráðs og íþrótta- og tómstundaráðs. Sjónarmið íbúa: Lena Kristín Lenharðsdóttir, formaður foreldrafélags Réttarholtsskóla. Fundarstjóri: Marta Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi. Fjallað verður um skólahald, íþróttir og tómstundamál og kallað eftir skoðunum íbúa um brýnustu úrlausnarefni í þessum málaflokkum í hverfunum. Þá verður kynnt vinna við mótun nýrrar menntastefnu á vegum Reykjavíkurborgar. Að loknum inngangserindum verða umræður með þátttöku íbúa, fulltrúa úr menntaráði og íþrótta- og tómstundaráði og fulltrúum frá Víkingi. Skóli - Íþróttir - Tómstundir Menntasvið Íþrótta- og tómstundasvið KÖRFUBOLTI „Þetta var frábært. Við spiluðum þvílíkt góða vörn, sérstaklega í þriðja leikhluta og þá lögðum við grunninn að þessum sigri. Það er ekki verra að sýna svona góða vörn á móti liði eins og Keflavík og að halda þeim í 63 stigum er náttúrulega frábært. Við slátruðum þeim bara,“ sagði stórskyttan Magn- ús Þór Gunnarsson hjá Njarðvík í leikslok eftir 76-63 sigur liðsins í toppbaráttuslag gegn Keflavík í Iceland Express-deildinni í gær- kvöldi. Magnús Þór reyndist sínum gömlu félögum í Keflavík erfið- ur ljár í þúfu og var stigahæst- ur heimamanna ásamt Kristjáni Rúnari Sigurðssyni með 21 stig og setti að vanda niður nokkur vel valin þriggja stiga skot á mikilvægum tímapunkt- um í leiknum. „Við mættum bara til- búnir í leikinn og það þýðir heldur ekkert annað í þessarri deild því ef þú mætir ekki tilbúinn þá tap- arðu. Við vorum lélegir gegn Stjörnunni og töp- uðum en náðum held- ur betur að rífa okkur upp eftir það og það var ánægjulegt. Við erum þar sem við viljum vera á toppi deildarinnar,“ sagði Magnús Þór og hrósaði sterkri liðsheild. „Varnarleikurinn var nátt- úrulega lykillinn að þessu en við sýndum líka að við erum með góða breidd sóknarlega. Kristj- án Rúnar steig til að mynda svakalega upp í þessum leik og fór hreinlega á kostum, því hann er ekki búinn að hitta neitt í allan vetur. Það er von- andi að hann haldi þessu bara áfram,“ sagði Magn- ús Þór glottandi. - óþ Magnús Þór Gunnarsson var ánægður með spilamennsku Njarðvíkur í gær: Við slátruðum þeim bara 21 STIG Magnús Þór Gunnarsson hjá Njarðvík. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KÖRFUBOLTI „Ég er mjög ánægður með sigurinn. Varnarleikurinn var frábær hjá okkur allan leikinn en það komu samt kaflar þar sem við vorum að gera mörg mistök í sókn- arleiknum. Keflvíkingar eru hins vegar góðir í vörn þannig að það var ekki hægt að búast við því að við myndum skora eitthvað sér- staklega mikið á þá en eins og ég segi þá var ég mjög ánægður með leikinn í heild sinni,“ sagði Sigurð- ur Ingimundarsson, þjálfari Njarð- víkur, í leikslok eftir 76-63 sigur sinna manna í Suðurnesjaslag gegn Keflavík í Iceland Express- deild karla í gærkvöldi. Það þarf vart að taka það fram að Ljónagryfjan í Njarðvík var troðfull og stemningin frábær. Það var líka greinilegt á leik liðanna til að byrja með að taugar leikmanna beggja liða voru þandar enda allt- af mikið í húfi þegar liðin mæt- ast, ekki síst þegar um algjöran toppslag er að ræða eins og í gær- kvöldi. Keflvíkingar byrjuðu leik- inn þó betur en svo sigu Njarðvík- ingar fram úr og leiddu 18-11 að fyrsta leikhluta loknum og mun- aði þar mestu um þrjá þrista sem Kristján Rúnar Sigurðsson setti niður fyrir heimamenn. Keflvíkingar náðu að saxa á for- skotið framan af öðrum leikhluta, allt niður í eitt stig 20-19, áður en Njarðvíkingar tóku völdin á nýjan leik og fóru inn í hálfleik með tólf stiga forskot, 34-22. Jóhann Árni Ólafsson var allt í öllu hjá Njarð- víkingum í öðrum leikhluta og átti stóran þátt í góðri forystu heima- manna, sem voru reyndar einnig að spila fínan varnarleik. Sérstaklega náðu Njarðvík- ingar að halda Kananum Rashon Clark hjá Keflavík niðri en hann skoraði aðeins eitt stig í fyrstu tveimur leikhlutunum. Njarðvík- ingar héldu uppteknum hætti í þriðja leikhlutanum og gáfu bara meira í en Keflvíkingar hikstuðu þá illilega. Aðeins Hörður Axel Vilhjálmsson og Sigurður Gunn- ar