Veðrið - 01.04.1962, Side 3

Veðrið - 01.04.1962, Side 3
VEÐRIÐ TÍMARIT HANDA ALÞYÐU UM VEÐURFRÆÐI KEMUR ÚT TVISVAR Á ÁRI - VERÐ ÁRG. KR. 40.00 1. HEFTI 1962 7. ÁRGANGUR RITNEFND: JÓN EYÞORSSON FLOSI H. SIGURÐSSON PÁLL BERGÞÓRSSON HLYNUR SIGTRYGGSSON AFGREIÐSLUSTJÓRI: GEIR ÓLAFSSON DRÁPUHLÍÐ 27 . SÍMI 15131 Ur ýmsum áttum Það hefur verið siður að kynna nýja höfuncla, sem skrifa greinar í VEÐRIÐ, með nokkrum orðum, og hygg ég, að ýmis önnur tímarit og blöð mættu taka sér það til fyrirmyndar. Að þessu sinni hafa okkur bætzt tveir nýir höfundar. Þorbjörn Sigurgeirsson prójessor skrifar um Dreifingu geislavirkra ejna frá kjarnorkusprengingum og þar á meðal geislavirk efni í úrkomu hér á landi. Þorbjörn er fæddur á Orrastöðum í Húnavatnssýslu 19. júní 1917, sonur Sigur- geirs bónda Björnssonar frá Grímstungu og konu hans, Torfhildar Þorsteinsdótt- ur. Stúdentspróf á Akureyri 1937 og magisterpróf við Háskólann í Kmhn. 1943. Dvaldist síðan fjögur ár í Danmörku, Svíþjóð og Bandáríkjunum við framhalds- nám í kjarnafræðum og lífeðlisfræði. Framkvæmdastjórn Rannsóknarráðs rík- isins 1949—57, en prófessor í eðlisfræði og forstöðumaður eðlisfræðideildar Há- skóla íslands síðan 1957. Knútur Knudsen veðurfræðingur skrifar mjög fróðlega grein urn Norðanveðrið i nóvembermánuði 1961., en það er einmitt eitt af hlutverkum þessa tímarits að halda til ltaga frásögnum af minnisstæðum veðrum. Iínútur er fæddur í Reykja- vík 13. maí 1926, sonur hjónanna Árna B. Knudsens Luðvígssonar prests að Breiðabólstað í Vesturhópi og Maríu Jónsdóttur frá Flugumýri. Stúdentspróf í Reykjavik 1945 og nám í veðurfræði við Sveriges Meteorologiska och Hydrologiska Institut í Stokkhólmi 1946—48. Hefur síðan starfað hjá Veðurstofu íslands, lengst af á Keflavíkurflugvelli, en síðan haustið 1961 við veðurdeildina á Reykjavíkurflugvelli. * Sveinn Pálsson náttúrufræðingur og læknir átti 200 ára afmæli hinn 25. apríl sl. Var þess og minnzt í Ríkisútvarpinu. Sveinn 1‘álsson gerði daglega veðurat- huganir í h. u. b. 50 ár, hóf þær sumarið 1791, og hélt þeim áfram til hins síð- asta, en hann andaðist í Suðurvík í Mýrdal 24. apríl 1840. Hann hafði jafnan VEÐRIÐ --- 3

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.