Veðrið - 01.04.1962, Síða 31
H.F. EIMSKIPAFÉLÁG ÍSLANDS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands, verður hald-
inn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn
2. júní 1962 og hefst kl. 1.30 eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum
á liðnu starfsári og frá starfstilhögun á yfirstandandi
ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurð-
ar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1961 og
efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda,
svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá end-
urskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt-
ingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn .félagsins, í stað þeirra
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samjiykktum félagsins (ef tillög-
ur koma fram).
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgcingumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík,
dagana 29.—31. maí næstk. Menn geta lengið eyðublöð fyrir
umboð til J^ess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í
Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri
umboða séu kontin skrifstofu félagsins í hendur til skráningar,
ef unnt er, viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 9. janúar 1962.
STJÓRNIN.
VEÐRIÐ
31