Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 66
50 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Fjórar kvikmyndir verða frumsýndar um helgina.
Extract er ný gamanmynd frá höfundum Office
Space með Jason Bateman í aðalhlutverki. Batman
leikur Joel sem verður að bjarga fyrirtækinu sínu
frá undirförlum starfsmönnum sem vilja komast
yfir það. Einnig þarf hann að bjarga hjónabandi
sínu sem er í bráðri hættu. Myndin fær 7 af 10
mögulegum á kvikmyndasíðunni Imdb.com.
Ninja Assassin fjallar um Raizo sem er einn
hættulegasti leigumorðingi heims. Frá æskuárunum
hefur hann verið í strangri þjálfun hjá Ozunu-
genginu. Hann ákveður að hefna sín á genginu
eftir að það myrðir bróður hans. Framleiðendur
myndarinnar eru Wachowski-bræður sem
leikstýrðu Matrix-myndunum. Leikstjóri er James
McTeigue sem sendi frá sér V for Vendetta. Mynd-
in fær 7 á Imdb.com. Aðalleikari myndarinnar,
Rain, er ein helsta poppstjarna Asíu en það höfðu
Wachowski-bræðurnir ekki hugmynd um þegar þeir
réðu hann til verksins.
Teiknimyndin Arthúr 2: Maltasar snýr aftur fjall-
ar um Arthúr sem snýr aftur heim til Mínimóanna
með ömmu sinni til að heimsækja afa sinn. Þá fær
hann neyðarkall frá Selenu prinsessu sem býr við
stöðugar árásir frá Maltazard. Leikstjóri er sjálfur
Luc Besson, höfundur Léon, Nikita og The Fifth
Element.
Poppstjarna í ninjubúning
POPPSTJARNA FRÁ ASÍU Rain er ein helsta poppstjarna Asíu
en það höfðu framleiðendur Ninja Assassin ekki hugmynd um
þegar þeir réðu hann í aðalhlutverkið.
Bandaríska leikkonan
Meryl Streep er lifandi
goðsögn í Hollwyood og
er á sama stalli í huga
bandarískra leikkvenna og
Marlon Brando og Robert
De Niro hjá körlunum.
Nýjasta kvikmynd Meryl Streep
heitir Julia & Julia og verður
frumsýnd hér á landi um helgina.
Myndin flakkar á milli tímabila og
segir annars vegar frá hinu fræga
matargúrúi Juliu Child og árun-
um hennar í Frakklandi í kringum
1960 en þar sökkti hún sér ofan í
franska matargerð. Og hins vegar
frá Juliu Powell sem ákveður dag
einn að elda allar uppskriftirnar
hennar Child úr hinni víðfrægu
matreiðslubók Mastering the Art
of French Cooking á einu ári en
þær eru 524. Auk Streep fara þau
Stanley Tucci og Amy Adams með
stór hlutverk í myndinni en leik-
stjóri og handritshöfundur er Noah
Ephron.
Meryl Streep er algjörlega ein-
stök leikkona í Hollywood. Fer-
ill hennar hófst fyrir alvöru árið
1978 þegar hún lék í hinni mögn-
uðu kvikmynd Michael Cimino, The
Deer Hunter, á móti Robert De Niro
og Christopher Walken. Þar hlaut
Streep sína fyrstu tilnefningu af
fimmtán til Óskarsverðlauna fyrir
túlkun sína á Lindu. Fjórum árum
seinna var hún komin með stytt-
una góðu upp í skáp fyrir Sophie‘s
Choice. Streep er fædd árið 1949 og
ólst upp í smábænum Bernardsville
í New Jersey. Streep fékk snemma
áhuga á leiklist og útskrifaðist af
leiklistarbraut Yale snemma á átt-
unda áratugnum. Fyrstu hlutverk
hennar voru á sviði í New York en
hana fór fljótlega að dreyma um
hvíta tjaldið. Sagan segir að hún
hafi mætt í inntökupróf fyrir King
Kong-kvikmynd Dino De Laurent-
iis en sá hafi vísað henni á bug á
þeim forsendum að Streep væri
ljót. Dino kom þessari skoðun sinni
á framfæri við aðstoðarmann sinn
á ítölsku og honum til mikillar
undrunar svaraði Streep honum
fullum hálsi til baka. Á ítölsku. Og
það hefur kannski verið eitt helsta
einkennið á nánast flekklaus-
um ferli leikkonunnar. Hún hefur
getað brugðið sér í allra kvikinda
líki, náð næstum öllum tungumál-
um fullkomlega. Streep hefur enn
fremur átt frekar auðvelt með að
halda einkalífi sínu utan kastljóss
fjölmiðlanna, en hún hefur verið
gift bandaríska höggmyndalista-
manninum Don Gummer síðan
1978.
