Veðrið - 01.04.1962, Page 11

Veðrið - 01.04.1962, Page 11
3. mynd sýnir geislavirkt úrfall í lofti i september 1959 á mismunandi breiddar- gráðum i Norður- og Suður-Ameriku. Einingin, sem hér er notuð, er um helm- ingi minni en sú sem notuð er á 6. mynd. (U. S. Atomic Energy Corinmission). 4 mynd sýnir Sr—90 i úrliomu á mismunandi breiddargráðum á árunum 1957— 1959. Örin slefnir á mcelipunkt fyrir Reykjavík. Nyrstu stöðvarnar Bodö og Tromsö i Noregi liggja mun hcerra. Meelieiningin pc—picocurie er pað magn geisla- virks eftiis, þar sem að meðaltali 2,2 atóm ummyndast á hverri minútu. (Atomic Energy Research Establishment, Harwell) leiddu í ljós, að tveim mánuðum eftir sprenginguna var þvermál svæðis þess, sem hin geislavirku efni höfðu dreifst um, 1800 km, og gætti þeirra niður á 100 m dýpi. Ari eftir sprenginguna var svæðið orðið um 5000 km í þvermál og þykkt lagsins 600 m. Fari sprengingin lram skammt lyrir ofan yfirborð jarðar, getur þyrlast upp mikið magn af ryki, sem orðið hefur meira og minna geislavirkt vegna nevtrónu- verkana, og sogast upp í gufuhvolfið ásamt öðrum geislavirkum efnum lrá spreng- ingunni. Hin geislavirku elni eru flest í eðli sínu föst efni og sitja á rykkornum, og hefur ryk þetta allt saman verið nefnt geislaryk. Stærri rykkornin falla fljótt til jarðar en dreifast undan vindi á sama liátt og aska frá eldgosi. Þannig rnynd- ast á nokkrum klukkustundum eða örfáum dægrum aflangt svæði þakið lagi af hinu grófasta geislaryki. Ef vindur er sterkur og um stóra sprengju cr að ræða, getur svæði þetta orðið mörg hundruð kílómetrar á lengd, en breiddin er venju- lega nokkrir tugir kílómetra. Hinar smærri rykagnir geta haldist mjög lengi svífandi í loftinu og fylgja þá hreyfingum loftsins. Þannig geta þær komizt marga hringi í kringum jörðina. f nánd við ntiðbaug berst rykið yfirleitt í vestlæga stefnu, en til austurs nær heimsskautunum. Umferðartíminn hefur verið frá viku upp í tvo mánuði. Háttarlag ryksins er mismunandi eftir því hvort þaö er í veðrahvolfinu eða í heiðhvolfinu. Rykið í veðrahvolfinu berst tiltölulega fljótt til jarðar, aðal- lega með úrkomu, þannig að helmingur þess ryks, sem fyrir er, skolast til jarðar á nokkrum vikum. Sé sprengingin gerð mjög hátt í lofti sogast ekkert ryk upp frá yfirborði jarðar og getur þá svo larið, að um ekkert staðbundið úrfall sé að ræða, þar sem ryk- — 1 1 VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.