Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 73

Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 73
FIMMTUDAGUR 3. desember 2009 57 Tíu þúsundasti gestur leikritsins Harry og Heimir var leystur út með gjöfum í miðri sýningu í Borgarleikhúsinu á þriðjudags- kvöld. Jón Torfason var sá heppni og fékk hann í sinn hlut veglegan blómvönd, gjafakort í Borgar- leikhúsinu og plötu með fyrstu útvarpsleikritunum eftir þá félaga Harry og Heimi. Leikrit- ið Harry og Heimir – með öðrum morðum var frumsýnt 12. sept- ember síðastliðinn. Síðan þá hafa verið leiknar fimmtíu sýningar fyrir troðfullu húsi og ljóst að þeir félagar hafa svo sannarlega hitt í mark á meðal almennings. Uppselt er á leikritið langt fram í janúar. Gestir orðnir tíu þúsund NÚMER 10 ÞÚSUND Jón Torfason ásamt þeim Harry og Heimi á sýningunni í Borgarleikhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐA/ANTON Myndband sem sýnir leikkonuna Marilyn Monroe nota ólögleg efni í heimahúsi verður sett á sölu á uppboðsvefnum eBay innan skamms. Myndbandið er talið vera frá árinu 1958 og sýnir leik- konuna ásamt tvemur vinkonum reykja marijúana. Upprunalegur eigandi myndbandsins hefur staðfest að Monroe hafi verið að nota vímuefni. „Ég átti marijú- anað. Við fengum okkur jónu sem var svo látin ganga manna á milli. Þetta var engin veisla, bara lítil samkoma fólks sem vildi hittast og spjalla,“ var haft eftir upptökumanninum sem vildi ekki láta nafns síns getið. Monroe reykir jónu MONROE Marilyn Monroe er ein þekkt- asta kvikmyndastjarna allra tíma og þótti með eindæmum fögur. Færeyska söngkonan Eivør Pálsdóttir heldur tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík laugardagskvöldið 12. desember. Þar mætir hún berskjölduð til leiks, án hljómsveitar, sem hún hefur ekki gert í háa herrans tíð á Íslandi. Eivør er nýbúin að senda frá sér tónleikaplötuna Live sem inniheldur upptökur frá árunum 2005-2009 af tón- leikum í Færeyjum, Íslandi, Japan, Danmörku, Austurríki og Þýskalandi. Þessa dagana er hún önnum kafin við upptök- ur á sinni næstu hljóðversplötu. Forsala á tónleikana í Fríkirkj- unni hefst í dag kl. 10 á Midi.is og eru aðeins 350 miðar í boði. Miðaverð er 2.500 krónur. Eivør syngur í Fríkirkjunni EIVØR PÁLSDÓTTIR Eivør heldur tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík laugardags- kvöldið 12. desember. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fjórða sólóplata Fabúlu, Margrétar Kristínar Sigurðar dóttur, kemur út á föstudaginn. Platan heitir In Your Skin og inniheldur tólf lög sem eru flest sungin á ensku. Tvö lög eru sungin á íslensku og eru þau bæði til- einkuð foreldrum hennar. „Þau áttu gullbrúðkaups- afmæli í fyrra. Ég bjó til lög við ljóð sem ég hafði samið til þeirra áður,“ segir Margrét. Hún hóf vinnu við plötuna síðasta vetur og segir hana poppaðari en þá síðustu sem hún gaf út, hina lágstemmdu og draumkenndu Dusk. Á In Your Skin má finna naktar og fíngerðar framsetningar í bland við stórar hljóðmyndir og kraftmikla kafla. Stíll Fabúlu einkennist af tregablandinni leikgleði og óvæntum uppákomum eins og kemur berlega í ljós á plötunni. Hún ætlar að fylgja gripnum eftir með útgáfu- tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu á föstudaginn. Einnig fer hún í tónleikaferð um landið eftir áramót. „Ég hef ekki áður farið hringinn með tónlistina mína. Ég hef bara skotist stutta túra og á fáa staði þannig að ég á það eftir. Ég hlakka til að gera það,“ segir Margrét. Einnig hyggur hún á spilamennsku á Norðurlöndunum með vorinu og verður það í fyrsta sinn sem hún fer þangað í tónleikaferð. Hægt verður að fylgjast með Fabúlu á nýrri vef- síðu, Fabula.is, sem verður opnuð á föstudaginn. - fb Lög handa mömmu og pabba FABÚLA Fjórða sólóplata Fabúlu kemur út á föstu- daginn. Hún nefn- ist In Your Skin. Kringlunni Sími 534-0066 ® FRIIS & COMPANY ER 5 ÁRA! BirthdaySale Við höldum upp á það með því að bjóða 20% afslátt af öllum vörum í versluninni í dag 3 des. Hlökkum til að sjá þig! Live & Love -20%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.