Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 12
12 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR SÓLSETUR Í ÍRAK Íraskir drengir leika sér í rennibraut í skemmtigarði nærri ánni Tígris í Bagdad um sólsetursbil í gær. Innan við 90 almennir borgarar voru drepnir í nóvember, en það er einhver lægsta dánartíðni í einum mánuði frá innrás Bandaríkjamanna árið 2003. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000 Ein gjöf sem hentar öllum Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður uppá að gefandinn ákveði upphæðina og viðtakandinn velji gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans. N B I h f. (L an d sb an ki n n ), k t. 4 71 0 0 8 -0 2 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 39 89 1 RÚSSLAND Íslamistar sem berjast gegn yfirráðum Rússa í Norður- Kákasus hafa lýst ábyrgð sinni á sprengjuárás sem var á föstudag í síðustu viku. Árásin varð 26 far- þegum að bana í Nevskí-hraðlest- inni á leiðinni milli Moskvu og Pét- ursborgar. Tilkynning frá samtökunum og leiðtoga þeirra, Doku Umarov frá Tsjetsjeníu, hefur birtist á heima- síðu þar sem segir að fleiri árás- ir og skemmdarverk séu í undir- búningi. Þeim verði haldið áfram svo lengi sem hernámslið Rússa í Kákasus haldi áfram að ofsækja og drepa venjulega múslima vegna trúar sinnar. Á vefsíðu BBC segir að Umarov hafi verið í hópi þeirra uppreisn- armanna í Rússlandi sem yfirvöld leggi mesta áherslu á að handsama. Samtök hans, sem nefnast Muja- heddin í Kákasus, berjist fyrir því að hrekja Rússa frá Kákasus og koma þar á íslömsku ríki. Auk 26 farþega sem létu lífið í hraðlestinni særðust um 100 manns. Talið er að kröftugri heimagerðri sprengju hafi verið komið fyrir í lestinni. Önnur sprenging, ekki jafn kraft- mikil, sprakk við slysstaðinn á laug- ardag. Að sögn rússneskra yfirvalda særðist þá lögreglumaður sem var við störf á vettvangi. - pg Alls biðu tuttugu og sex bana í sprengjuárás á lest í Rússlandi og um eitt hundrað særðust: Íslamistar gangast við mannskæðri árás FÓRNARLAMB 26 létust og um 100 manns særðust í sprengjuárás á hraðlest í Rúss- landi á föstudag í síðustu viku. Íslömsk hryðjuverkasamtök hafa lýst ábyrgð á hendur sér. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP HAFNARFJÖRÐUR Hafnarfjarðarbær hefur keypt fjórar fasteignir úr þrotabúi Nýsis hf. fyrir um 3,8 milljarða króna. Áður leigði bær- inn þessar byggingar og rekst- ur þeirra af Nýsi. Kaupin og lok leigusamnings við Nýsi mun spara bænum gríðarlegar fjár- hæðir, að sögn Lúðvíks Geirsson- ar bæjarstjóra. „Það voru sextán til sautján ár eftir af þessum samningum,“ segir Lúðvík Geirsson. „Bara hagræðingin af leigu- og rekstr- arsamningunum er hátt í 200 milljónir króna á næsta ári. Þetta er stórmál fyrir sveitarfélagið.“ Byggingar sem nú eru orðnar eign bæjarins en Nýsir átti áður eru skólahúsið í Lækjarskóla, íþróttahús Lækjarskóla, Íþrótta- miðstöðin Björk í Haukahrauni og leikskólinn Álfasteinn á Hval- eyrarholti. Nýsir og Hafnarfjörð- ur sömdu um það árið 2001 að Nýsir byggði þessi hús og annað- ist rekstur þeirra í 25 ár gegn því að bærinn greiddi leigu. Nýsir varð hins vegar gjald- þrota í október á þessu ári eftir að tilraunir til að endurskipu- leggja rekstur fyrirtækisins báru engan árangur. Meðan þær til- raunir stóðu yfir leysti bærinn til sín rekstrarsamningana. Samn- ingar um fasteignirnar náðust svo nýlega. Landsbankinn fjár- magnar kaupsamninginn fyrir bæinn. Bankinn er einn stærsti kröfuhafinn í þrotabú Nýsis. Bæjarstjórinn segir að þessi sparnaður sé langstærsti liðurinn í þeirri hagræðingu sem bærinn þurfi að ná fram vegna næsta árs. Ekki sé ólíklegt að þarna náist 15-20 prósent af heildarhagræð- ingu næsta árs. „Það segir okkur hversu óhagstæðir þessir samn- ingar voru á sínum tíma. Fram- reiknað út samningstímann þýðir þetta 1,5-2 milljarða í sparnað fyrir bæinn. Að auki eigum við nú byggingarnar,“ segir Lúðvík. Enn eru í gildi einkafram- kvæmdarsamningar sem Hafnar- fjarðar bær gerði fyrir 2002 við fyrirtækið Fjarðarhús um rekstur tveggja leikskóla og eins grunn- skóla í Hafnarfirði. „Við höfum líka kallað eftir því að komast yfir þá samninga,“ segir Lúðvík, „en það hefur ekki náðst saman um það.