Vikan - 19.01.1961, Qupperneq 12
Húsgögnin að ofan eru frá Svíþjóð. Þau eru
alveg í sama anda hins nýja fúnkisstíls: Hvergi
cru ávöl form, nema hvað fæturnir eru sívalir.
Viðurinn er palisander, fæturnir eru úr kopar,
en yfirdekkíur svampur í sessum.
Hús
húsbúnaður
Höfundar hins nýja fúnkisstíls segja: Sjáið byggingarnar, þar eru allar lín-
ur beinar. Línur húsgagnanna verða að vera beinar líka, ef fullt samræmi
á að nást. Takið eftir, hve körfustóllinn brýtur í bága við hinar grafísku
línur stofunnar.
I íslenzkum húsgagnaverzlunum tók fúnkislínan að gera vart
við sig í haust, og hafði Híbýladeild Markaðsins þar forystu
svo og Húsgagnaverzlun Benedikts Guðmundssonar á Laufás-
vegi. Stólarnir á myndinni eru smíðaðir í Hafnarfirði og eru
skilgetin afkvæmi hinnar nýju stefnu.
O Danir hafa verið forystuþjóð í húsgagnaiðnaði síðasta ára-
tug, og svo lítur út fyrir sem þeir ætli að ná góðum tökum á
hinni nýju gerð húsgagna. Hér er skrifstofa búin húsgögnum
eftir einn af þekktari húsgagnaarkítektum Dana. Stóllinn, sem
næst er á myndinni, er gott dæmi um samræmingu á léttleika
og hinum kantaða fúnkisstfl.
.
(
I