Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 10
10 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR SAMFÉLAGSMÁL Meirihluti kvenna af erlendum uppruna í ofbeldissamböndum sem leita ásjár Kvennaathvarfsins er frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Aðstæður þeirra eru verri en kvenna frá lönd- um sem aðild eiga að EES. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum rann- sóknar Hildar Guðmundsdóttur, mannfræð- ings og starfsmanns Kvennaathvarfsins, á aðstæðum og upplifun kvenna af erlendum uppruna sem leita til Kvennaathvarfsins. Þetta er fyrsta rannsóknin af þessum toga sem gerð hefur verið hér en niðurstöðurnar voru kynntar í gær. Hildur segir niðurstöðurnar benda til að konur frá löndum utan EES séu varnarlausari en hinar. Dvalarleyfi þeirra fyrrnefndu er tengt maka þeirra en fyrstu fjögur árin sem þær búa hér verður hann að endurnýja dvalarleyfi konu sinnar á ári hverju. Eiginmaðurinn hefur því mikið vald yfir konu sinni fyrstu árin. Þessu er ekki að skipta fyrir þær konur sem koma frá löndum innan EES. Reglugerðir sem Ísland á hlut að gera þeim kleift að fá dvalar- og atvinnuleyfi hér svo framarlega sem þær hafi fundið vinnu. Þá geta þær sótt um leyfi á eigin forsendum, sem bindur þær ekki við eiginmenn eða sambýlinga, ólíkt konum úr hinum hópinum. Hildur segir mikilvægt að bæta löggjöfina og finna úrræði fyrir konur af erlendum upp- runa sem fastar séu í viðjum ofbeldissam- banda. Þótt lög um útlendinga hafi verið bætt með þetta í huga fyrir rúmu ári hvíli rík sönn- unarbyrði á konunum. „Það er oft erfitt fyrir þær að sanna að ofbeldi hafi átt sér stað. Þær hafa ekki farið til læknis og fengið áverka- vottorð. Svo upplifa þær skömm og segja ekki frá ofbeldinu. Þegar þær loks gefast upp og koma til okkar hafa þær engar sannanir í höndunum,“ segir Hildur. Hún telur það tiltölulega einfalt að bæta löggjöfina konunum í vil. „Ég sé fyrir mér að auðveldara verði gert fyrir konur að nýta sér þetta ákvæði svo sönnunarbyrðin verði ekki eins erfið, eða setja viðauka við hana sem hjálpi fólki við þessar aðstæður.“ Eins megi fræða konurnar betur um möguleika þeirra, rétt og úrræði þegar þær fái dvalarleyfi hér. Þá verði að kynna þeim hefðir og venjur hér á landi. Það kunni þó að vera erfitt. „Það er ekki hagur ofbeldismanns að konan fái upp- lýsingar sem hún geti nýtt sér. Konur í þeirri stöðu eru tilvalin fórnarlömb fyrir ofbeldis- menn,“ segir Hildur. jonab@frettabladid.is FÓRNARLAMBA MINNST Mótmælt fyrir framan höfuðstöðvar Dow Chemicals í Brussel í gær, í tilefni af því að 25 ár eru liðin frá Bhopal-mengunarslysinu á Indlandi. Átta þúsund dóu strax á fyrstu dögunum eftir slysið, en 25 þúsund dauðsföll hafa verið rakin til þess. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VA LHÖL L BÁSAR Mjúk kláðafrí ullarnærföt úr 100% Merino ull. 100% Merino ull sem heldur vel hita á líkamanum og dregur raka frá húðinni. fyrir börn fyrir fullorðna Verð bolur: 5.800 kr. Verð buxur: 4.500 kr. Verð bolur: 10.500 kr. Verð buxur: 9.100 kr. Kláð afrí ull Kláð afrí ull SPÓI Góð 100% Merino ullarnærföt sem halda barninu þurru og hlýju. fyrir ungbörn Verð bolur: 3.200 kr. Verð buxur: 2.800 kr. Kláð afrí ull HILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR Helmingur þeirra kvenna sem leituðu ásjár Kvennaathvarfsins á síðasta ári var af erlendum uppruna. Meirihluti þeirra var frá löndum utan EES-svæðisins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Hjálpa þarf konum frá löndum utan EES Konur frá löndum utan EES og leita ásjár Kvennaathvarfsins eru varn- arlausari en aðrar. Mikilvægt er að fræða þær um hefðir og venjur hér á landi. Ofbeldismenn hafa hag af því að konur séu ekki upplýstar. Í rannsókn Hildar eru nokkrar reynslusögur kvenna af erlendu bergi brotnar sem leituðu ásjár Kvennaathvarfsins. Hér eru tvær: ■ „Kona kom í lögreglufylgd í Kvennaathvarf. Hún hafði búið á Íslandi í nokkur ár en gat ekki gefið upp heimilisfang. Hún vissi ekki hvar hún bjó enda hafði maður hennar haldið henni einangraðri allt frá því hún kom til landsins.“ ■ „Eiginmaðurinn lét konuna sína skrifa undir móttekin laun sem hún fékk aldrei. Maðurinn sagði henni að þau færu upp í rafmagns- og hitakostnað og fleira.