Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 32
32 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR UMRÆÐAN Björgvin Guðmunds- son skrifar um kjör eldri borgara Það veldur eldri borgur-um og öryrkjum áhyggj- um hve stjórnvöld hafa verið neikvæð gagnvart þessum hópum á liðnu ári. Kjör aldraðra og öryrkja voru skert verulega 1. júlí sl. Landssamband eldri borgara og Öryrkjabandalag Íslands mótmæltu kjaraskerðing- unni harðlega en stjórnvöld hafa skellt skollaeyrum við þeim mót- mælum. Ríkisstjórnin situr löng- um á fundum með aðilum vinnu- markaðarins, ASÍ og SA og tekur mark á óskum þessara aðila. En ríkisstjórnin hundsar samtök eldri borgara og samtök öryrkja. Þess- ir aðilar hafa ekki verkfallsrétt og ríkisstjórnin virðist ekki hafa mikl- ar áhyggjur af þessum hópum. Þó var það yfirlýst stefna ríkisstjórn- arinnar að hún vildi hafa samráð við hagsmunasamtök um þær ráð- stafanir sem þyrfti að gera, t.d. í ríkisfjármálum. Eldri borgarar hafa að undan- förnu rætt það í sinn hóp að nauð- synlegt sé að fara nýjar leiðir í kjarabaráttunni. Þessi mál hafa verið rædd í stærstu félögum eldri borgara, Félagi eldri borgara í Reykjavík og Félagi eldri borg- ara í Kópavogi. Málið hefur einn- ig verið rætt í Landssambandi eldri borgara. Aðilar eru sammála um nauðsyn þess að breyta baráttu- aðferðum. Kurteislegar ályktanir og mótmæli duga ekki lengur. Ráð- herrar stinga þeim ofan í skúffur. Heitstrengingar stjórnmálamanna fyrir kosningar um ný og betri vinnubrögð virðast hafa gleymst. Hefur ríkisstjórnin gleymt bús- áhaldabyltingunni? Hefur ríkis- stjórnin gleymt því að það átti að hlusta á almenning, fólkið í landinu og taka tillit til þess. Það er ekki nóg að ræða við verka- lýðshreyfingu og atvinnu- rekendur. Forseti ASÍ og framkvæmdastjóri SA eru ekki fulltrúar alls fólks- ins í landinu. Það þarf að hlusta á aldraða og öryrkja og fleiri hagsmunasamtök og ekki bara hlusta. Það þarf að taka tillit til þess- ara hagsmunasamtaka. Verkafólk hefur nú feng- ið kauphækkanir tvívegis á þessu ári, 1. júlí og 1. nóvember. Á sama tíma hafa aldraðir og öryrkjar orðið að sæta kjaraskerðingu. Þeir þurftu raunar einnig að þola kjara- skerðingu 1. janúar sl. þegar þorri aldraðra og öryrkja fékk aðeins 9,6% verðlagsuppbót á lífeyri, en verðlagsuppbótin átti að vera 20%. Aðeins þeir, sem voru á „strípuð- um bótum“ fengu fulla uppbót. Í lögum um almannatryggingar segir, að breyting á lífeyri aldr- aðra og öryrkja eigi að taka mið af launabreytingum en einnig af verð- lagsþróun. Ég tel, að samkvæmt því eigi lífeyrir að hækka í samræmi við hækkanir á kaupgjaldi 1. júlí og 1. nóvember. Í lögum um mál- efni aldraðra segir, að aldraðir eigi að njóta jafnréttis á við aðra. Það getur ekki talist jafnrétti að skerða kjör aldraðra á sama tíma og laun- þegar fá kauphækkun. Þetta kall- ast misrétti. Ekki veit ég hve marg- ir launþegar fengu kauphækkun 1. júlí og 1. nóv. sl. En það hafa verið margir tugir þúsunda, sennilega 40-50 þús. Það þýðir ekki að vísa í það í þessu sambandi, að nokkuð hundruð eldri borgara hafi fengið góða hækkun á lífeyri 1. september 2008. Það er ekki nóg. Stjórnvöld munu komast að raun um til hvaða baráttuaðferða eldri borgarar ætla að grípa. Þeir ætla ekki að sitja aðgerðalausir. Eldri borgarar vilja fá þær kjarabætur, sem þeir eiga rétt á. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi eldri borgara. Eldri borgarar hundsaðir UMRÆÐAN Sigurður Benediktsson skrifar um tannheilsu Nú eru liðin tuttugu ár síðan Allsherjar-þing Sameinuðu þjóðanna samþykkti sáttmála um réttindi barna. Sáttmálinn sem oft er nefndur Barnasáttmáli var seinna staðfestur af íslenskum stjórn- völdum. Nú kann einhver að hugsa sem svo hvað Barnasáttmálinn komi tönnum við en það vill svo til að í téðum sáttmála er sér- staklega tekið fram að tryggja eigi öllum börn- um nauðsynlega læknis- og heilbrigðisþjónustu. Tennur og tannheilsa eru mikilvægur þáttur í heilbrigði hvers barns og því mikilvægt að