“ Samningarnir við Fjarð- arhús eru hins vegar talsvert hag- stæðari bænum en samningarnir við Nýsi, segir Lúðvík. peturg@frettabladid.is Hagræða með millj- arða kaupsamningi Hafnarfjarðarbær hefur keypt fasteignir Lækjarskóla, tveggja íþróttahúsa og leikskólans Álfasteins úr þrotabúi Nýsis. „Langstærsta hagræðingin,“ segir bæjarstjóri. Hafnarfjarðarbær sparar allt að 200 milljónir króna á ári. LÆKJARSKÓLI Hafnarfjarðarbær hefur nú eignast skólahús, tvö íþróttahús og leik- skólabyggingu og sparar sér með því nær 200 milljónir króna á ári næstu 16-17 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Bara hagræðingin af leigu- og rekstrarsamn- ingunum er hátt í 200 milljónir króna á næsta ári. LÚÐVÍK GEIRSSON BÆJARSTJÓRI HAFNARFJARÐAR SJÁVARÚTVEGUR Á síðasta fiskveiði- ári var fluttur út óunninn afli á erlenda fiskmarkaði með veiði- skipum og gámum að verðmæti 17,8 milljarðar króna. Verðmæti útflutts óunnins afla jókst því um 45,5 prósent á milli fiskveiði- ára, eins og kemur fram í frétt frá Fiskistofu. Þar hefur staða íslensku krónunnar mest áhrif. Útflutt magn jókst úr 56.548 tonnum í 59.349 tonn, eða fimm prósent. Sé litið til heildar- verðmæta frá fiskveiðiárinu 2006/2007 hefur verðmæti óunn- ins útflutts afla aukist um 75 pró- sent á meðan útflutt magn hefur aukist um tæp nítján prósent. - shá Útflutningur óunnins afla: Verðmæti afla eykst stórum ÍSFISKUR Verðmæti útflutts fisk hefur margfaldast á stuttum tíma. Sigrún Elsa Smáradóttir borgarfulltrúi hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sætið á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórn- arkosningar. Prófkjör flokksins fer fram 30. janúar næstkomandi. SVEITARSTJÓRNARMÁL Akur 50 ára Trésmiðjan AKUR á Akranesi hélt upp á 50 ára afmæli fyrirtækisins í nóvember með veislu þar sem starfs- fólk, eigendur og fyrrum stofnendur fyrirtækisins fögnuðu tímamótunum. Akur var stofnað árið 1959. Trésmiðj- an Akur hlaut snemma á þessu ári viðurkenningu um C-vottun Samtaka iðnaðarins. TÍMAMÓT VIÐSKIPTI Heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni í síðasta mánuði námu tæpum 1,9 milljörð- um króna. Það jafngildir 91 millj- ón króna á dag. Til samanburðar nam veltan tæpum 1,7 milljörðum króna í október, eða 76 milljónum á dag. Mest voru viðskipti með hluta- bréf Marels í mánuðinum, eða fyrir tæpa 1,5 milljarða króna. Næstmestu viðskiptin voru með hlutabréf stoðtækjafyrirtækisins Össurar, eða fyrir 321 milljón króna. Markaðsvirði skráðra félaga nam 188 milljörðum króna í nóvemberlok og var það fjögurra prósenta hækkun á milli mán- aða, samkvæmt tilkynningu frá Kauphöllinni. - jab Aukin velta með hlutabréf: Mest verslað með Marel TÆKIN SKOÐUÐ Mest var verslað með hlutabréf Marels og Össurar í Kauphöll- inni í síðasta mánuði. VIÐSKIPTI Heimsmarkaðsverð á gulli fór í 1.210 dali á únsu á markaði í Bandaríkjunum í gær og hefur það sjaldan verið hærra í lok dags. Hæst fór það í 1.218 dali á únsu innan dags- ins. Verðið hefur hækkað nokkuð við- stöðulítið síð- ustu mánuði og skýrist af uppkaup- um fjár- festingasjóða vestanhafs á málminum gyllta, að sögn Reuters. Frétta- stofan bendir jafnframt á að ríkis- stjórnir víða um heim hafi birgt sig upp af gulli, svo sem stjórn- völd á Srí Lanka og Indlandi, sem hafa keypt gullið úr eignasafni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. - jab Gullverð á ný í methæðum: Ríkisstjórnir birgja sig upp Eiga í stríði við hafið Feneyjar eiga í eilífu stríði við hafið og eiga sjálfsagt ekki von á góðu ef spár um hækkun heimshafanna rætist. Milljörðum og aftur milljörð- um hefur verið varið til þess að verja borgina fyrir ágangi hafsins. Flóð eru engu að síður algeng í borginni. Í gær var hásjávað mjög og vatnsdýpi í miðborginni var vel á annan metra. Margar stórfenglegar byggingar eru við Markúsartorgið og eftir hvert flóð fara menn með öndina í hálsinum að skoða hvort eitthvað hafi skemmst. FENEYJAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.