“ REYNSLUSÖGUR ÚR RANNSÓKNINNI Rannsóknin náði til 67 kvenna af erlendum uppruna sem leituðu til Kvennaathvarfsins á tímabilinu 1. október 2007 til 1. júní 2009. ■ Í fyrra leituðu 130 konur til Kvennaathvarfsins. Helmingur þeirra var af erlendum uppruna. Þar af voru fjörutíu konur utan EES-svæðisins. Sautján þeirra voru frá Afríku. ■ Flestar konurnar frá EES-ríkjunum eru í lág- launastörfum. Þær eru í betri stöðu á vinnu- markaði en kynsystur þeirra í hinum hópnum vegna samninga um frjálst flæði vinnuafls innan EES. Nokkrar konur í seinni hópnum höfðu ekki atvinnuleyfi og áttu í erfiðleikum með að framfleyta sér. ■ Makar flestra kvenna frá EES-löndunum hafa svipaðan bakgrunn og konurnar. Áberandi er að karlarnir eiga við áfengis- og/eða fíkni- efnavanda að stríða og hefur lögregla þurft að hafa afskipti af þeim. ■ Helmingur maka kvenna utan EES-ríkjanna eru Íslendingar. Tæpur helmingur þeirra átti við áfengis- og/eða fíkniefnavanda að stríða. ■ Svo virðist sem einhverjir mannanna hafi fundið sér konur í gegnum Netið oftar en einu sinni. Í einu tilviki hefur sú staða komið upp að tvær konur af erlendum uppruna hafa leit- að í Kvennaathvarfið vegna sama mannsins. SKÝRSLAN Í HNOTSKURN ALÞINGI Unnur Brá Konráðsdóttir Sjálfstæðisflokki segir að nýtt fjórtán prósenta virðis- auka skatts þrep á tiltekna matvöru vegi að innlendri matvælaframleiðslu. Á þingfundi í gær sagði Unnur Brá að uppsagnir og launa- lækkanir væru fyrirsjáanleg- ar hjá fyrirtækjum sem þyrftu að þola þá hækkun ofan á aðrar hækkanir. Spurði hún hvort atvinnustefna ríkisstjórnarinnar fælist í þessu. - bþs Hækkun virðisaukaskatts: Innlend fram- leiðsla að veði ÖRYGGISMÁL Þyrla Landhelgis- gæslunnar var kölluð út á sunnu- dagskvöld þegar stjórnstöð barst beiðni um aðstoð við að flytja björgunarsveitarmenn frá Akur- eyri upp á Þverárbrekkuhnjúk í Öxnadal. Þar voru fjórir menn í sjálfheldu í klettabelti sem er í 900 metra hæð. Skömmu síðar var útkallið sett í bið þar sem mennirnir virtust geta komið sér niður af sjálfsdáð- um. Um miðnætti var aftur haft samband og fór þyrla í loftið frá Reykjavíkurflugvelli um mið- nætti. Mennirnir komust sjálf- ir heilu og höldnu niður og var þyrlunni snúið við og flogið til Reykjavíkur. - shá Fjórir í sjálfheldu: Þyrla send en reyndist óþörf TF-LÍF Þyrla Gæslunnar reyndist óþörf þegar til kom. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LÖGREGLUMÁL Ungir menn á Akra- nesi töldu sig þurfa jólaskraut í íbúð sína á aðventunni. Þeir létu því greipar sópa í görðum íbúa á staðnum. Mörgu var stolið, jólaseríum og jólaljósum ýmiskonar, auk þess sem þjófarnir höfðu á brott með sér jólasvein og snjókarl sem fest- ir voru niður á gangstéttarhell- ur í garði einum. Hellurnar tóku þjófarnir með. Lögreglumenn á eftirliti áttu leið fram hjá íbúð í fjölbýlishúsi í bænum um síðastliðna helgi. Inn um glugga sáu þeir að íbúarn- ir höfðu fest upp mikið magn af útijólaljósum inni í stofu og þar á meðal stóð vel upplýstur snjókarl úti í glugga. Bönkuðu lögreglu- mennirnir upp á og fundu þar megnið af jólaljósunum og skraut- inu sem stolið hafði verið undan- farna vikuna. „Þetta var með því jólalegra sem maður hefur séð,“ sagði lög- reglan við Fréttablaðið. „En þeir vissu upp á sig skömmina og gera þetta ekki aftur.“ Og það reyndust orð að sönnu. Daginn eftir bönkuðu þjófarnir upp á á lögreglustöðinni og skil- uðu restinni. Jólasveinninn og snjókarlinn komust þar með aftur til síns heima. - jss SNJÓKARL Piltarnir stálu meðal annars snjókarli og jólasveini. Þjófar stálu miklu af jólaskrauti úr görðum á Akranesi: Snjókarl í glugga benti á þýfið DÓMSMÁL Tveir menn, rúmlega tvítugir, hafa verið ákærðir fyrir stórfelld fjársvik. Á þrem- ur dögum tókst þeim að svíkja út vörur fyrir rúmlega eina millj- ón króna. Við þetta notuðu þeir stolin greiðslukort sem þeir framvísuðu samtals í tuttugu og fimm skipti. Mennirnir stunduðu svikin í Reykjavík og á Suðurlandi. Þeir leituðu einkum fanga á bensín- stöðvum, en einnig í söluskálum og vínbúð. Auk þessa eru mennirnir báðir ákærðir fyrir þjófnaði úr versl- unum, og annar þeirra jafnframt fyrir innbrot í einbýlishús. - jss Tveir rummungsþjófar: Tveir ákærðir fyrir stórsvik
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.