Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 16
16 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR Álfelgur, vindskeiðar, mottur, palllok, toppbogar, krómlistar og margt fleira. Úrval aukahluta fyrir Volkswagen Polo, Golf, Passat, Touareg og Tiguan, Skoda Octavia og Fabia, Mitsubishi Pajero og L200. Allt að 50% afsláttur. 100% vaxtalaus þjónustulán í boði. Tilboðin gilda til 15. desember Nú er rétti tíminn til að gera bílinn flottari – Frábær tilboð á aukahlutum í desember EFNAHAGSMÁL Verkefnaskortur inn- anlands og samdráttur í viðskipta- löndum okkar gerir að erfiðlega gengur að koma í verð vinnuvél- um og ökutækjum sem fjármögn- unarfyrirtæki hafa þurft að leysa til sín. „Við erum ekkert að senda út úr landinu eins og er,“ segir Guð- rún S. Björnsdóttir, markaðsstjóri Lýsingar. „Markaðirnir í Evrópu hafa dregist saman og þar með eftirspurnin og verð er eftir því,“ segir hún en kveðst þó vonast til að sem fyrst megi koma einhverj- um af þessum tækjum í verð. „Þetta gerir engum greiða þarna á hafnarbakkanum.“ Guðrún segir erfitt að segja til um þróunina í því hvort fyr- irtækið þurfi að leysa mikið til sín til viðbótar af farartækjum eða vinnuvélum. „Það hafa ekki verið neinar sveiflur í þessu og allt frá hruni reynt að koma til móts við fólk eftir megni, svo sem með frystingu lána og frestunum. Það hjálpar mjög mörgun, en því miður eru það verstu dæmin sem lenda í þessu.“ Þá segir Guðrún ekki útlit fyrir að mikil hreyfing komist á mark- að með vinnuvélar í bráð. „Meðan verkefni eru fá er lítil þörf fyrir tækin,“ segir hún en kveður um leið nokkra hreyfingu á markaði með notaða bíla. Kjartan Georg Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP-fjármögn- unar, hefur líka orð á skorti á markaði fyrir notaðar vinnuvél- ar og þar hjálpi ekki til að ríkið sé hætt að bjóða út ný verkefni. Ein- hver markaður sé þó til staðar í Evrópu. „Það selst alltaf, en samt aldrei á nógu háu verði til að dugi fyrir skuldinni, því markaðurinn er slæmur úti líka,“ segir hann. Kjartan kveðst hins vegar von- ast til þess að mesti skaflinn sé að baki í að taka tæki til baka. Hann segir þó að nokkrar sveiflur geti verið í þeim málum, svo sem ef taka þurfi tæki hjá stórum verk- tökum líkt og nýverið hafi gerst. olikr@frettabladid.is NOTAÐIR BÍLAR Séð yfir bíla í eigu SP-fjármögnunar við Hafnarfjarðarhöfn. Að sögn framkvæmdastjóra SP notar fyrirtækið svæðið til geymslu og því er ekki hægt að gefa sér að tæki þar séu öll á leið úr landi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vinnuvélarnar gera engum gagn á hafnarbakkanum Lítill markaður er fyrir bíla og tæki sem fjármögnunarfyrirtæki hafa tekið af kaupendum í greiðsluþroti. Bílar og vinnuvélar hrannast upp á geymslusvæðum. Einhver hreyfing er þó á markaði með notaða bíla. VINNUTÆKI Í HRÖNNUM Á geymslusvæði Lýsingar við Hafnarfjarðarhöfn getur að líta fjölmarga vörubíla og ótal gröfur sem bíða þess að hægt verði að koma þeim í verð. Í flestum tilvikum er um að ræða tæki sem fyrirtækið hefur þurft að leysa til sín vegna greiðsluvandræða kaupenda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA UPPLÝSINGATÆKNI „Á þessu ári hefur gengið vel að gera heim- inn bæði opnari og tengdari. Með ykkar hjálp hafa nú yfir 350 millj- ónir manna tengst Facebook,“ segir Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, í opnu bréfi til notenda sem birt var á vefnum í gær. Fram kemur að með auknum fjölda notenda hafi eðli vefsins breyst og tími sé kominn á breyting- ar á uppbyggingu hans. Samskipta- vefurinn er fimm ára gamall. Hann