Veðrið - 01.04.1956, Síða 10
PÁLL BERGÞÓRSSON veðurfrœðingur:
Langviðrasumarið 1955
1. 1 áttatíu daga og áttatiu neetur.
Við skulum hefja þetta spjall með því að athuga línuritin á fyrstu myncl.
Annað er merkt Þingvöllum, en hitt Hallormsstað. Ekki skulu menn ímynda
sér, að þau sýni skuggamyndir af reykháfum, sem ber við ljósan himin, heldur
er hér um að ræða daglegt úrkomumagn sumarið 1955. Við hugsum okkur, að
sr. Jóhann Hannesson veðurathugunarmaður á Þingvöllum hafi í júníbyrjun
verið staddur við vinstri enda línuritsins fyrir Þingvelli. A hverjum degi sem
leið hafi hann svo þokað sér um einn millímetra eftir blaðinu til hægri handar,
og á morgni hverjum reist á leið sinni súlu, jafnháa úrkomunni síðasta sólar-
hring. Segja má, að sr. Jóhann hafi varðað veg sinn, því að mikil er súlnaröðin
orðin um miðjan september, „og var sem í skóg sæi". En það voru fleiri en
hann, sem reistu þessu sumri minnisvarða á svipaðan hátt með daglegum mæl-
ingum á úrkomumagni sunnan lands og vestan. Ólíkt liafðist Páll Guttormsson
að á Hallormsstað. Fáar og flestar smáar eru súlur hans, eins og myndin sýnir,
Ha Hormsstoiut
22
JÍL.
uti li i íui 1111111 m 11111 m
imilii
. j
i. .11
iiiiiiifiiin'iiiBiiiiiiiii
IJJC
:iiiiiiijiliminiftiiiiiim
I
11 m 111 !■ 1111111 m 111111 it
JÚ N
J U L
AGUST
SEPTEMBER
1. mynd: Dagleg úrkoma i mm á Hallormsstað og Þingvöllum sumarið 195S.
10