Veðrið - 01.04.1956, Blaðsíða 3

Veðrið - 01.04.1956, Blaðsíða 3
RITNEFND: JON EYÞORSSON H. SIGTRYGGSSON ARI GUÐMUNDSSON TÍMARIT HANDA ALÞÝÐU UM VEÐURFRÆÐI JÓNAS JAKOBSSON KEMUR ÚT TVISVAR Á ARI. - VERÐ ÁRG. KR. 20.00 AFGREIÐSLUSTJORI: 1. HEFTI 1956 1. ÁRGANGUR GEIR ÓLAFSSON, DRÁPUHLÍÐ 27 Fylgt úr hlaði ÞETTA RIT er tómstundavinna nokkurra veðurfrœðinga, er nu starfa í Veðurstofu Islands. Þvi er œtlað það hlutverk að rœða um veðrið við landsmenn almennt og halda til haga fróðleik um veðráttu og veðurfar að fornu og nýju. Það þarf að visu nokkra djörfung og bjartsýni til þess að fitja uþþ á nýju timariti á landi hér, svo mörg sem þegar eru fyrir. — En við, sem að þessu riti stöndum, höfum þá trú, að tilraun okkar eigi rétt á sér. Okkur kemur ekki til hugar, að við munum bceta fjárhag okkar með henni, en við þykj- umst hafa i fórum okkar ýmislegt til gagns og fróðleiks landsmönnum til sjávar og sveita, og við erum þess vissir lika, að þeir kunni frá mörgu að segja, sem vert sé að halda til haga og geyma i riti þessu. Islendingar hafa löngum átt afkomu sina að mestu undir sól og regni, enda hafa þeir gert sér tiðrcett um veðrið. Sést það m. a. á þvi, hversu mikl- um veðurfróðleik hefur verið bjargað frá gleymsku á liðnum öldum. Þess vegna gat Þ. Thoroddsen fyllt heila bók um islenzkt árferði i þúsund ár. Á nokkrum undanförnum árum hefur sþrottið uþþ stétt manna, þótt fá- menn sé, sem hlotið hefur sérmenntun i veðurfrceði og vinnur ýmisleg og harla sundurleit störf á vegum veðurstofunnar. Vinnutimi þeirra margra er cerið óreglulegur, nceturvökur og langir vinnudagar, en tilskildar tóm- stundir á milli. — Þessum tómstundum geta þeir varið sér til skemmtunar eingöngu, og þeir geta varið þeim að nokkru leyti til freeðilegra starfa. Fyrir sjálfa þá og þjóðfélagið er mikils virði, að siðari kosturinn sitji í fyrirrumi. Þetta er lika skoðun hinna ungu veðurfrceðinga, sem standa að útgáfu þessa rits og hafa tekið á sig fjárhagslega skuldbindingu til þess að koma þvi af stað. VEÐRIÐ mun fyrst um sinn kom út tvisvar á ári, en vcentanlega fjór- um sinnum sið.ar, ef það á lif fyrir höndum. Það mun flytja frásagnir af minnisstccðum veðrum, einkennilegum fyrirbrigðum i lofti, frceðilegar rit- gerðir og svör við fyrirsþurnum o. s. frv. Útgefendur vcenta sér mikillar og góðrar samvinnu við veðurglögga menn viða um land og óska eftir bréf- um frá þeim eða ritgcrðum um veður og veðráttu i bliðu og striðu. JÓN EYÞÓRSSON. 3

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.