Meryl Streep hefur samkvæmt
kvikmyndavefnum imdb.com verið
tilnefnd til 82 verðlauna fyrir kvik-
myndaleik, þar af 22 til Golden
Globe. Ferill hennar í Hollywood
er því einstakur og verður eflaust
seint eða aldrei leikinn eftir. Og ef
til vill lýsti Jack Nicholson henni
best þegar AFI, bandaríska kvik-
myndastofnunin, heiðraði hana
fyrir nokkru. „Þú ert einfaldlega
fullkomin.“ - fgg
MERYL HIN FULLKOMNA
Mikil eftirvænting ríkir í Holly-
wood eftir hryllingsmyndinni
The Wolfman sem verður frum-
sýnd vestanhafs 12. febrúar og
um svipað leyti hérlendis.
Framleiðandinn Universal
hefur tvívegis frestað frumsýn-
ingardeginum. Upphaflega átti
að sýna myndina í apríl á þessu
ári en henni var frestað fram í
nóvember. Núna hefur 12. febrú-
ar loksins verið staðfestur. Ein
ástæðan fyrir seinkuninni er
sú að mikið púður hefur farið
í tæknibrellur og eftirvinnslu,
enda var mikil áhersla lögð á
að gera úlfamanninn eins
raunverulegan og hægt var.
The Wolfman er endur-
gerð samnefndrar hryllings-
myndar frá árinu 1941. Sögu-
sviðið er Bretland seint á
nítjándu öld þar sem Lawrence
Talbot heldur í heimabæ sinn til
að leita horfins bróður.
Hann kemst að því að blóð-
þyrst vera hefur drepið hvern
bæjarbúann á fætur öðrum og
ekki líður á löngu þar til rann-
sóknarlögregla frá Scotland
Yard mætir á svæðið.
Með aðalhlutverkin í mynd-
inni fara engir aukvisar, eða
þau Benicio Del Toro, Anthony
Hopkins, Emily Blunt og Hugo
Weaving. Leikstjóri er Joe John-
ston sem hefur áður gert Hidal-
go, Jurassic Park III, October
Sky og Honey, I Shrunk the
Kids.
Úlfamaðurinn er á leiðinni
THE WOLFMAN Mikil eftir-
vænting ríkir í Hollywood
eftir hryllingsmyndinni The
Wolfman.
Tökum er lokið á nýrri kvikmynd
Stevens Spielberg um mynda-
söguhetjuna Tinna. Þrátt fyrir
það er langt þangað til að mynd-
in lítur dagsins ljós því tvö ár til
viðbótar þarf til að ljúka tækni-
brellunum í myndinni. „Tinni er
frábær. Henni er lokið og það er
búið að klippa myndina saman.
Núna ætlum við að taka næsta
skref,“ sagði Peter Jackson, sem
framleiðir myndina.
Tökum á Tinna lokið
TINNI Tökum er lokið á kvikmyndinni
um Tinna. Nú eru bara brellurnar eftir.
Gamla kempan Clint East-
wood er á forsíðu tímarits-
ins GQ og þar ræðir hann
um nýjustu mynd sína sem
leikstjóri, en sú ber heitið
Invictus og fjallar um ævi
Nelsons Mandela.
„Heimurinn þarf
á svona sögum að
halda. Það er eins og
öll þjóðin sé orðin
þunglynd vegna
heimskreppunnar,“
sagði Clint og bætir
við: „Við erum orðin
mjög barnaleg þjóð.
Kynslóðin sem upp-
lifði seinni heims-
styrjöldina er að
hverfa og í staðinn
sitjum við uppi með
hóp af kjánalegum
unglingum.“
Eastwood, sem er 79 ára
gamall, er enn við hesta-
heilsu enda hugleiðir hann
tvisvar á dag og forðast
feitan mat. Hann er einnig
hamingjusamlega kvæntur.
