Veðrið - 01.04.1956, Blaðsíða 9

Veðrið - 01.04.1956, Blaðsíða 9
Alla mánuði ársins hefur meðal- hiti verið undir frostmarki í 2000 metra hæð. Það bendir ákveðið á, að uppi á Öræfajökli bæti heldur á en bræði snjó hlýjasta mánuð árs- ins, hvað þá heldur aðra. í þúsund metra hæð er þíðviðri fjóra mán- uði ársins, en frost að jafnaði hina átta. Það er því ekki undarlegt, þó að fannir hverfi seint á vorin úr háum fjöllum, og eins er eðlilegt, að þau faldi hvítu sne.nma á haust- in. Þetta árið hefur desember ver- ið kaldastur, en ágúst hlýjastur, en annars er oftast kaldast hér á landi í janúar, en hlýjast i júlí. Er ekki ólíklegt, að ýmsum þyki fróðlegt að fylgjast með meðalhita mánaðanna 6. mynd. Árssveifla hitans 195-f. ár frá ári, en það er ætlunin, að VEÐRIÐ birti árlega sams konar linurit og nú hefur verið lýst. Af hitafarinu í 500 metra hæð má væntanlega nokkuð marka ár- ferði á heiðum uppi og lífsskilyrði jurta og dýra, sem þar hafast við. KOSTNAÐA RMENN: Til þess að unnt væri að hefja útgáfu þessa tímarits liafa eftirtaldir veð- urfræðingar heitið allt að 1000.00 króna framlagi hver: Adda Bára Sigfúsdóttir, Laugateig 24. Ari Guðmundsson, Keflavíkurflugvelli. Borgþór H. Jónsson, Keflavíkurflugvelli. Bragi Jónsson, Keflavíkurflugvelli. Gunnar Hvammdal, Keflavíkurflugvelli. Hlynur Sigtryggsson, Keflavíkurflugvelli. Ingólfur Aðalsteinsson, Keflavíkurflugvelli. Jón Eyþórsson, Fornhaga 21. Jónas Jakobsson, Skúlagötu 64. Knútur Knudsen, Keflavíkurflugvelli. Ólafur Einar Ólafsson, Keflavíkurflugvelli. Páll Bergþórsson, Njálsgiitu 86. 9

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.