Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 40
 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR4 FRAMHALDSSKÓLANEMAR sem tóku þátt í nám- skeiði Listasafns Reykjavíkur munu sýna afrakstur nám- skeiðsins í fjölnotasal Hafnarhússins í kvöld klukkan 20. www.listasafnreykjavikur.is Það stafar bjarma og birtu af kertunum á kertastjök- um Margrétar Halldórs- dóttur. Margrét er sál- fræðingur að mennt og starfar sem klínískur sál- fræðingur en ákvað fyrir þremur árum að minnka við sig vinnu og eyða meiri tíma í áhuga- mál sín. Hún fór þá í Iðnskólann í Hafn- arfirði. „Það hefur lengi blundað í mér að fara í nám í hönnun enda hef ég lengi verið að vinna ýmislegt með hönd- unum. Þessir kerta- stjakar eru afrakstur fyrsta vetr- arins en þar er ég að vinna með grunnformin og járnið. Það síðast- nefnda hefur alltaf heillað mig. Það er sterkt, sveigjanlegt, stílhreint, fagurt, eilíft en samt svo breyti- legt, fyrir utan að það er sterk hefð fyrir því á Norðurlöndum. Mínir stjakar eru þó alveg rammíslensk- ir,“ segir sálfræð- ingurinn. Þegar skammdegið hellist yfir okkur þurfum við öll ljós. Skamm- degið kallar á birtu og það er notalegt að kveikja á kerti en mörg- um finnst það róa nd i og ylja jafnvel sálartetrið. Kertastjak- inn Bjarmi virðist hafa sérstaklega góð og róandi áhrif á fólk. „Mér hefur verið sagt að hringurinn sé tákn eilífðarinn- ar. enda hefur hann hvorki upphaf né endi. Punkturinn inni í hringn- um táknar ljósið og orkuna sem er drifkraftur lífsins. Ég hef þetta nú ekki eftir vísindalegum heimildum en ég get ekki neitað því að mér finnst þetta áhugaverðar pæling- ar,“ segir Margrét og brosir. Stjakar Margrétar eru fáanleg- ir í Mýrinni og hjá Fríðu á Strand- götu 43 í Hafnarfirði. unnur@frettabladid.is Kertastjakinn Logi sem til er í mörgum litum. Hann má útfæra á mismunandi vegu á vegg. Margrét við kertastakann Bjarma. „Hringurinn er tákn eilífðarinnar, enda hefur hann hvorki upphaf né endi,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Engjateigur 5 - 105 Reykjavík - s: 581 2141 Þýskar gæðabuxur - tvær síddir www.hjahrafnhildi.is             ! "#$% &'( )* + ,-%,.,/,-%,.,0& Strandgötu 43 | Hafnarfirði | Sími 565 5454 fridaskart.is Sk úl av erðlaunin 2009 H and v e r k o g H ö n nu n Fríða Jónsdóttir fyrir verkið „Fjölin hennar ömmu“ Bæjarlind 6 - Eddufelli 2 Sími 554-7030 Sími 557-1730 www.rita.is Glæsilegur fatnaður á góðu verði Ketkrókur er á jólaóróa Styrkt- arfélags lamaðra og fatlaðra í ár. Sá er hannaður af Hrafnkeli Birgissyni og með ljóði eftir Gerði Kristnýju. Íslensk hönnun og ritsnilld eru virkjuð fjórða árið í röð í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Það er gert með jólaóróa úr stáli sem seldur er til ágóða fyrir uppbygg- ingu og þróunarstarf Æfinga- stöðvarinnar en þar fer fram hæfing barna og ungmenna sem þurfa aðstoð við að bæta færni sína í leik og starfi. Í þetta sinn er það listafólkið Hrafnkell Birgis- son og Gerður Kristný sem leiða saman hesta sína við gerð óróans. Hrafnkell fæst við stálið en Gerð- ur Kristný orðin. Ljóð hennar heit- ir Ketkrókur kemst í feitt og er ólíkt mörgum jólaljóðum en hefst á þessum línum: Norðanbálið hamast svo hvorki heyrist spunahljóð né spjall Fyrsti óróinn í seríunni var Kertasníkir eftir Sigríði Heimis- dóttur og Sjón, síðan kom Hurða- skellir sem Guðrún Lilja Gunn- laugsdóttir og Andri Snær Magnason túlkuðu og í fyrra kom Grýla sjálf fram á sjónarsviðið. Hún var eftir Ólínu Pétursdóttur og Hallgrím Helgason. Óróarnir eru framleiddir hjá Geislatækni í Garðabæ og pakk- að hjá Vinnustofunni Ási. Verk- efnið sameinar því margt, svo sem atvinnusköpun, menningararf og gott málefni. Sala óróans fer fram 5. til 19. desember í Casa Skeifunni og Kringlunni, Epal Skeifunni og Leifsstöð, Kraum Aðalstræti og í Rakel Hafberg Work-Shop á Laugavegi. Á landsbyggðinni fæst hann í Blóma- og gjafabúðinni Sauðárkróki, Blómaturninum Ísa- firði, Norska húsinu Stykkishólmi, Póley Vestmannaeyjum og Valrós Akureyri. -gun Gott málefni og menning Járnið er sveigjanlegt, stílhreint og sterkt Margrét Halldórsdóttir sálfræðingur ákvað fyrir nokkrum árum að minnka við sig vinnu og eyða meiri tíma í áhugamál sín. Hún hannar nú og býr til fallega kertastjaka úr járni sem hún segir heillandi efnivið. Hönnuðurinn sér fyrir sér að hægt sé að stinga fingrum gegnum augnholurnar og krækja í kjötið í pottinum.Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.