Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 64
48 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Belafonte nefnist plata með samnefndum dúett Styrmis Sigurðssonar og Söru Marti Guðmundsdóttur. Sara söng með hljómsveitinni LHOOQ áður en hún sneri sér að leiklistinni, en Styrmir spilaði með í Pax Vobis og Grafík á 9. áratugnum áður en hann sneri sér að kvik- myndagerð. Á Belafonte plötunni mætast gamlir og nýir straumar með nokkuð nýstárlegri niðurstöðu. „Þetta byrjaði nú bara þannig að ég stóð úti á svölum á gaml- árskvöld fyrir mörgum árum og ákvað að mig langaði til að gera þessa plötu,“ segir Styrm- ir. „Ég hafði einhverja hugmynd um hvert þetta ætti að stefna og langaði að vinna með söngkonu, án þess þó að vita hvaða söng- konu. Ríkislistamaðurinn Ragnar Kjartansson benti mér á Söru. Ég talaði við hana og leyfði henni að heyra efni sem ég hafði verið að grúska í og henni leist vel á það. Hún sagðist að vísu vera á leið í leiklistarnám og því í framkomu- banni, en það reyndist ekki skipta neinu máli. Nú er hún í masters- námi í London loksins þegar plat- an kemur út.“ Skrýtnir hljóðheimar Belafonte platan hefur tekið lang- an tíma í vinnslu. „Maður er búinn að vera að rölta með þetta á hörðum diskum milli húsa árum saman svo það er léttir að platan sé að koma út,“ segir Styrmir. „Ég er vissulega búinn að vera mikið einn með músina að dingla mér, svo það var gaman þegar einhver kom í heimsókn. Menn eins og Sigtryggur Baldursson og Helgi Svavar. Þá lifnaði yfir þessu. Ég hafði verið upptekinn af elektrón- ískum hljóðheimum en mig lang- aði til að máta þá við hefðbundnari lagasmíðar. Að koma með eldri og angurværari harmóníur inn í ein- hverja skrítna hljóðheima. Ferlið allt var mjög tilraunakennt. Svona, „hvernig myndi það hljóma ef öllum bassatrommuslögum í þessu lagi væri nú skipt út fyrir þenn- an fína vængjaþyt í hrafni sem er búið að lækka niður um áttund?“. Það tók kannski þrjá daga og þá sagði maður: Nei, þetta er alveg glatað, ég ætla að gera eitthvað annað. Það er nú kannski þess vegna sem mig langar að þróa nýtt efni með öðru fólki frekar en mús. Þannig hafa hlutirnir tilhneigingu til að gerast aðeins hraðar.“ Styrmi vefst tunga um tönn þegar hann þarf að lýsa músík- inni. „Þetta er elektróník, og líka popp, harmoníurnar kannski svo- lítið djassskotnar. Samt er maður alltaf pönkari í hjartanu. Maður vill að það sé eitthvað óvænt og allt vaðandi í litríkum sköpunar- krafti. Því vildi ég helst ná fram. Að það væri fullt af hugmyndum í þessu og stuð.“ Hópæði í Árseli Þrátt fyrir að hafa verið lengi við- loðandi músik er Belafonte fyrsta platan sem Styrmir getur kallað sína eigin. Hann sneri sér snemma að kvikmyndagerð og vinnur við hana, þótt hann hafi nú gefið út Belafonte plötuna og sé að auki í píanónámi. „Ég var í hljómsveit- arbrölti þegar ég var ungling- ur,“ segir hann. „Ég hafði líka mikinn áhuga á kvikmyndum og þetta togaðist á í mér. Ég kynntist aðeins lífi atvinnutónlistarmanns- ins á Íslandi og fannst það bara svo óáhugavert. Manns beið ein- hver lágdeyða, ímyndaði ég mér, að spila á stórsýningum á Hótel Íslandi og svona. Mér fannst það ekki spennandi. Ég var eitthvað smeykur um að mér myndi reyn- ast erfitt að viðhalda ástríðunni í tónlistinni. Það hafa reyndar fjöl- margir síðan náð að sameina þetta tvennt á fallegan hátt. Kvikmynda- gerðin var samt líka tækifæri til að gera bæði. Oftar en ekki vil ég hugsa kvikmynd sem einhvers konar tónlist og öfugt.“ Styrmir var viðloðandi hljóm- sveitir á 9. áratugnum. „Ég var voða mikið fenginn með. Spil- aði sem svona session-gæi með Pax Vobis og seinna með Grafík. Ég var miklu yngri en þeir. Þeir í Grafík voru í kringum þrítugt en ég þá 17 ára. Þá upplifði ég eitt lítið poppstjörnumóment sem mér þykir vænt um. Ég var að spila með Grafík í Árseli í Árbæ og það varð hópæði hjá krökkun- um í minn garð. Líklega af því að ég var yngri en hinir í band- inu. Ég þurfti að bíða þetta af mér inni á skrifstofu. Þegar þessu pín- lega glamúr mómenti svo lauk gat ég loksins tekið strætó heim til mömmu. Mér fannst þetta eitthvað svo skemmtilegt og lýsandi að fá að vera poppstjarna í augnablik og svo út að skrapa fyrir farinu til að komast heim til mömmu.