Veðrið - 01.04.1956, Qupperneq 23
„Lœgð yfir Noregi, en hað yfir Grtenlandi"■ Meðalloftþrýsting
i krossmessuhretinu 1955.
bændur til aS láta ær sínar bera í húsi, en slíkt hefur að sjálfsögðu mikið óhag-
ræði í för með sér. Yfileitt voru bændur vel birgir af heyjum og óttuðust ekki
heyskort, þó gefa þyrfti fénaði öllum. Á Vestfjörðum var úrkoma mjög lítil, en
kalt í veðri og jörð gróðurlaus með öllu og fénaður allur á gjöf.
Um sunnanvert landið kom frostið á auða jörð og hvítnaði fljótlega upp
gróður sá, er fyrir var. Slóu bændur víða upp útijötum fyrir fé sitt, en sauð-
burður gekk sæmilega, enda þoldu lömbin betur kuldann sakir þess, hve þurr-
viðrasamt var.
Sunnudaginn 15. maí snerist vindur rneir til norðausturs og tók að lægja
víðast hvar á lándinu nema á Norðausturlandi, þar hélzt snjókoman og éljagang-
ur fram á mánudag. Varð nú enn kaldara í lofti en verið hafði, þó ekki væri eins
napurt og verið hafði meðan norðangarðurinn geisaði. Var hitinn um og und-
ir frostmarki á daginn norðan lands og frostið 7°—-10° C um nætur fram til
þ. 20, en þá brá til hlýinda og góðviðra um land allt. Batinn kom aðeins fyrr
syðra eða þ. 17., en þá kom skyndilega skúr úr lofti á Reykjanesi og var hún
kærkomin á skrælnaða jörðina.
Þá var þessi liarðindakafli um garð genginn. En áhrifa vorhretanna gælir
jafnan fram eftir sumri og jörðin þarf tíma til að jafna sig eftir átökin við
veðráttuna.
Og enn voru ekki öll kurl komin til grafar. Seint í júnímánuði var leiðang-
ur Jöklarannsóknafélags íslands á Mýrdalsjökli í grenncl við Kötlu. Sáu leið-
23