Veðrið - 01.04.1962, Qupperneq 16
7. mynd sýnir geislavirkt úrfall i úrltomu í Reykjavik. Mánaðargildi. (Mœliein-
ingin er 1 picocurie af geislavirku efni i einum lítra af regni).
8. mynd sýnir geislavirkt úrfall, sem mánaðarlega fellur til jarðar í Reykjavik.
og mæla þá geislunina frá rykinu með því að stinga pappírssíunni undir Geiger-
teljara. Náttúrleg geislavirk efni, sem einkum stafa frá radíum og þóríum, sitja
einnig á rykögnunum, en þau eyðast sjálfkrafa á nokkrum sófarhringum vegna
stutts hefmingunartíma. Á sama hátt má mæfa geisfavirk úrfallsefni í regni með
því að eima burt vatnið og bíða hæfilegan tíma, til þess að hin náttúrlegu geisla-
virku efni eyðist, áður en geislunin er mæld.
5. mynd sýnir geislavirkt úrfall í lofti í Bretlandi allt frá ársbyrjun 1953 til
ársloka 1959. Á 6. mynd eru sýndar niðurstöður tilsvarandi mælinga, sem gerð-
ar hafa verið í Reykjavík frá því á árinu 1958.
Greinilegra áhrifa gætti hér frá kjarnorkusprengingum, sem gerðar voru við
Novaja Semlja bæði liaustið 1958 og haustið 1961. í bæði skiptin virtist geisla-
rykið vera um 8 daga á leiðinni og koma hingað úr vestri eftir að hafa farið
næstum því heilan hring um heimsskautið.
7. mynd sýnir geislavirkt úrfall í úrkomu í Reykjavík, og á 8. mynd er sýnt,
hve mikið af geislavirkum úrfallsefnum fellur mánaðarlega á hvern fermetra
lands. Bæði ryk og úrfallssýnishorn eru tekin á Rjúpnahæð við Reykjavík og
mæld í Eðlisfræðistofnun Háskólans. Niðurstöður mælinganna birtast 1 töflu-
formi í tímariti Veðurstofunnar, Veðráttunni. Einingin, sem hér er notuð fyrir
magn hinna geislavirku efna, er picocurie, en það er það magn, Jaar sem að
meðaltali 2,2 kjarnbreytingar verða á mínútu hverri.
Mælingar á geislavirkum efnum í úrkomu hófust ekki fyrr en í nóvember 1958,
enda Jrótt úrkomu væri safnað frá ársbyrjun. Niðurstöður mælinganna, sem
sýndar eru á 7. og 8. mynd, eru því óeðlilega lágar fram til september 1958.
í marzmánuði 1962 var úrkoman aðeins 2,4 mm. Innihald þessa litla vatns-
magns af geislavirkum efnum mældist mjög Iiátt, eða um 4000 pc/1. Hins vegar
var úrfallið á flatareiningu með minna móti, eða um 10000 pc/m-. Þessar niður-
stöður virðast benda til þess að á Jtessu tímabili hefur verulegur hluti geislaryks-
ins fallið til jarðar án þess að fylgja úrkomu.
16
VEÐRIÐ