“ drgunni@frettabladid.is Putti á mús og pönk í hjarta ANGURVÆRAR HARMÓNÍUR Sara og Styrmir í Belafonte kanna skrýtna hljóðheima á nýrri plötu. Þó að rokkið hafi komið fram um miðja síðustu öld þá hefur manni virst það lifa enn góðu lífi. Endurnýjun hefur verið töluverð og ný afbrigði sífellt að bætast við til að auðga hina stóru heildarmynd. Nú þegar það eru liðin nokkur ár af nýrri öld má samt alveg spyrja sig hvað verði eiginlega um rokkið á 21. öldinni? Í sögunni hafa fyrstu ár nýrrar aldar oft farið í að vinna úr öldinni á undan, en svo koma stóru breytingarnar. Ástæðan fyrir þessari fyrirsögn hér að ofan eru tvær nýlegar for- síður stórra rokktímarita. Annars vegar er það forsíða janúarheftis hins breska Q. Á henni er stór fyrirsögn: „Listamaður aldarinnar“ og undir henni mynd af stærstu rokkstjörnum 21. aldarinnar að mati blaðsins. Og hverjir skildu það svo vera? Jú, Paul McCartney, U2 og Oasis eru þarna fremstir í flokki. Ef stærstu rokkarar nýrrar aldar eru tónlistarmenn sem gerðu sín bestu verk upp úr miðri síðustu öld þá jafngildir það að sjálfsögðu dánarvottorði. Þetta er búið. Hvíl í friði … Hin forsíðan er svo forsíða ítalska Rolling Stone. Á henni er falleg mynd af Silvio Berlusconi unnin af Shepard Fairey sem gerði Hope-myndina af Obama og undir er fyrirsögnin „Rokkstjarna ársins:Silvio“. Nú er auðvitað auðvelt að sjá rokkstjörnu í Berlusconi. Tæplega sjötugur saurlífisseggur sem giljar kornungar fyrirsætur og lætur eins og hann eigi heiminn. Lýsingin gæti eins átt við Mick Jagger. Ítalir hafa víst ekki allir húmor fyrir rokkaranum Silvio sem er kannski skiljanlegt. Hvað er eftir af rokkinu ef valda- sjúkur og siðblindur stjórnmálamaður og auðjöfur er mesti rokkarinn? Á móti má auðvitað halda því fram að Q og Rolling Stone séu kannski ekki bestu miðlarnir til að skoða ef maður hefur áhuga á framtíð rokksins. Það þarf kannski að leita á ferskari mið. Rokkstjarna ársins á Ítalíu > Plata vikunnar Gunnar Þórðarson – Vetrarsól „Á Vetrarsól eru tónleikar Gunnars Þórðarsonar frá því í októberbyrjun á hljóð- og mynddiski. Innileg og góð kvöldstund með einum af meisturum íslenskrar popp- sögu.“ Damon Albarn, sem er nýbúinn að klára Blur kombakkið, er með margt í pípunum. Lengst er komin næsta plata Gorillaz, sem mun fylgja eftir plötunni Demon Days frá 2005. Nýja platan heitir Plastic beach. Það er það sem Damon kallar ströndina fyrir utan húsið sitt. en hún er full af plastflöskum og drasli sem rekið hefur á land. Ýmist frægðarfólk treður upp. Á Gorillaz-plötunni heyrist í Snoop Dogg, Lou Reed, Barry Gibb, Mos Def, The Syrian National Orchestra, Bobby Womack og hljómsveitinni the Horrors. Það eru fleiri járn í eldinum. Damon er með verk í smíðum með teiknimyndagúrúnum Alan Moore, sem á að setja upp í The Royal Opera House og hann er að taka upp plötu með afró-tromm- aranum Tony Allen og Flea úr Red Hot Chili Peppers. Í janúar er svo von á heimildarmyndinni No Distance Left to Run, sem fjallar um hljómsveitina Blur. Bono, söngvari U2, segist vera himinlifandi og auðmjúkur yfir því að hljómsveitin verði eitt af þremur aðalnúmerunum á Glaston- bury-hátíðinni næsta sumar. Þá verða fjöru- tíu ár liðin síðan hún var haldin í fyrsta sinn á Englandi. „Allir í hljómsveitinni eru mjög spenntir fyrir þessu,“ sagði Bono. Þetta verður í fyrsta sinn sem U2 spilar á tónlist- arhátíð í rúm 25 ár og því um merkisviðburð að ræða. Sveitin mun fljúga sérstaklega til Bretlands úr tónleikaferð sinni um Norður- Ameríku vegna tónleikanna. Glastonbury-hátíðin verður haldin dag- ana 25. til 27. júní á sama tíma og heims- meistarakeppnin í fótbolta fer fram í Suður- Afríku. Engir aðrir stórir flytjendur hafa verið tilkynntir. David Bowie hefur neitað orðrómi um að hann stígi þar á svið. Aftur á móti er talið líklegt að rokkararnir í Muse mæti á svæðið. Einnig hefur orðrómur verið uppi um að The Rolling Stones verði einn af þremur stærstu flytjendunum á hátíðinni en hún hyggur á tónleikaferð um heiminn á næsta ári. Miðar á Glastonbury seldust upp skömmu eftir að þeir fóru í sölu í síðasta mánuði. Spenntur fyrir Glastonbury > Í SPILARANUM Bloodgroup - Dry land Andri Arngrímsson - Orrustan um Esjuna Jóhann G - Á langri leið Sigurður Guðmundsson & Memfismafían - Jóla smáskífa Dónadúettinn - Venjulegt kynlíf DÓNADÚETTINNBLOODGROUP U2 Bono og félagar í U2 eru fullir eftirvæntingar yfir því að spila á Glastonbury- hátíðinni. Plastströnd Gorillaz GORILLAZ Þriðja platan væntanleg í mars. Fyrirtæki á Höfuðborgar svæðinu og Akureyri. Bjóðum upp á örugga og hraða sendingar þjónustu fyrir jólin. Pakkar, bögglar og nafnamerkt blöð. Nánari upplýsingar veiti r Pósthúsið í síma 585-8300 eða á posthusid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.