Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 68
52 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is Útón hélt árlegt jólaglögg sitt á Café Rosenberg fyrir skömmu. Þar söfnuðust saman félög tónlistarmanna og útgefenda og báru saman bækur sínar. Helstu hagsmuna- félög tónlistarmanna og útgefenda kynntu starfsemi sína á markaðstorgi og tónlistarmaðurinn Svavar Knútur sá um að koma gestum í jólaskap. Í boði var Rosenberg-glögg og piparkökur sem runnu ljúft ofan í gestina. Tónlistarmenn súpa á jólaglöggi ANNA OG SIGTRYGGUR Anna Hildur Hildibrandsdóttir hjá Útón og trommar- inn Sigtryggur Baldursson báru saman bækur sínar. Í STUÐI Loftur S. Loftsson og Svavar Knútur voru í góðu stuði. MARGRÉT OG KRISTÍN Margrét Sigrún Sigurðardóttir og Kristín Marta Hákonar- dóttir fengu sér jólaglögg. ÓLAFUR OG SVERRIR Ólafur Haraldsson og Sverrir Stormsker litu inn. ÞRJÚ Í JÓLAGLÖGGI Guðrún Dóra, Halli Valli og Harpa Hrund mættu í jóla- glöggið. JAKOB OG AÐALSTEINN Jakob Frímann Magnússon, formaður Félags tónskálda og textahöfunda, og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson voru á meðal gesta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Í gær birtust fréttir í tímarit- um hið vestra þess efnis að Jake Gyllenhaal og Reese Witherspoon hefðu slitið sambandi sínu. Tals- menn þeirra beggja neituðu sögu- sögnunum og sögðu parið enn vera saman. Peop- le Magazine heldur því fram að þau skötuhjú séu þó að ganga í gengum ein- hvers konar sambandserf- iðleika, enda hafi parið ekki sést saman opinberlega síðastliðnar vikur. Witherspoon á að hafa sagt nánum vinum á þakkargjörðardag að hún og Gyllen- haal væru ekki leng- ur saman og sam- kvæmt heimildum eyddi hún deginum ein síns liðs. „Fólk heldur að þau séu mjög hamingju- söm en málið er að Jake vill giftast Reese en hún er ekki á þeim buxunum. Hún er nýskilin og ekki til- búin til að ganga aftur í hjónaband,“ var haft eftir heimildarmanni sem bætir við að With- erspoon vilji ekki leggja það á börnin sín tvö að ganga strax aftur í hjóna- band. „Þau eru mjög hrif- in hvort af öðru og þau eru gott teymi, en Reese er sátt við lífið eins og það er núna og finnst óþarfi að æða af stað í eitthvað hjónaband.“ Reese vildi ekki giftast Jake strax ÁNÆGÐ MEÐ LÍFIÐ Reese Witherspoon er ekki tilbúin til að ganga í það heilaga strax með Jake Gyllen- haal. Talsmenn þeirra segja þau þó ekki hætt saman. Næsta plata rokkaranna í Limp Bizkit hefur fengið nafnið Gold Cobra. Það var söngvarinn Fred Durst sem greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni. Platan er væntanleg fyrri hluta næsta árs og verður hún sú fyrsta síðan The Unquestionable Truth (Part 1) kom út árið 2005. Platan verður einnig sú fyrsta með upprunaleg- um hljómsveitarmeðlimum síðan Chocolate Starfish and the Hot Dog Flavored Water kom út árið 2000. Limp Bizkit virðist því vera komin á góða siglingu í fyrsta sinn í langan tíma, aðdáendum hennar væntanlega til mikillar ánægju. Gold Cobra frá Bizkit FRED DURST Durst og félagar í Limp Bizkit eru hvergi nærri hættir. Ný plata er væntanleg á næsta ári. Líkt og Fréttablaðið hefur greint frá mun skemmtistaður- inn Sirkús verða opnaður 11. desember í Færeyjum. Á jarð- hæð hússins verður að auki starfrækt tískuverslun sem hefur hlotið nafnið Zoo, en þar verður til sölu hönnun eftir íslenska og færeyska hönnuði. Árnheiður Edda Hermannsdóttir klæðskeranemi er einn þeirra upprennandi hönnuða sem munu selja vörur sínar í versluninni sem er rekin af Jóel Briem og Sunnevu Eyst- urstein. Hún segir verkefnið bæði vera spennandi auk þess sem það virki sem hvatning fyrir unga hönnuði. Ásamt Árnheiði Eddu munu Gígja Ísis Guðjónsdóttir, Philippe Clause, Sesselja Hlín Rafnsdóttir, Katrín Alda Rafnsdóttir og Eygló Lárusdóttir selja hönnun sína í versluninni. „Sess- elja hefur verið að hanna kraga, peysur og ýmislegt annað og ég verð með kjóla, gallabuxur og leggings svo fátt eitt sé nefnt. Philippe er að hekla skemmtilega kraga úr endur- unnu efni og Katrín Alda og Eygló hafa vakið mikla athygli undanfarið fyrir fallega hönnun sína.“ „Þetta er í fyrsta sinn sem hönnun mín fer í sölu ein- hvers staðar svo þetta er mjög spennandi,“ segir Árnheiður Edda sem ætlar að vera viðstödd opnunina. „Ég fer út og ætla að taka þátt í opnuninni. Það hitti líka svo vel á að ég klára prófin deginum áður þannig að þetta verður langþráð frí,“ segir Árnheiður Edda að lokum. - sm Íslenskir hönnuðir til Færeyja SPENNANDI VERKEFNI Árnheiður Edda Hermannsdóttir er ein þeirra hönnuða sem munu selja hönnun sína í nýrri verslun í Færeyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐ F37021209 Við leitum að metnaðarfullum veitingastjóra Ein stærsta og glæsilegasta veit- ingadeild landsins hefur falið okkur að auglýsa eftir metnaðar- fullum veitingastjóra sem hefur drifkraft og hæfileika til að stýra margþættri veitingastarfsemi. Starfið felst í yfirumsjón og skipu- lagningu á kvöld- og hádegisverðar- stað, fundar- og ráðstefnuhaldi, árshátíðum og öðrum atburðum. Hæfniskröfur: Próf í framreiðslu, matreiðslu, hótel- rekstrarfræði eða sambærileg mennt- un og/eða reynsla af veitingarekstri. Starfið krefst þjónustulundar, stjórn- unarhæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum. Áhugasamir eru beðnir um að fylla út umsóknarform á vef okkar, argus.is. Fullum trúnaði heitið. > SKÓRNIR Í LAGI Katie Holmes sagði háu hælana sem dóttir hennar klæðist vera dansskó sem ekki færu illa með fætur barnsins. „Hún elskar háa hæla, eins og allar litlar stelpur. Ég fann hennar skó í dansskóla og hún dáir þá,“ sagði leikkonan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.