Veðrið - 01.04.1962, Blaðsíða 18

Veðrið - 01.04.1962, Blaðsíða 18
FLOSI HKAFN SIGURDSSON: Mannskæð flóð Frá alda öðli hafa náttúruhamfarir hrjáð mannkynið, valdið eignatjóni, þjáningum og dauða. Stundum hafa hamfarir náttúrunnar beinlínis banað gífurlegum fjölda manna, en í önnur skipti hafa hin skaðlegu áhrif verið óbeinni eins og þegar langvarandi þurrkar eða ofsafengin flóð hafa valdið uppskeru- bresti, en af honum hefur síðar leitt mannfall. Hcr á eftir verður vikið nokkuð að Jteint náttúruhamförum, sem einna ill- ræmdastar hafa orðið, en jiað eru hin mannskæðu stórflóð í ám og við láglendar strendur. FLÓÐ í ÁM. Þegar mikið rignir, safnast vatn í ár og læki, og sé úrkomumagnið nægjanlega mikið, flæða árnar yfir bakka sína. Eru langvarandi rigningar og ofsalegar þrumuskúrir algengustu orsakir flóða í ám. Onnur algeng orsök slíkra flóða er bráð leysing, scm stundum er raunar samfara stórrigningum. Mjög fer Jrað eftir staðháttum, hve miklir skaðar verða af flóðum. Mestir verða Jreir þar, sem stórfljót falla um þéttbýlar ársléttur eins og til dæmis Pó- sléttuna á Italíu og flatlendi Jrau, sem stórfljót Suðaustur- og Austur-Asíu hafa myndað með framburði sínum. Einna mestur skaðvaldur hefur Gulafljótið verið á liðnum öldum, enda hefur Jtað með réttu verið kallað „Sorg Kína“. Svo hagar til, að Gulafljótið ber frant ógrynni aurs og leðju, sem sezt í árfarveginn og hækkar hann stöðugt, en um- hverfis cr jarðvegurinn mjög frjósamur og þéttbýli gífurlegt. Hafa því verið byggðir miklir varnargarðar meðfram fljótinu til verndar íbúunum og ökrum Jreirra. Fallout from Nuclear Weapons Tests. (Hearings before the Special Subcommittee on Atomic Energy. Eighty-sixth Congress of tlie United States, 1959, Volumes I and 3). L. T. Alexander et all.: Strontium—90 on the Earths Surface. (Olfice of Technical Information, TID—6567). Quarlerly Report on the Fallout Program of the Health and Safety Loboratory. (United States Atomic Energy Commission). United Kingdom Atomic Energy Authority, Research Groups Reports on Radio- active Fall-Out. (H. M. Stationery Office). Veðráttan, ársyfirlit 1959—1961. 18 VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.