Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 4
4 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR FULLT HÚS JÓLAGJAFA VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 18° 7° 6° 6° 11° 8° 7° 6° 6° 23° 10° 17° 16° 25° 0° 10° 16° 9° Á MORGUN 5-13 m/s, hvassast á Vestfjörðum. LAUGARDAGUR 5-10 m/s, hægast SA-lands. 2 0 -2 0 0 2 2 4 3 6 -3 10 15 13 14 10 5 12 6 7 8 8 1 0 -2 -1 2 5 0 1 4 4 BJART SV-LANDS Í dag verður fremur hvasst víða norðvestan til en lægir smám saman er líður á daginn. Annars staðar verð- ur heldur hægari vindur. Hitinn þok- ast upp á við og næstu daga verður hitinn nálægt frost- marki norðan til en allt að 5-6 gráðum allra syðst. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður ALÞINGI Birgitta Jónsdóttir Hreyf- ingunni minnti varaþingmenn og aðra á þingi á að lesa leyniskjölin svonefndu um Icesave-málin sem vistuð eru í húsakynnum nefndasviðs þingsins og aðeins þing- menn fá aðgang að gegn loforði um trúnað. Hún benti sérstaklega á tiltekið bréf, það síðasta í möpp- unni sem skjölin eru geymd í. Það væri athyglisvert, ekki síst dagsetningin á því. Skjölin sem um ræðir snerta Icesave-málin en þola ekki dags- birtu þar sem um þau gildir trún- aður. Ekki hefur fengist upplýst um hvað þetta síðasta bréf fjallar. - bþs Birgitta Jónsdóttir: Nýliðar á þingi lesi leyniskjölin BIRGITTA JÓNSDÓTTIR SAFNAMÁL Faxaflóahafnir eru að byggja upp aðstöðu þar sem Daníelsslippurinn var starf- ræktur og mun gagnast Víkinni – sjóminja- safninu í Reykjavík. Byggðir verða upp pallar sem tengjast útisýningaraðstöðu safnsins og göngubrú sem tengist safninu beint. Eiríkur P. Jörundsson, forstöðumaður safnsins, segir að með framkvæmdum Faxa- flóahafna sé að verða til einstakt sýningar- svæði. Hluti svæðisins er dráttarbraut sem nýtist safninu sem minnisvarði um þá miklu starfsemi sem var á slippsvæðinu um áratuga skeið. Safnið er í einstakri stöðu. Varðskipið Óðinn er hluti af safnkosti þess auk dráttar- bátsins Magna. „Við vorum svo heppin að Óðinn kom beint hingað úr þjónustu Landhelgisgæslunnar og þess vegna getum við boðið fólki að sjá skipið eins og því var haldið við á meðan það var starfrækt.“ Blikur eru þó á lofti því fimm milljóna króna fjárveiting til safnsins vegna Óðins var felld niður á fjárlögum. Sú upphæð er í raun rekstrarkostnaður við að halda hita og raf- magni á skipinu en Eiríkur útilokar ekki að fé fáist að lokum. „Það er mjög sjaldgæft að fá svona stórt skip á safn í jafn góðu ástandi. Það væri synd og skömm að glutra því niður.“ Safnið fagnaði fimm ára afmæli sínu á dög- unum. Á þessu ári hafa 25 þúsund sótt safnið heim. - shá Faxaflóahafnir byggja upp aðstöðu sem gagnast Sjóminjasafninu Víkinni: Einstakt sýningarsvæði byggt GULLBORGIN Í ÖNDVEGI Gamli báturinn hans Binna í Gröf, aflakóngsins frá Vestmannaeyjum, stendur í slippnum og bíður þess að verða gerður upp. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DÓMSMÁL Lögreglan á Suðurnesj- um rannsakar enn nokkur hliðar- mál við mansalsmálið svonefnda. Þar má nefna innbrot, handrukk- anir, innheimtu „verndartolla“ og ofbeldisbrot, sem fimm litháískir menn eru grunaðir um aðild að. Mennirnir fimm voru í gær úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. desember. Þeir eru ekki lengur í einangr- un en sæta nú svokallaðri lausa- gæslu á Litla-Hrauni. Lögreglan hefur lokið rannsókn á mansals- þætti málsins og sent það til Ríkissaksóknara. Upphaf þessarar umfangsmiklu rannsóknar má rekja til þess er nítján ára litháísk stúlka kom hing- að til lands með flugi frá Varsjá í Póllandi í október. Grunur vakn- aði um að hún hefði verið flutt til landsins sem fórnarlamb mansals og hófust handtökur í framhaldi af því. Þrír Íslendingar sættu gæslu- varðhaldi um tíma vegna lög- reglurannsóknarinnar. Sá þeirra sem lengst sat inni var grunaður um aðild að mansalsþættinum og sat í gæsluvarðhaldi á grundvelli þess. Meðal annars höfðu þrír Lit- háanna unnið hjá fyrirtæki sem hann rekur. Rannsóknargögn lög- reglu varðandi