segir að aðgangsstýringar þær sem Facebook-vefurinn noti nú snúist um svokölluð „tengsla- net“ (e. networks) sem séu umgjörð fyrir vinnustaði, skóla eða jafn- vel heilu þjóðríkin. „Þetta gafst vel þegar flestir notendur Face- book voru í hópi háskólanema,“ segir Zuckerberg, en bætir um leið við að þegar komin séu millj- ónatengslanet sé virkni þeirra til aðgangsstýringar takmörkuð. Zuckerberg upplýsir að til standi að fjarlægja svæðisbundin tengsla- net og koma á einfaldari leiðum þar sem notendur ákveði hvaða efni hver tengslahópur þeirra fái að sjá, vinir, vinir vina eða allir. Þá fái notendur betri tæki til að stýra því hverjir fái augum litið stakar færslur sem þeir setji á netið. Hann varar notendur við því að á næstu vikum kunni þeir að þurfa að uppfæra stillingar fyrir aðgangsstýringu síðna sinna. - óká Í DAVOS Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri bandaríska samskiptavefsins Facebook, sést hér á fundi í Davos í Sviss snemma á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Opið bréf frá Mark Zuckerberg, stofnanda og forstjóra Facebook: Fjöldi notenda yfir 350 milljónum FÍLAPÓLÓ Kristján Edwards, fæddur á Íslandi en uppalinn í Nepal, liðsmaður Tiger Tops Tusker (til hægri) slæst um boltann við James Manclark í liði Angus Energy á 28. alþjóðlega fílapólómótinu í Bardiya í Nepal í gær. Lið Kristjáns vann leikinn, 6-3. FRÉTTABLAÐIÐ/AP PERÚ Frétt sem fór eins og eldur í sinu um heimsbyggðina fyrir fyrir tveimur vikum, um að glæpaklíka í Perú hefði myrt fjölda manns og selt fitu fórnar- lamba sinna til sápugerðar, var uppspuni frá rótum. Þetta kemur fram á vef BBC. Felix Murga lögregluforingi greindi þá frá því að lögreglusveit hans hefði handtekið fjóra menn sem væru grunaðir um að myrða allt að sextíu manns. Þeir hefðu selt fitu fórnarlambanna vestræn- um snyrtifyrirtækjum til sápu- gerðar fyrir 1.000 dali á lítrann. Vísindamenn véfengdu fréttina og sögðu að fita manna væri verð- laus með öllu. Engar sannanir hafa fundist sem styðja ásakanir Murga gegn fjórmenningunum. Í gær vék ríkislögreglustjóri honum frá störfum fyrir að sverta orðspor lögreglunnar. - pg Lögregla staðin að lygum: Fréttir um fitu- morð í Perú voru uppspuni SJÁVARÚTVEGUR ESB, Færeyjar og Noregur hafa nú boðið Íslandi til viðræðna um heildarstjórnun makrílveiða í Norðaustur-Atlants- hafi í mars 2010. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, hefur þekkst boðið. Öll strandríkin eru sammála um nauð- syn sameiginlegrar stjórnunar veiða úr þessum mikilvæga stofni. Jón Bjarnason gaf nýlega út reglugerð sem heimilar einhliða veiðar íslenskra skipa á 130.000 tonnum af makríl á árinu 2010. Á fundinum verður rætt um aflahámark, skiptingu afla, aðgang að lögsögu, vísindasam- starf og eftirlit með veiðum. - shá Þíða í makríldeilu: Íslendingar loks að borðinu VINNUMARKAÐUR Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hefur þungar áhyggjur af umfangi skattahækk- ana sem sé mun meira en boðað var við gerð stöðugleikasáttmál- ans. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar ASÍ sem birt var í gær. Í ályktuninni segir að mikilvægt sé að breytingar á sköttum ein- staklinga verði með þeim hætti að þeim tekjulægstu verði hlíft sem kostur er. Stjórnin mótmælir jafnframt boðuðum breytingum á skattlagningu tekna sjómanna og bendir á að við gerð stöðugleika- sáttmálans í vor hafi því verið heitið að ekki yrði gripið til aðgerða sem hefðu bein áhrif á innihald kjarasamninga. - jab ASÍ mótmælir skattahækkun: Vilja hlífa þeim tekjulægstu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.