Veðrið - 01.04.1962, Blaðsíða 25
JÓNAS JAKOIiSSON:
Hitastig yfir Keflavík
] þetta sinn eru birtar hitalínur frá síðasta vetri, mánuðunum október til
marz.
Hitabreytingar eru litlar fyrri hluta október. Vindur var þá lengstum suð-
lægur og oft skúraveður á Suðurlandi. Þrátt fyrir sunnanáttina var loftið ekki
langt að komið, fyrr en þ. 12. Þá nær liingað suðrænt hafloft með lægð, sem
var afkomandi fellibyls. Næstu dagana snerist til norðanáttar. Kólnaði þá í bili
og gerði frost með fyrstu snjóum á Norðurlandi þ. 16. Daginn eftir mældist
fyrsta frost haustsins í 500 m hæð yfir Keflavík. Þar var seinasta frostið um
vorið 25. maí, svo að lengd sumarsins 1961 hefur samkvæmt því orðið tæplega
21 vika, en meðaltal undanfarinna átta ára er tæpar 19 vikur. Á þessu tímabili
var sumarið 1955 lengst, eða nákvæmlega 21 vika, en það skemmsta var 1957,
15 vikur. Eftir þetta kuldakast kom hlýindakafli, sem stóð í um það bil viku og rís
eins og há alda á línuritinu þ. 19. Það var hlýjasti dagurinn í október. Þá var
dinnn þoka og mikill úði víða við suður- og vesturströndina. Undir lok mán-
aðarins kólnaði í veðri með norðanátt og nokkru frosti. Kemur það glöggt fram
sem öldudalur á línuritinu við mánaðamótin.
Helztu einkenni hitafarsins í nóvember cru hlýindakaflinn skömmu fyrir
miðjan mánuðinn og kuldakastið síðustu tíu dagana. Þ. 12. og 13. kom suðrænt
loft hingað norður. Því fylgdi mjög mikil úrkoma um sunnan og vestanvert
landið. Mest mældist hún á Eyrarbakka og í Kvígindisdal, eða um 100 mm á
sólarhring seinni daginn og nóttina eftir. Ákafast varð vatnsveðrið um það
bil, sem tekur að kólna, þegar kuldaskilin eru að nálgast. Seinni hluta mán-
aðarins kom mikið kuldakast, sem stóð í nær viku. Þá setti niður mikinn snjó
rakkasléttu, þar sem hitinn er 8—10 stig. Þess ber þó að geta, að mjög miklu
munar hvort hitinn er nærri 10 stig eða aðeins rúmlega 8. En vafalaust er, að
þessi lönd eiga eftir að koma að mun meiri notum en nú er, með fólksfjölgun og
aukinni tækni í landinu.
Landssvæði, þar sem júlíhiti er lægri en 8 stig, eru undantekningalítið gróður-
snauð. Þar eru allir jöklarnir, þó að hraðskreiðir skriðjöklar teygi sig á stöku
stað niður í mun meiri sumarhlýju. Samfelldast er kuldasvæðið yfir Vatnajökli
og umhverfi lians, allt til Eyjafjallajökuls. Annað er um miðbik landsins, yfir
Hofsjökli og Langjökli, og hið þriðja á Norðausturlandi, en sundurslitnari eru
öræfin á Vestljörðum, Austfjörðum og milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Sums
staðar er hitinn nærri 8 stigum á stórum svæðum, svo sem Sprengisandi og
Fljótsdalsheiði, og getur ])á mjög orkað tvímælis, hvar mörkin skuli draga.
VHÐRIÐ
25