tryggt sé að barn hafi greiðan aðgang að tannheilsu- gæslu. Hér á landi er það því miður ekki raun- in og hefur ekki verið undanfarin ár. Sýnt hefur til dæmis verið fram á að beint samband er milli tannskemmdartíðni barna og tekna fjölskyldna þeirra og hefur þessi vitneskja legið fyrir í þó nokkur ár. Efnaminni fjölskyldur hafa því ekki sama aðgengi að tannheilsugæslu fyrir börn sín vegna þess að stjórnvöld þessa lands hafa stöðugt dregið úr greiðsluþátttöku vegna tannlækninga. Ég fullyrði að stjórnvöld og heilbrigðisyfirvöld hafa sýnt börnum þessa lands vanrækslu á háu stigi og skellt skollaeyrum við viðvörunum tann- lækna og þeirra sem láta sig tannheilbrigði varða. Við sem störfum á tannlæknastofum verð- um því miður vitni að afleiðingum þessa í hverri viku á stofum okkar og var það þyngra en tárum taki að starfa á Hjálparvakt tannlækna sl. vetur og upplifa þá neyð sem sum þessara barna eru í. Litlar líkur eru á að þessi Hjálparvakt verði endurtekin því Tannlæknafélag Íslands stóð eftir með töluverðan kostnað sem svona lítið félag getur ekki staðið undir til lengdar. Tannlæknar hafa þó í einhverjum mæli verið að aðstoða börn og unglinga sem búa við kröpp kjör gegnum ýmis hjálparsamtök sem starfandi eru hér á landi. Tannheilsa er langhlaup Tannheilsa er langhlaup og ekki er hægt að bjarga henni fyrir horn með litlu átaki. Við þekkjum samt alla þá áhættuþætti sem koma við sögu og höfum öll þau meðul og mannskap sem þarf til að viðhalda góðri tannheilsu. Skipta þar mestu góðar venjur og gott mataræði, ásamt því að mæta reglulega til tannlæknis og fá þar þær forvarnir sem eiga við í hverju til- felli fyrir sig. Mikilvægt er að tannlækn- ir geti greint börn sem eru í áhættuhópi fyrir tannskemmdum og veitt þeim þá meðferð sem þau þurfa tafarlaust og á skilvirkan hátt. Við hættum t.d. ekki að bólusetja þó að ekkert bóli á sjúkdómn- um. Nú reynir á yfirvöld sem aldrei fyrr að endurreisa tannheilsu íslenskra barna. Bæði þarf að bregðast við þeim mikla vanda sem nokkuð stór hluti barna glímir við og eins að stórauka forvarnir til tann- lækninga bæði í skólum og á tannlæknastofum. Við þurfum ekki enn eitt loforðið, bara að þetta sé gert! Afgangur af fjárlögum! Eins undarlega og það kann að hljóma þá hefur verið afgangur af fjárlögum til tannlækninga síðustu átta til tíu ár. Hvernig má það vera að sú upphæð sem ákveðin er til tannlækninga ár hvert af Alþingi skili sér ekki til þegna landsins? Hvernig getur eiginlega staðið á þessu þegar þörfin er æpandi á okkur dag hvern og nú stefnir allt í að metafgangur verði fyrir árið 2009? Hér eru það aðeins þeir tekjuhærri sem geta nýtt sér almannatryggingakerfið. Hinir nýta sér ekki styrk ríkisins. Þetta veldur m.a. því að kerfið viðheldur versnandi tannheilsu íslenskra barna. Núverandi fyrirkomulag, sem stuðlar að versn- andi tannheilsu, er hluti af þeirri góðu heilbrigð- isþjónustu sem við teljum okkur hafa eða er það kannski bara tálsýn? Nýjustu upplýsingar sýna núna að undanfarna mánuði hefur sú upphæð sem greidd er til tannlækninga úr ríkissjóði minnkað um 15-20% miðað við sama tímabil fyrir ári. Hér er líklegasta skýringin versnandi efnahagsástand og afkoma heimila sem skilar sér í færri heim- sóknum og verri heimtum barna til tannlækna. Endurgreiðsluhlutfallið lækkar síðan stöðugt hlutfallslega þrátt fyrir afgang af því fé sem Alþingi veitir þó til þessa málaflokks. Hvernig ætla stjórnvöld að verja þá staðreynd að afgangur er á hverju ári af fjárlögum til tannheilsugæslu? Hvernig ætla þau að koma í veg fyrir að vinnandi fólk, barnafólk sem kemur til með að bera byrðar Hrunsins, flytjist ekki úr landi og setjist að þar sem yfirvöld tryggja jafnan aðgang barna að heilbrigðisþjónustu eins og lögð er áhersla á í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna? Höfundur er formaður Tannlæknafélags Íslands. Um endurreisn tannheilsu barna BJÖRGVIN GUÐ- MUNDSSON SIGURÐUR BENEDIKTSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.