Veðrið - 01.04.1962, Side 7
Veðurkortið,
þegar norðan-
garðurinn stóð
sem liæst.
eyðilagðist tveggja dagsláttu tún alveg. Þessi tún voru ræktuð fyrir 1930, og
hefur sjór ekki skemmt þau lyrr.
í Skoruvík á Langanesi var eitt mesta brim, sem hér hefur komið, skrifar
Björn Kristjánsson. Flutti sjórinn smærri trjávið og smágrjót langt upp á tún,
og vestan við Svínalækjartanga, jrar sem sjór liggur að stuðlabergi, setti sjór
smærri trjávið upp á bjarg, og mun hæðin þar á bjargi vera 13—15 metrar.
Frá Grímsey hefur Vilborg Sigurðardóttir svipaða sögu að segja, brimið þcytti
trjávið upp á 14 metra liáa kletta í námunda við vitann, og hún hefur það
eftir Sæmundi Traustasyni, að í frau 38 ár, sem hann hafi búið í Grenivík,
syðsta bæ eyjarinnar, myndi hann ekki eftir öðrum eins sjógangi.
Eyjólfur Hannesson segir frá því í sínu bréfi, að í Borgarfirði eystra liafi verið
mesta brim og sjógangur í margra minni, en í Bakkagerðiskauptúni hafi sjávar-
gangur ekki verið öllu meiri en oft áður. En stórbrim það, sem honurn sé
minnisstæðast liafi verið í „Halaveðrinu" 1925. Gefur hann á því athyglis-
verða lýsingu, en ekki verður hún birt hér.
VEÐRie
7