„Áður fann ég tilgang
í því að eltast við
kvenfólk en nú
er ég hamingju-
samur einkvæn-
ismaður. Ég
trúði ekki að sá
dagur myndi
koma, en hann
kom og ég er
hamingjusam-
ur.“
Clint hamingjusamur
GLAÐUR Clint
Eastwood er
hamingjusamlega
kvæntur.
> BOURNE 4 Í UPPNÁMI
Leikstjórinn Paul Greengrass hefur
tilkynnt forsvarsmönnum Universal
að hann ætli ekki að leikstýra fjórðu
myndinni um leyniþjónustumann-
inn Jason Bourne. Þetta er
nokkurt áfall fyrir aðdáendur
Bourne því Greengrass hefur
leikstýrt tveimur síðustu. Ekki
liggur fyrir hver taki við keflinu
og hvort númer fjögur verði
gerð.
The Deer Hunter (1978)
Kramer vs. Kramer (1979)
Sophie’s Choice (1982)
Out of Africa (1985)
Postcards from the Edge (1990)
Adaptation (2002)
Hours (2002)
HELSTU MYNDIR
MERYL STREEP
SÚ BESTA
Meryl Streep er einfaldlega besta leikkonan
sem Hollywood hefur alið af sér og kannski
helsta sönnunin fyrir því að leikkonur
þurfa ekki langa leggi og snoppufrítt
andlit til að ná langt ef þær eru hæfi-
leikaríkar. Meryl hlaut Óskarsverðlaun
fyrir aukahlutverk í Kramer vs. Kram-
er árið 1979 og fyrir aðalhlutverk í
Sophie´s Choice árið 1982.
Kvikmyndin Zombieland með
Woody Harrelson sló nokkuð
óvænt í gegn í kvikmyndahúsum
beggja vegna Atlantshafsins. Það
þarf því ekki að koma neinum á
óvart að framhaldsmynd sé í und-
irbúningi. Forsvarsmenn kvik-
myndadeildar Sony eru þegar
farnir að undirbúa jarðveginn og
samkvæmt verfsíðu Empire er
talið líklegt að framhaldsmynd-
in verði í þrívídd. Framleiðend-
urnir eru þegar sestir við samn-
ingaborðið með Woody enda ljóst
að Zombieland 2 verður aðeins
skugginn af sjálfum sér ef sá
mæti maður verður ekki um
borð.
Zombieland
í þrívídd
Tollkvótar vegna innflutnings
á landbúnaðarvörum frá
Evrópubandalaginu.
Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópu-
bandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur
á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglu-
gerðar dags. 1. desember 2009 um úthlutunina, er
hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta vegna
innflutnings á kjöti, ostum og unnum kjötvörum,
upprunnum í ríkjum Evrópubandalagsins fyrir
tímabilið 1. janúar 2010 til 31. desember 2010
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins,
www.stjr.is/slr
Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150
Reykjavík, 5. hæð eða á postur@slr.stjr.is, fyrir kl.
15:00 miðvikudaginn 9. desember n.k.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,
2. desember 2009.
Tollkvótar ve in flutni gs
á landbúna rvörum frá
Evrópub alaginu.
Með vísan til samnings il i Íslands og Evrópu-
bandalag ins um viðski i með landbúnaðarvörur
á grundvelli 19. gr. EE a ningsins og til reglu-
gerðar dags. 1. desemb 009 um úthlutunina, er
hér með auglýst eftir u num um tollkvóta vegna
innflutnings á kjöti, ost og unnum kjötvörum,
ppr nnum í ríkjum rópubandalagsins fyrir
tímabilið 1. janúar 2010 1. desember 2010
Nánari upplýsingar á fin a á vefsíðu
sjávarútvegs- og l búnaðarráðuneytisins,
www.stjr.is/slr
Skriflegar umsóknir sk berast til sjávarútvegs-
og landbún ðarráðuney ins, Skúlagötu 4, 150
Reykjavík, 5. hæð eða stur@slr.stjr.is, fyrir kl.
15:00 m ðvikudagi n 9. sember n.k.
Sjávarútvegs- og la únaðarráðuneytinu,
2. dese r 20 9.