Þorsteinsson sem virtust vera með einhverju lífsmarki hjá gest- unum á meðan liðsheildin var mjög sterk hjá Njarðvíkingum og menn skiptust á að skora. Munurinn var tuttugu og þrjú stig, 63-40, fyrir lokaleikhlutann og því á brattan að sækja fyrir Keflavík. Það er skemmst frá því að segja að forskot Njarðvíkinga var alltof stór biti fyrir Keflavík- inga sem náðu þó að laga stöðuna aðeins en sigur heimamanna var aldrei í hættu og lokatölur urðu sem segir 76-63. Keflvíkingar fundu sig í raun aldrei í gærkvöldi og voru allan tímann stóru skrefi á eftir Njarð- víkingum bæði varnarlega og sóknarlega og þjálfarinn Guðjón Skúlason hjá Keflavík var því eðli- lega ósáttur í leikslok. „Við vorum bara skítlélegir og það var ömurlegt að horfa upp á þetta. Það er í raun það eina sem ég get sagt. Við vorum bara kraft- lausir og ég veit ekki alveg af hverju það var. Sérstaklega vorum við lé legir sóknarlega en líka varn- arlega á köflum og mér fannst Njarðvíkingar bara fá að taka þau frá köst sem þeir vildu taka. Þeir eru annars með flott lið og voru bara betri en við í þessum leik. Svo einfalt er það,“ sagði Guðjón. Magnús Þór Gunnarsson og Kristján Rúnar Sigurðsson voru stigahæstir hjá Njarðvík með 21 stig en Hörður Axel Vilhjálmsson var stigahæstur hjá Keflavík með 21 stig. omar@frettabladid.is Keflvíkingar niðurlægðir Njarðvíkingar unnu öruggan 76-63 sigur gegn erkifjendum sínum í Keflavík í toppbaráttuleik í Iceland Express-deild karla í gærkvöldi. Sterk liðsheild og frá- bær varnarleikur skóp sigur Njarðvíkinga í Ljónagryfjunni. FRÁBÆR INNKOMA Kristján Rúnar Sigurðsson kom með 21 stig inn af bekknum í gær en hann hitti úr 7 af 11 skotum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Stjörnumenn unnu enn á ný sigur á KR-ingum í Iceland Express-deild karla í körfu í gær. KR-ingar höfðu ágæt tök á leiknum en frusu í lokin. „Mér finnst rosalega gaman að vinna KR, ég verð bara að segja það,” sagði Fannar Freyr Helgason, fyrirliði Stjörnunnar, skömmu eftir að Stjörnuliðið hafði unnið fimm stiga sigur á Íslandsmeistur- unum í DHL-Höllinni. Þetta var þriðji sigur Stjörnunnar á KR á þessu ári, en þeir unnu KR einnig í bikar- úrslitaleiknum í febrúar og í meistarakeppninni í október. „Fjórði leikhlutinn var mjög góður hjá okkur og við vorum að sýna frábæran karakter með að klára þennan leik svona sterkt. Við lentum í miklu basli í byrjun seinni hálfleiks þegar það gekk ekkert upp. Við bættum okkur allir sem einn og börðum okkur saman og þá kom þetta,” sagði Fannar og hann var sáttur við Bandaríkjamanninn Justin Shouse sem fór á kostum í lokaleikhlutanum og skoraði þá 12 af 29 stigum sínum. „Þú færð ekkert betri mann á Íslandi til að stýra þessu en Justin. Þarna voru tveir af sterkustu Könunum í deildinni að mætast og hann var miklu betri,” sagði Fannar um Justin Shouse, sem er að spila meiddur. Stjarnan hefur unnið 7 af 9 leikjum sínum sem skilar liðinu upp í 2. sætið. „Það er súrt að hafa tapað þessum Tindastólsleik en við lentum í meiðslum og það er erfitt að standa í slíku. Við vinnum bara svona stóra leiki í staðinn. Við erum búnir að vinna öll sterkustu liðin nema Grindavík sem er mjög flott,” sagði Fannar. KR-ingar frusu hreinlega í fjórða leikhluta sem þeir töpuðu 6-18 og þjálfarinn Páll Kolbeinsson tók hluta af skýring- unni á sig. „Það getur vel verið að innáskiptingarnar hjá mér hafi verið þannig að ég hafi verið of lengi að setja byrjunarliðið inn á. Það getur vel verið að það hafi gert útslagið en við hættum allavega að spila körfubolta. Við hættum að sækja að körfunni og hleyptum þeim inn í leikinn aftur,” sagði Páll. „Þetta er leikur sem við áttum að vinna. Við vorum með þetta í okkar höndum og spiluðum miklu betri körfubolta. Því miður hættum við bara að spila körfubolta og fórum að gera þetta allt sem einstaklingar,” sagði Páll. - óój FANNAR FREYR HELGASON OG STJÖRNUMENN: UNNU FJÓRÐA LEIKHLUTANN 18-6 OG FÖGNUÐU SIGRI GEGN KR Við vinnum bara svona stóra leiki í staðinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.