meinta aðild hans að mansalsmálinu hafa einnig verið send til Ríkissaksóknara, sem tekur ákvörðun um hverjir verða ákærðir og hverjir ekki. Umræddur einstaklingur var einnig grunaður um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu varð- andi bruna í ágúst síðastliðnum á húsnæði sem hann átti í Grundarfirði. Forræði þess máls er nú komið til Lögreglustjórans í Stykkishólmi. Mennirnir fimm sem enn sitja í gæsluvarðhaldi eru þekktir að ofbeldisverkum hér á landi. Sumir þeirra tengjast árás á óeinkennis- klæddan lögreglumann sem var við fíkniefnaeftirlit á Laugavegi í janúar 2008. Þá veittist hópur manna að honum með höggum og spörkum. Hann fékk heilahristing og sár víðs vegar á líkamanum. Þá tengjast sumir þeirra sem inni sitja hrottalegri líkams árás í húsi við Grettisgötu í byrjun júní. Sá sem ráðist var á hlaut lífshættulega áverka af árásinni, sem stóð næturlangt. Hann þurfti að vera um skeið í öndunarvél. Þriðja líkamsárásin þar sem sumir gæslufanganna koma við sögu var í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík, einnig í júní. Þá var ráðist á mann og hann illa leik- inn. Hann hlaut brot í andliti og marga langa og gapandi skurði á höfði. Rannsaka ofbeldis- brot og fjárkúganir Fimm Litháar voru í gær úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. desember vegna meintrar aðildar þeirra að mansali hér á landi. Þeir sæta einnig rannsókn fyrir innbrot, innheimtu „verndartolla“ og ofbeldisbrot. FRAMLENGING Fimm Litháar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. desember í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Sá hluti málsins er snýr að mansalsþætti þess hefur verið sendur til Ríkissaksóknara. VIÐSKIPTI Ed Whitacre, stjórnar- formaður bandaríska bílarisans General Motors, sagði í gær leit að nýjum forstjóra fyrirtækisins kunna að taka allt upp undir ár. Fritz Henderson, fyrrverandi forstjóri, var óvænt sagt upp í fyrradag og varð Whitacre að taka stól hans á meðan arftaka er leitað. Whitacre, sem á tvö ár eftir í sjötugt, benti á það á starfsmanna- fundi í gær að þótt leitin stæði yfir að nýjum manni í brúnna vonaðist hann til að starfsemi bílaframleið- andans héldist óbreytt. - jab Leita að nýjum forstjóra GM: Biðin gæti tekið heilt ár SALA Í FULLUM GANGI Forstjóri GM , sem tekið hefur við í óákveðinn tíma, segir leit standa yfir að nýjum manni í brúnna. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP SKATTAR Skattayfirvöld geta í ljósi nýs skattafrumvarps rukk- að fyrirtæki sem hafa farið í gegnum skuldsettar yfirtök- ur um marga milljarða króna. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld. Heimild er til að taka upp framtöl fyrirtækjanna allt að sex ár aftur í tímann. Í nýju skattafrumvarpi er gerð til- raun til að girða fyrir svona við- skiptahætti. Skattayfirvöld hafa lengi haft þá túlkun að gjald- færsla vaxta af skuldum sem tilkomnar eru vegna svona yfir- töku eigi ekki að vera frádrátt- arbær. Verði þetta að lögum er ljóst að skattayfirvöld munu fara yfir skuldsettar yfirtökur síðustu ára. Nýtt skattafrumvarp: Fara yfir skuld- settar yfirtökur ALÞINGI Þingmenn Hreyfingar- innar segjast í bréfi til þingfor- seta ekki eiga aðild að frumvarpi forsætisnefndar um breytingar á lögum um rannsóknarnefnd Alþingis. Í greinargerð þess segir að samkomulag hafi orðið milli formanna þingflokkanna. Þvert á móti vilji Hreyfingin að nefnd fimm þingmanna (en ekki níu) fjalli um skýrslu rannsóknar- nefndarinnar og að nefndarmenn megi ekki hafa setið á Alþingi fyrir október 2008. Þá vilji hún að fimm menn utan þings fjalli um þá þætti skýrslunnar sem snerta alþingismenn og ráðherra og fjölskyldur þeirra. - bþs Þingmenn Hreyfingarinnar: Ósáttir við vinnubrögð GENGIÐ 02.12.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 234,8058 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 121,06 121,64 201,72 202,70 182,77 183,79 24,555 24,699 21,650 21,778 17,612 17,7160 1,3852 1,3934 195,08 196,24 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.